Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 601. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 962  —  601. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 128. löggjafarþingi 2002–2003.)



1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, sem orðast svo:
    Ákvæði þetta tekur til manna sem eiga hlutabréf í hlutafélagi um sameiginlega fjárfestingu sem fullnægir skilyrðum 5. mgr. 1. tölul. B-liðar 1. mgr. 30. gr. laganna og fá við slit þess á árunum 2003–2007 í stað hlutabréfs í hlutafélaginu afhent hlutdeildarskírteini í verðbréfasjóði eða fjárfestingarsjóði, sem hefur verið stofnaður samkvæmt lögum um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði, og tekur við verðbréfaeign félagsins, eftir því sem nánar er kveðið á um í ákvæði þessu.
    Við slit skv. l. mgr. telst afhending hlutdeildarskírteinanna ekki til skattskylds arðs skv. 4. mgr. 9. gr. laganna. Stofnverð hlutdeildarskírteinis sem afhent er skv. 1. mgr. skal vera jafnt upphaflegu kaupverði bréfanna, að teknu tilliti til 4. mgr. 17. gr. laganna, sbr. þó 3. mgr. ákvæðis þessa.
    Tekjur við sölu eða innlausn hlutdeildarskírteinis sem afhent var skv. 1. mgr. í stað hlutabréfs sem keypt var á árunum 1990–1996 skulu ekki skattlagðar nema að því marki sem þær eru umfram fjárhæð er getur í 6. mgr. 17. gr. laganna, enda hafi hlutdeildarskírteini vegna þessara hlutabréfa verið sérgreind. Um ákvörðun stofnverðs að öðru leyti fer eftir 2. mgr.
    Afhending hlutabréfa skv. 1. mgr. telst ekki hafa í för með sér rof á eignarhaldi, sbr. 4. mgr. l. tölul. B-liðar 1. mgr. 30. gr. laganna. Verði hlutdeildarskírteinið selt eða það innleyst áður en eignarhaldstími þess eða þeirra bréfa sem það kom í staðinn fyrir er liðinn gilda ákvæði um kaup í nýjum bréfum eða eftir atvikum tekjufærslu nýtts frádráttar, sbr. 3.–5. málsl. 4. mgr. 1. tölul. B-liðar l. mgr. 30. gr. laganna.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2003 og koma til framkvæmda í álagningu 2004.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Í frumvarpi þessu sem lagt er fram í tengslum við frumvarp til laga um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði er gerð tillaga um að þeir menn sem keypt hafi hlutabréf í hlutafélagi um sameiginlega fjárfestingu (hlutabréfasjóði) og fengið frádrátt á móti tekjum vegna þeirra hlutabréfakaupa með vísan til 1. tölul. B-liðar 1. mgr. 30. gr. laganna geti við slit á félaginu fengið sem endurgjald fyrir hlutabréf sín hlutdeildarskírteini í þeim verðbréfasjóði eða fjárfestingarsjóði sem tekur við verðbréfaeign hlutafélagsins án þess að missa þær skattalegu ívilnanir sem eru við hlutabréfin tengd. Með frumvarpi til laga um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði er m.a. verið að bregðast við þeirri gagnrýni að hlutabréfasjóðir sem selji hlutabréf til almennings heyri ekki undir lög nr. 10/1993, um verðbréfasjóði, og þar af leiðandi sé neytendavernd að vissu leyti fyrir borð borin þar sem verðbréfasjóðum sé gert að uppfylla ströng skilyrði til að fá starfsleyfi stjórnvalda en hlutabréfasjóðir þurfi þess ekki. Að óbreyttum lögum mundu skattareglur í reynd standa því í vegi að markmið nefnds frumvarps viðskiptaráðherra næðu fram. Það helgast fyrst og fremst af því að afhending á hlutdeildarskírteinum í stað hlutabréfa yrði skattlögð sem tekjur hjá viðkomandi einstaklingi og væri því mikið óhagræði af því að þurfa að innleysa skattkvöðina áður en til raunverulegrar sölu eða innlausnar kæmi.
    Hlutafélag er skattlagt af hagnaði ársins og hluthafinn síðan af arði og eftir atvikum söluhagnaði. Verðbréfasjóður, sem er hlutdeildarskírteinissjóður, er hins vegar ekki skattlagður af hagnaði, heldur kemur þá fyrst til skattlagningar er eigendur innleysa bréfið eða eftir atvikum selja það og teljast þær tekjur í báðum tilvikum vera vextir samkvæmt skattalögum.
    Með frumvarpi til laga um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði er fjárfestingarstefna laga nr. 10/1993, um verðbréfasjóði, rýmkuð verulega. Sú staðreynd ásamt því að hlutabréfafrádrátturinn rann sitt skeið á enda í árslok 2002 og því að skattaleg staða sjóða sem stofnaðir eru og reknir af rekstrarfélagi og gefa út hlutdeildarskírteini sé talin betri ávöxtunarmöguleiki fyrir einstaklinga en sjóðir sem reknir eru í formi hlutafélaga mun verða hvati til að breyta hlutabréfasjóði í hlutdeildarskírteinissjóð. Til að gæta samræmis við markmið frumvarps til laga um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði er lögð fram fyrrnefnd tillaga í frumvarpi þessu. Almenningi verður þannig unnt án skattalegra afleiðinga af þessu tilefni að færa fjármagn sitt úr hlutabréfasjóði yfir í hlutdeildarskírteinissjóð sem háðir eru eftirliti stjórnvalda, þegar hlutabréfasjóðnum hefur verið slitið og hann hefur úthlutað eignum félagsins, þ.e. hlutdeildarskírteinum í viðkomandi verðbréfasjóði eða fjárfestingarsjóði, til hluthafa í réttu hlutfalli við hlutafjáreign þeirra í viðkomandi hlutabréfasjóði.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um. 1. gr.


    Hér er í fyrsta lagi lagt til að ekki komi til skattlagningar þegar einstaklingur sem er hluthafi fær við slit á hlutafélagi um sameiginlega fjárfestingu (hlutabréfasjóði) afhent hlutdeildarskírteini í verðbréfasjóði eða fjárfestingarsjóði sem tekur við verðbréfaeign hlutafélagsins og félagið sem slitið er uppfyllti skilyrði 5. mgr. 1. tölul. B-liðar 1. mgr. 30. gr. laganna. Tímamörkin eru miðuð við það að á árinu 2007 eru skilyrði um eignarhaldstíma vegna hlutabréfafrádráttar fallin niður. Í reynd er hér aðeins um skattfrestun að ræða. Í öðru lagi er lagt til að stofnverð hlutdeildarskírteinis verði jafnt upphaflegu kaupverði hlutabréfanna, að teknu tilliti til ákvæða 4. mgr. 17. gr. Í þriðja lagi er lagt til að tekjur við sölu eða innlausn hlutdeildarskírteinis sem er afhent í stað hlutabréfa í félaginu sem slitið er og keypt voru á árunum 1990–1996 skuli ekki skattlagðar nema að því marki sem þær eru umfram fjárhæðarmörk skattfrjáls söluhagnaðar, sbr. 6. mgr. 17. gr. laganna. Í fjórða lagi er lagt til að ekki komi til tekjufærslu skv. 3. málsl. 4. mgr. 1. tölul. B-liðar 1. mgr. 30. gr. á nýttum frádrætti vegna kaupa á hlutabréfum þrátt fyrir að í reynd séu skilyrði um eignarhaldstíma ekki uppfyllt þegar hluthafi fær hlutdeildarskírteini í stað hlutabréfs í hlutdeildarskírteinissjóði við slit á hlutafélaginu. Í fimmta lagi er lagt til að 3.–5. málsl. 4. mgr. 1. tölul. B-liðar l. mgr. 30. gr. eigi við um sölu og innlausn hlutdeildarskírteinis líkt og um hlutabréf væri að ræða.

Um 2. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.


Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 75/1981,
um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

    Frumvarp þetta gerir ráð fyrir að þeir sem fengið hafa lækkun á tekjuskatti vegna kaupa á hlut í hlutabréfasjóðum geti fært eignarhlut sinn yfir í svonefnda hlutdeildarskírteinissjóði án þess að skattalegar ívilnanir skerðist. Tilgangur frumvarpsins sem er lagt fram í tengslum við frumvarp til laga um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði er að greiða fyrir yfirfærslu á eignarhlutum úr hlutabréfasjóðum í hlutdeildarskírteinissjóði þegar hlutabréfasjóðnum er slitið þar sem síðarnefndu sjóðirnir eru undir strangara eftirliti stjórnvalda og þykja stuðla að betri neytendavernd. Ekki er ástæða til að ætla að lögfesting frumvarpsins hafi áhrif á útgjöld ríkissjóðs.