Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 509. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1061 — 509. mál.
um heimild til samninga um álverksmiðju í Reyðarfirði.
Samningarnir skulu kveða á um þær skuldbindingar af hálfu ríkisins, Alcoa Inc., félagsins og eigenda þess sem kunna að þykja nauðsynlegar og viðeigandi fyrir félagið, eigendurna og starfsemina, þ.m.t. framkvæmd á ákvæðum laga þessara. Í slíkum samningum skal ákveðið hversu lengi ákvæði þeirra skuli gilda og skulu þau eigi gilda skemur en í 20 ár frá stofnun Fjarðaáls sf.
Fjárfestingarsamningur sá sem iðnaðarráðherra undirritar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar samkvæmt lögum þessum um meginatriði verkefnisins skal birtur í B-deild Stjórnartíðinda.
Starfsemi félagsins og eigendanna skal vera í samræmi við íslensk lög og reglugerðir eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum.
Félagið og eigendurnir skulu undanþegnir ákvæðum 2. og 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1966, um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, sem setja þau skilyrði að eigendur sameignarfélags skuli allir vera íslenskir ríkisborgarar eða með lögheimili á Íslandi samfellt í a.m.k. fimm ár.
Félagið skal undanþegið ákvæðum laga nr. 48/1994, um brunatryggingar, eða ákvæðum síðari laga um sameiginlega skyldutryggingu húseigna, enda tryggi félagið eignir sínar með öðrum hætti sem telst venjulegur og viðtekinn er í álframleiðslu. Ákvæði laga nr. 55/1992, um Viðlagatryggingu Íslands, skulu ekki eiga við félagið. Félagið skal viðhalda viðlagatryggingu sem er venjuleg og viðtekin í álframleiðslu.
Þrátt fyrir ákvæði laga nr. 62/1973, um jöfnun flutningskostnaðar á sementi, skal ekki leggja flutningsjöfnunargjald á sement sem flutt er til landsins eða framleitt innan lands og notað er til byggingarframkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og álverksmiðju í Reyðarfirði. Flutningsjöfnunarsjóður greiðir ekki flutningskostnað á sementi til þeirra nota.
1. Þrátt fyrir breytingar, sem síðar kunna að verða á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með áorðnum breytingum, skulu eigendurnir greiða 18% tekjuskatt með eftirfarandi sérákvæðum:
a. Ef tekjuskattshlutfall á félög með takmarkaðri ábyrgð, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 75/1981, er lægra en 18% á þeim degi sem afhending raforku fer fram að fullu skal það hlutfall gilda um eigendurna. Verði tekjuskattshlutfallið hækkað að nýju skal það gilda um eigendurna en skal þó aldrei vera hærra en 18%.
b. Félaginu skal heimilt að draga frá skattskyldum tekjum á hverju ári eftirstöðvar rekstrartapa frá síðustu níu almanaksárum með þeim skilyrðum sem fram koma í 8. tölul. 1. mgr. 31. gr. laga nr. 75/1981. Ef íslenskum fyrirtækjum verður heimilað að draga eftirstöðvar rekstrartapa fleiri ára frá skattskyldum tekjum þar til afhending raforku fer fram að fullu skal það sama gilda um félagið. Verði árunum fækkað síðar skal það sama gilda um félagið, þó þannig að því skal ávallt heimilt að draga frá skattskyldum tekjum eftirstöðvar rekstrartapa síðustu níu almanaksára.
c. Fastafjármunir vegna byggingar álverksmiðjunnar skulu teljast byggingar, vélar og tæki í ákveðnum hlutföllum sem samið verður um. Fastafjármunir, sem að öðru leyti er aflað vegna viðhalds eða endurbóta á álverksmiðjunni, skulu flokkaðir í samræmi við 32. og 38. gr. laga nr. 75/1981. Fyrningu skal hagað í samræmi við 4. tölul. þessarar greinar.
2. Eigendurnir skulu undanþegnir eignarskatti skv. 1. mgr. 84. gr. laga nr. 75/1981.
3. Félagið skal undanþegið iðnaðarmálagjaldi samkvæmt lögum nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald, með áorðnum breytingum, og markaðsgjaldi samkvæmt lögum nr. 160/ 2002, um útflutningsaðstoð, sem og sköttum eða gjöldum sömu eða að verulegu leyti svipaðrar tegundar sem síðar kynnu að verða lögð á til viðbótar eða í staðinn fyrir iðnaðarmálagjald.
4. Á því ári þegar nýjar eignir eru teknar í notkun getur félagið valið að fyrna þær í hlutfalli við notkun á árinu í stað fullrar árlegrar fyrningar skv. 33. gr. laga nr. 75/1981. Þrátt fyrir ákvæði 34. og 45. gr. laga nr. 75/1981 skal félaginu heimilt að fyrna eignir sínar að fullu.
5. Í stað fasteignaskatts skv. II. kafla laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, með áorðnum breytingum, sem og skatta eða gjalda sömu eða að verulegu leyti svipaðrar tegundar sem síðar kynnu að verða lögð á til viðbótar eða í staðinn fyrir fasteignaskatt, skal félagið greiða Fjarðabyggð fasteignaskatt sem skal vera 1% af 255 milljónum bandaríkjadala á meðalgengi fyrstu sex mánaða ársins 2007, sem er áætlað verðmæti lóðar, bygginga, athafnasvæðis og mannvirkja innan lóðar og hafnarsvæðis sem þarf vegna framleiðslugetu sem nemur allt að 322.000 tonna álframleiðslu á ári, sem breytist í samræmi við breytingar á byggingarvísitölu og tilteknar aðrar viðmiðanir sem nánar skal fjallað um í fjárfestingarsamningi.
6. Félagið skal undanþegið gatnagerðargjaldi samkvæmt lögum nr. 17/1996, um gatnagerðargjald, vegna framleiðslugetu sem nemur allt að 322.000 tonnum á ári eða öðrum sköttum eða gjöldum í stað gatnagerðargjalds.
7. Með samningum, sem gerðir verða innan ramma laga þessara, má ákveða að Fjarðaál sf. skuli greiða umsamda fjárhæð til Fjarðabyggðar í stað byggingarleyfisgjalds samkvæmt skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997, og umsamda fjárhæð til ríkissjóðs í stað skipulagsgjalds samkvæmt lögum nr. 73/1997.
8. Stimpilgjöld, sbr. lög nr. 36/1978, um stimpilgjald, skulu vera 0,15% af kaup- eða leigusamningum sem útgefnir eru eða gerðir af hálfu félagsins og eigenda þess og af fjárfestingarlánum sem félagið og eigendurnir kunna að taka í sambandi við byggingu álverksmiðjunnar og hafnarbúnaðar, sem og af öllum stimpilskyldum skjölum sem nauðsynleg eru í sambandi við stofnun félagsins. Lán, sem tekin eru til endurfjármögnunar fjárfestingarlána, sem og hlutabréf í félögum eigendanna, skulu undanþegin stimpilgjaldi.
9. Félagið og eigendurnir skulu undanþegnir ákvæðum 1. og 4. tölul. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.
10. Þrátt fyrir ákvæði 2. tölul. 71. gr. laga nr. 75/1981 skal 5% tekjuskattur lagður á arð sem greiddur er hluthöfum í félögum eigendanna að því tilskildu að þeir séu búsettir í OECD-ríki og að 25% af hlutafé í félaginu séu í eigu hluthafans á skattári fyrir greiðslu arðs.
11. Ákvæði laga nr. 75/1981, með áorðnum breytingum, um frádrátt vaxtakostnaðar, svo sem þau eru við undirritun samninganna, skulu haldast óbreytt á upphaflegum gildistíma samningsins.
12. Hafnarsjóði Fjarðabyggðar er heimilt að gera sérstakan samning um vörugjöld með öðrum hætti en fram kemur í hafnalögum, nr. 23/1994, með síðari breytingum, sbr. hafnareglugerð og hafnagjaldskrá sem settar eru á grundvelli þeirra.
Í fjárfestingarsamningi er heimilt að kveða á um að skattar eða gjöld verði ekki lögð á raforkunotkun félagsins og útblástur lofttegunda eða aðra losun úrgangsefna, nema slíkir skattar og gjöld séu lögð með almennum hætti á öll önnur fyrirtæki hér á landi, þ.m.t. álfyrirtæki.
Í fjárfestingarsamningi er heimilt með tilliti til skattlagningar að semja um reglur og viðmiðanir er lúta að viðskiptum félagsins og eigendanna við Alcoa Inc. og fyrirtæki í eignatengslum við Alcoa Inc. Í því efni er m.a. heimilt að byggja á meginreglum verðlagningar óskyldra aðila samkvæmt reglum OECD.
Almenn ákvæði íslenskra laga um tekjuskatt, virðisaukaskatt og gjöld sem sveitarfélög leggja á og í gildi eru á hverjum tíma og varða skattframtal, framtalsfrest, álagningu, endurskoðun, endurálagningu, innheimtu, gjalddaga og greiðslu, sem og aðrar uppgjörsreglur varðandi tekjuskatt, virðisaukaskatt og gjöld sem sveitarfélög leggja á, auk andmæla og ágreinings í tengslum við þau, skulu gilda um félagið og eigendurna.
Á samningstímanum geta félagið og eigendurnir valið að almenn ákvæði íslenskra skattalaga, eins og þau eru á hverjum tíma, gildi. Beiðni um slíka breytingu skal gerð með skriflegri tilkynningu sem lögð skal fram eigi síðar en 1. júní árið áður en breytingarnar eiga að taka gildi.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1061 — 509. mál.
Frumvarp til laga
um heimild til samninga um álverksmiðju í Reyðarfirði.
(Eftir 2. umr., 3. mars.)
1. gr.
Heimild.
Samningarnir skulu kveða á um þær skuldbindingar af hálfu ríkisins, Alcoa Inc., félagsins og eigenda þess sem kunna að þykja nauðsynlegar og viðeigandi fyrir félagið, eigendurna og starfsemina, þ.m.t. framkvæmd á ákvæðum laga þessara. Í slíkum samningum skal ákveðið hversu lengi ákvæði þeirra skuli gilda og skulu þau eigi gilda skemur en í 20 ár frá stofnun Fjarðaáls sf.
Fjárfestingarsamningur sá sem iðnaðarráðherra undirritar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar samkvæmt lögum þessum um meginatriði verkefnisins skal birtur í B-deild Stjórnartíðinda.
Starfsemi félagsins og eigendanna skal vera í samræmi við íslensk lög og reglugerðir eins og nánar er kveðið á um í lögum þessum.
2. gr.
Verkefnið.
3. gr.
Ábyrgðir ríkisstjórnarinnar.
4. gr.
Undanþágur frá lögum.
Félagið og eigendurnir skulu undanþegnir ákvæðum 2. og 4. tölul. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 19/1966, um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, sem setja þau skilyrði að eigendur sameignarfélags skuli allir vera íslenskir ríkisborgarar eða með lögheimili á Íslandi samfellt í a.m.k. fimm ár.
Félagið skal undanþegið ákvæðum laga nr. 48/1994, um brunatryggingar, eða ákvæðum síðari laga um sameiginlega skyldutryggingu húseigna, enda tryggi félagið eignir sínar með öðrum hætti sem telst venjulegur og viðtekinn er í álframleiðslu. Ákvæði laga nr. 55/1992, um Viðlagatryggingu Íslands, skulu ekki eiga við félagið. Félagið skal viðhalda viðlagatryggingu sem er venjuleg og viðtekin í álframleiðslu.
Þrátt fyrir ákvæði laga nr. 62/1973, um jöfnun flutningskostnaðar á sementi, skal ekki leggja flutningsjöfnunargjald á sement sem flutt er til landsins eða framleitt innan lands og notað er til byggingarframkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og álverksmiðju í Reyðarfirði. Flutningsjöfnunarsjóður greiðir ekki flutningskostnað á sementi til þeirra nota.
5. gr.
Fyrirtækjafyrirkomulag og eignarhald.
6. gr.
Skattlagning.
1. Þrátt fyrir breytingar, sem síðar kunna að verða á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með áorðnum breytingum, skulu eigendurnir greiða 18% tekjuskatt með eftirfarandi sérákvæðum:
a. Ef tekjuskattshlutfall á félög með takmarkaðri ábyrgð, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 75/1981, er lægra en 18% á þeim degi sem afhending raforku fer fram að fullu skal það hlutfall gilda um eigendurna. Verði tekjuskattshlutfallið hækkað að nýju skal það gilda um eigendurna en skal þó aldrei vera hærra en 18%.
b. Félaginu skal heimilt að draga frá skattskyldum tekjum á hverju ári eftirstöðvar rekstrartapa frá síðustu níu almanaksárum með þeim skilyrðum sem fram koma í 8. tölul. 1. mgr. 31. gr. laga nr. 75/1981. Ef íslenskum fyrirtækjum verður heimilað að draga eftirstöðvar rekstrartapa fleiri ára frá skattskyldum tekjum þar til afhending raforku fer fram að fullu skal það sama gilda um félagið. Verði árunum fækkað síðar skal það sama gilda um félagið, þó þannig að því skal ávallt heimilt að draga frá skattskyldum tekjum eftirstöðvar rekstrartapa síðustu níu almanaksára.
c. Fastafjármunir vegna byggingar álverksmiðjunnar skulu teljast byggingar, vélar og tæki í ákveðnum hlutföllum sem samið verður um. Fastafjármunir, sem að öðru leyti er aflað vegna viðhalds eða endurbóta á álverksmiðjunni, skulu flokkaðir í samræmi við 32. og 38. gr. laga nr. 75/1981. Fyrningu skal hagað í samræmi við 4. tölul. þessarar greinar.
2. Eigendurnir skulu undanþegnir eignarskatti skv. 1. mgr. 84. gr. laga nr. 75/1981.
3. Félagið skal undanþegið iðnaðarmálagjaldi samkvæmt lögum nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald, með áorðnum breytingum, og markaðsgjaldi samkvæmt lögum nr. 160/ 2002, um útflutningsaðstoð, sem og sköttum eða gjöldum sömu eða að verulegu leyti svipaðrar tegundar sem síðar kynnu að verða lögð á til viðbótar eða í staðinn fyrir iðnaðarmálagjald.
4. Á því ári þegar nýjar eignir eru teknar í notkun getur félagið valið að fyrna þær í hlutfalli við notkun á árinu í stað fullrar árlegrar fyrningar skv. 33. gr. laga nr. 75/1981. Þrátt fyrir ákvæði 34. og 45. gr. laga nr. 75/1981 skal félaginu heimilt að fyrna eignir sínar að fullu.
5. Í stað fasteignaskatts skv. II. kafla laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, með áorðnum breytingum, sem og skatta eða gjalda sömu eða að verulegu leyti svipaðrar tegundar sem síðar kynnu að verða lögð á til viðbótar eða í staðinn fyrir fasteignaskatt, skal félagið greiða Fjarðabyggð fasteignaskatt sem skal vera 1% af 255 milljónum bandaríkjadala á meðalgengi fyrstu sex mánaða ársins 2007, sem er áætlað verðmæti lóðar, bygginga, athafnasvæðis og mannvirkja innan lóðar og hafnarsvæðis sem þarf vegna framleiðslugetu sem nemur allt að 322.000 tonna álframleiðslu á ári, sem breytist í samræmi við breytingar á byggingarvísitölu og tilteknar aðrar viðmiðanir sem nánar skal fjallað um í fjárfestingarsamningi.
6. Félagið skal undanþegið gatnagerðargjaldi samkvæmt lögum nr. 17/1996, um gatnagerðargjald, vegna framleiðslugetu sem nemur allt að 322.000 tonnum á ári eða öðrum sköttum eða gjöldum í stað gatnagerðargjalds.
7. Með samningum, sem gerðir verða innan ramma laga þessara, má ákveða að Fjarðaál sf. skuli greiða umsamda fjárhæð til Fjarðabyggðar í stað byggingarleyfisgjalds samkvæmt skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997, og umsamda fjárhæð til ríkissjóðs í stað skipulagsgjalds samkvæmt lögum nr. 73/1997.
8. Stimpilgjöld, sbr. lög nr. 36/1978, um stimpilgjald, skulu vera 0,15% af kaup- eða leigusamningum sem útgefnir eru eða gerðir af hálfu félagsins og eigenda þess og af fjárfestingarlánum sem félagið og eigendurnir kunna að taka í sambandi við byggingu álverksmiðjunnar og hafnarbúnaðar, sem og af öllum stimpilskyldum skjölum sem nauðsynleg eru í sambandi við stofnun félagsins. Lán, sem tekin eru til endurfjármögnunar fjárfestingarlána, sem og hlutabréf í félögum eigendanna, skulu undanþegin stimpilgjaldi.
9. Félagið og eigendurnir skulu undanþegnir ákvæðum 1. og 4. tölul. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.
10. Þrátt fyrir ákvæði 2. tölul. 71. gr. laga nr. 75/1981 skal 5% tekjuskattur lagður á arð sem greiddur er hluthöfum í félögum eigendanna að því tilskildu að þeir séu búsettir í OECD-ríki og að 25% af hlutafé í félaginu séu í eigu hluthafans á skattári fyrir greiðslu arðs.
11. Ákvæði laga nr. 75/1981, með áorðnum breytingum, um frádrátt vaxtakostnaðar, svo sem þau eru við undirritun samninganna, skulu haldast óbreytt á upphaflegum gildistíma samningsins.
12. Hafnarsjóði Fjarðabyggðar er heimilt að gera sérstakan samning um vörugjöld með öðrum hætti en fram kemur í hafnalögum, nr. 23/1994, með síðari breytingum, sbr. hafnareglugerð og hafnagjaldskrá sem settar eru á grundvelli þeirra.
Í fjárfestingarsamningi er heimilt að kveða á um að skattar eða gjöld verði ekki lögð á raforkunotkun félagsins og útblástur lofttegunda eða aðra losun úrgangsefna, nema slíkir skattar og gjöld séu lögð með almennum hætti á öll önnur fyrirtæki hér á landi, þ.m.t. álfyrirtæki.
Í fjárfestingarsamningi er heimilt með tilliti til skattlagningar að semja um reglur og viðmiðanir er lúta að viðskiptum félagsins og eigendanna við Alcoa Inc. og fyrirtæki í eignatengslum við Alcoa Inc. Í því efni er m.a. heimilt að byggja á meginreglum verðlagningar óskyldra aðila samkvæmt reglum OECD.
Almenn ákvæði íslenskra laga um tekjuskatt, virðisaukaskatt og gjöld sem sveitarfélög leggja á og í gildi eru á hverjum tíma og varða skattframtal, framtalsfrest, álagningu, endurskoðun, endurálagningu, innheimtu, gjalddaga og greiðslu, sem og aðrar uppgjörsreglur varðandi tekjuskatt, virðisaukaskatt og gjöld sem sveitarfélög leggja á, auk andmæla og ágreinings í tengslum við þau, skulu gilda um félagið og eigendurna.
Á samningstímanum geta félagið og eigendurnir valið að almenn ákvæði íslenskra skattalaga, eins og þau eru á hverjum tíma, gildi. Beiðni um slíka breytingu skal gerð með skriflegri tilkynningu sem lögð skal fram eigi síðar en 1. júní árið áður en breytingarnar eiga að taka gildi.
7. gr.
Reikningsskilareglur.
8. gr.
Lögsaga og lausn deilumála.
9. gr.
Innflutningur og útflutningur.
10. gr.
Framsal.
11. gr.
Gildistaka.