Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 584. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 938  —  584. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um eftirlit með þjálfun fjölfatlaðra barna.

Frá Ögmundi Jónassyni.



     1.      Hvernig er háttað eftirlitsskyldu ráðuneytisins með fjölfötluðum börnum til sex ára aldurs með sérstakri skírskotun til almennrar þjálfunar, talkennslu, iðju- og sjúkraþjálfunar?
     2.      Er aðhald og eftirlit samræmt þegar um marga þjónustuaðila er að ræða?