Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 612. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 975 — 612. mál.
um breyting á lögum um lögmenn, nr. 77 15. júní 1998.
Lög þessi fjalla um réttindi og skyldur þeirra sem hlotið hafa réttindi til að flytja mál fyrir opinberum dómstólum og veita réttaraðstoð og lögfræðiþjónustu undir heitinu lögmaður. Með lögmanni er í lögum þessum átt við þann sem hefur leyfi til að vera hæstaréttarlögmaður eða héraðsdómslögmaður. Lögin taka einnig, eftir því sem við á, til erlendra lögmanna sem starfa hér á landi undir starfsheiti heimalands síns í samræmi við tilskipanir Evrópusambandsins. Dómsmálaráðherra setur nánari reglur um skráningu, skyldur, réttindi og störf slíkra lögmanna hér á landi, þ.m.t. um þátttöku í félagi um rekstur lögmannsþjónustu.
Í tengslum við Lögmannafélag Íslands skal starfa sjálfstæð úrskurðarnefnd lögmanna sem leysir úr málum eftir ákvæðum þessara laga og á það einnig við um mál er varða erlenda lögmenn sem heimild hafa til að veita þjónustu hér á landi.
a. 4. tölul. 1. mgr. orðast svo: hefur lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi frá lagadeild háskóla sem viðurkenndur er hér á landi samkvæmt lögum um háskóla.
b. Við greinina bætist ný málsgrein er orðast svo:
Erlendum lögmönnum sem skráðir eru hér á landi í samræmi við ákvæði 1. mgr. 1. gr. og starfað hafa reglubundið hér á landi í þrjú ár undir lögmannsheiti heimalands síns má veita héraðsdómslögmannsréttindi, sbr. 10. gr. tilskipunar 98/5/EB. Dómsmálaráðherra setur nánari reglur um veitingu réttindanna.
Það varðar sektum að nota starfsheiti erlendra lögmanna sem greind eru í reglum sem dómsmálaráðherra setur skv. 1. mgr. 1. gr. án þess að hafa hlotið tilskilið starfsleyfi í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Frumvarp þetta er unnið í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Þær breytingar sem í frumvarpinu felast taka fyrst og fremst til breytinga sem nauðsynlegar teljast vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á VII. viðauka við EES-samninginn um að fella inn í hann tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 98/5 frá 16. febrúar 1998, um að auðvelda lögmönnum að starfa til frambúðar í öðru aðildarríki en þar sem þeir hlutu starfsmenntun sína og hæfi. Var ákvörðun nefndarinnar tekin með stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu Íslands, Noregs og Liechtenstein en þeim fyrirvara hefur nú verið aflétt í öllum löndunum og tekur tilskipunin gildi 1. mars nk. Tilgangur þessarar tilskipunar er að gera lögmönnum kleift að starfa í öðru aðildarríki en þar sem þeir fengu starfsréttindi sín undir starfsheiti heimalands síns og einnig að auðvelda þeim að fá starfsheiti gistiríkisins. Þessum lögmönnum er skylt að skrá sig í gistiríkinu auk þess að vera áfram skráðir í heimalandi sínu og þeir skulu lúta lögum, siðareglum og viðurlögum sem í gistiríkinu gilda. Þær breytingar sem nauðsynlegt þykir að gera á lögum um lögmenn vegna upptöku þessarar tilskipunar í EES-samninginn snúa fyrst og fremst að því að hafa ákvæði í lögum um lögmenn um að lögin taki einnig til þeirra lögmanna sem hér hafa rétt til að starfa á grundvelli tilskipana Evrópusambandsins og að veita dómsmálaráðherra heimild til að setja reglur um skráningu, skyldur, réttindi og störf þessara lögmanna í samræmi við þessar tilskipanir.
Að öðru leyti snúa breytingar þær sem í frumvarpinu felast að þeim skilyrðum sem þeir þurfa að uppfylla sem óska eftir réttindum til að vera héraðsdómslögmaður. Er lagt til að það sé ekki lengur skilyrði að viðkomandi hafi lokið embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands heldur skuli viðkomandi hafa lokið embættis- eða meistaraprófi í lögfræði frá lagadeild háskóla sem viðurkenndur er hér á landi samkvæmt lögum um háskóla.
Þá er lögð til sú breyting á 6. gr. að við bætist ný málsgrein þar sem tekið verði fram að þeim lögmönnum sem skráðir eru hér á landi í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins 98/5 megi veita héraðsdómslögmannsréttindi þegar þeir hafa starfað hér reglubundið í þrjú ár í samræmi við 10. gr. tilskipunarinnar og jafnframt að dómsmálaráðherra setji nánari reglur um veitingu réttindanna.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 975 — 612. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum um lögmenn, nr. 77 15. júní 1998.
(Lagt fyrir Alþingi á 128. löggjafarþingi 2002–2003.)
1. gr.
Lög þessi fjalla um réttindi og skyldur þeirra sem hlotið hafa réttindi til að flytja mál fyrir opinberum dómstólum og veita réttaraðstoð og lögfræðiþjónustu undir heitinu lögmaður. Með lögmanni er í lögum þessum átt við þann sem hefur leyfi til að vera hæstaréttarlögmaður eða héraðsdómslögmaður. Lögin taka einnig, eftir því sem við á, til erlendra lögmanna sem starfa hér á landi undir starfsheiti heimalands síns í samræmi við tilskipanir Evrópusambandsins. Dómsmálaráðherra setur nánari reglur um skráningu, skyldur, réttindi og störf slíkra lögmanna hér á landi, þ.m.t. um þátttöku í félagi um rekstur lögmannsþjónustu.
2. gr.
3. gr.
Í tengslum við Lögmannafélag Íslands skal starfa sjálfstæð úrskurðarnefnd lögmanna sem leysir úr málum eftir ákvæðum þessara laga og á það einnig við um mál er varða erlenda lögmenn sem heimild hafa til að veita þjónustu hér á landi.
4. gr.
a. 4. tölul. 1. mgr. orðast svo: hefur lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi frá lagadeild háskóla sem viðurkenndur er hér á landi samkvæmt lögum um háskóla.
b. Við greinina bætist ný málsgrein er orðast svo:
Erlendum lögmönnum sem skráðir eru hér á landi í samræmi við ákvæði 1. mgr. 1. gr. og starfað hafa reglubundið hér á landi í þrjú ár undir lögmannsheiti heimalands síns má veita héraðsdómslögmannsréttindi, sbr. 10. gr. tilskipunar 98/5/EB. Dómsmálaráðherra setur nánari reglur um veitingu réttindanna.
5. gr.
Það varðar sektum að nota starfsheiti erlendra lögmanna sem greind eru í reglum sem dómsmálaráðherra setur skv. 1. mgr. 1. gr. án þess að hafa hlotið tilskilið starfsleyfi í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins.
6. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er unnið í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Þær breytingar sem í frumvarpinu felast taka fyrst og fremst til breytinga sem nauðsynlegar teljast vegna ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á VII. viðauka við EES-samninginn um að fella inn í hann tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 98/5 frá 16. febrúar 1998, um að auðvelda lögmönnum að starfa til frambúðar í öðru aðildarríki en þar sem þeir hlutu starfsmenntun sína og hæfi. Var ákvörðun nefndarinnar tekin með stjórnskipulegum fyrirvara af hálfu Íslands, Noregs og Liechtenstein en þeim fyrirvara hefur nú verið aflétt í öllum löndunum og tekur tilskipunin gildi 1. mars nk. Tilgangur þessarar tilskipunar er að gera lögmönnum kleift að starfa í öðru aðildarríki en þar sem þeir fengu starfsréttindi sín undir starfsheiti heimalands síns og einnig að auðvelda þeim að fá starfsheiti gistiríkisins. Þessum lögmönnum er skylt að skrá sig í gistiríkinu auk þess að vera áfram skráðir í heimalandi sínu og þeir skulu lúta lögum, siðareglum og viðurlögum sem í gistiríkinu gilda. Þær breytingar sem nauðsynlegt þykir að gera á lögum um lögmenn vegna upptöku þessarar tilskipunar í EES-samninginn snúa fyrst og fremst að því að hafa ákvæði í lögum um lögmenn um að lögin taki einnig til þeirra lögmanna sem hér hafa rétt til að starfa á grundvelli tilskipana Evrópusambandsins og að veita dómsmálaráðherra heimild til að setja reglur um skráningu, skyldur, réttindi og störf þessara lögmanna í samræmi við þessar tilskipanir.
Að öðru leyti snúa breytingar þær sem í frumvarpinu felast að þeim skilyrðum sem þeir þurfa að uppfylla sem óska eftir réttindum til að vera héraðsdómslögmaður. Er lagt til að það sé ekki lengur skilyrði að viðkomandi hafi lokið embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands heldur skuli viðkomandi hafa lokið embættis- eða meistaraprófi í lögfræði frá lagadeild háskóla sem viðurkenndur er hér á landi samkvæmt lögum um háskóla.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Þá er lögð til sú breyting á 6. gr. að við bætist ný málsgrein þar sem tekið verði fram að þeim lögmönnum sem skráðir eru hér á landi í samræmi við tilskipun Evrópusambandsins 98/5 megi veita héraðsdómslögmannsréttindi þegar þeir hafa starfað hér reglubundið í þrjú ár í samræmi við 10. gr. tilskipunarinnar og jafnframt að dómsmálaráðherra setji nánari reglur um veitingu réttindanna.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 77/1998, um lögmenn.