Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 629. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1013  —  629. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um langtímameðferðarheimili og neyðarvistun.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hve margir eru á biðlistum eftir vistun á langtímameðferðarheimilum á vegum ráðuneytisins og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar í því sambandi?
     2.      Hvenær verður ráðist í fyrirhugaða stækkun neyðarvistunaraðstöðu á Stuðlum?