Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 530. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1021 — 530. mál.
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um mótmæli gegn Kárahnjúkavirkjun erlendis frá.
1. Hafa ráðherra borist mótmæli frá náttúruverndarsamtökum eða annars konar samtökum erlendis frá gegn fyrirhuguðum framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun? Ef svo er, frá hvaða samtökum? Komi fram í mótmælunum hversu margir einstaklingar standi að baki viðkomandi samtökum er óskað eftir að það sé tilgreint í svarinu.
Iðnaðarráðherra hafa borist mótmæli frá einum erlendum samtökum. Er það frá The British Association for Shooting and Conservation (BASC). Ekki kemur fram í bréfi samtakanna hversu margir aðilar standa að samtökunum en á heimasíðu samtakanna má sjá að þeir eru um 120.000.
2. Hafa ráðherra borist mótmæli frá einstaklingum erlendis frá gegn framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun? Ef svo er, frá hversu mörgum og hverrar þjóðar hafa mótmælendur verið?
Ráðuneytinu hafa borist vel á annað þúsund mótmælasendingar á undanförnum mánuðum. Þar af eru langflest í formi tölvupósts, fjöldasendingar sem einnig hafa borist öðrum ráðuneytum. Ekki er hægt að greina frá hvaða löndum þær koma. Aðrar mótmælasendingar eru samtals átta og skiptast þannig að ein er frá Bretlandi, fjórar frá Þýskalandi, tvær frá Bandaríkjunum og ein frá Hollandi.
3. Hafa Landsvirkjun borist mótmæli erlendis frá gegn fyrirhuguðum framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun frá samtökum eða einstaklingum? Sé svo, er óskað eftir sömu upplýsingum og í 1. og 2. lið.
Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun hafa fyrirtækinu á undanförnum tveimur árum borist eftirtalin mótmælabréf erlendis frá vegna Kárahnjúkavirkjunar:
Frá tvennum samtökum, þ.e. The British Association for Shooting and Conservation, sem ekki tiltekur fjölda félagsmanna, og Eurobirder – Proact Team sem hefur sent tvö bréf, hið fyrra með nöfnum 95 einstaklinga, hið síðara með 232 nöfnum.
Frá 33 einstaklingum. Landsvirkjun hefur svarað þessum bréfum og gefið viðkomandi nánari upplýsingar um málavexti og að mati fyrirtækisins hafa viðbrögð, sem borist hafa frá andmælendum, verið jákvæð.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1021 — 530. mál.
Svar