Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 521. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1023  —  521. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 138/1994, um einkahlutafélög, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jón Ögmund Þormóðsson frá viðskiptaráðuneytinu. Jafnframt bárust nefndinni umsagnir um málið frá Samtökum iðnaðarins, Félagi löggiltra endurskoðenda og Verslunarráði Íslands.
    Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um einkahlutafélög sem miða að því að einfalda og minnka kostnað við slit einkahlutafélaga. Jafnframt eru lagðar til breytingar á ákvæðum sem snerta ársreikninga vegna þróunar í löggjöf um þá.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Gunnar Birgisson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 20. febr. 2003.



Einar K. Guðfinnsson,


form., frsm.


Kristinn H. Gunnarsson.


Árni R. Árnason.



Hjálmar Árnason.


Adolf H. Berndsen.


Jóhanna Sigurðardóttir.



Össur Skarphéðinsson.


Ögmundur Jónasson.