Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 221. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1094 — 221. mál.
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ingvarsdóttur um komur á sjúkrastofnanir vegna heimilisofbeldis.
1. Hversu margar komur á sjúkrastofnanir eru skráðar vegna heimilisofbeldis, sundurliðað eftir aldri og kyni?
Leitað var til heilbrigðistölfræðideildar landlæknisembættisins til að fá svar við þessu. Landlæknisembættið hafði samband við slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss og slysaskrá til að nálgast tölur og upplýsingar. Erfitt er að ná upplýsingum um þetta úr reglubundinni skráningu á sjúkrastofnunum. Er það vegna þess að ekki er til sérstakur flokkur í skráningakerfinu sem tekur til heimilisofbeldis eingöngu en einnig að margir sem verða fyrir ofbeldi á heimili gera ekki grein fyrir raunverulegum ástæðum áverkanna við komu á sjúkrastofnun. Ísland fylgir alþjóðlegum stöðlum varðandi slysaskráningar og innlagnarástæður og gefa þeir því miður ekki færi á að sundurgreina ástæður áverka eins og þyrfti til að svara fyrirspurninni. Ráðuneytið getur því ekki í raun svarað henni en leitaði almennra upplýsinga um tíðni heimilisofbeldis hjá ýmsum sem safna upplýsingum um það.
Leitað var til Kvennaathvarfsins um frekari upplýsingar en þangað leita að meðaltali um 360 konur og 93 börn ár hvert.
Erlendar rannsóknir benda til að milli 25 og 30% kvenna séu beittar líkamlegu ofbeldi á ævinni. Erfitt að að fá fram raunsanna mynd af því að rannsóknaraðferðir eru annmörkum háðar og vandamálið mjög oft hulið.
Engin ítarleg samantekt hefur verið kynnt á síðustu árum á því hve alvarlegt eða algengt heimilisofbeldi er hér á landi. Fyrsta rannsóknin hérlendis var gerð árið 1982 og var þar unnið úr sjúkraskrám slysadeildar Borgarspítalans. Í ljós kom að 79 konur höfðu leitað til slysadeildar árið 1979 vegna ofbeldis sem þær höfðu verið beittar innan veggja heimilis.
Könnun slysadeildarlækna, sem náði yfir árin 1974–1991, benti til að 41% kvenna sem leituðu á slysavarðstofu með ofbeldisáverka hefðu orðið fyrir árás heima hjá sér. Á árunum 1998–2000 komu 417 konur á slysadeild vegna heimilisofbeldis, 355 þeirra urðu fyrir ofbeldi á heimili sínu en 62 á heimili gerenda.
Einstaklingar sem leita til neyðarmóttöku vegna nauðgunar voru 119 árið 2002, þar af tveir karlar.
Viðamesta rannsóknin á þessu efni hér á landi var gerð á vegum dómsmálaráðuneytisins árið 1997. Gerð var símakönnun og spurningalisti lagður fyrir 3.000 manna handahófsúrtak úr þjóðskrá. Niðurstöður bentu til að um 1.100 konur og 650 karlar væru beitt ofbeldi innan veggja heimilanna árið 1996.
Vorið 2001 gerðu nemendur í Háskóla Íslands, Áslaug Einarsdóttir og Guðmundur Á. Skarphéðinsson, athugun á konum sem leituðu til Kvennaathvarfs og ofbeldismönnum þeirra. Athugunin náði til 1.231 konu sem leitaði til Kvennaathvarfsins á árunum 1995–2000. Ofbeldið er flokkað í þrjá flokka, andlegt, líkamlegt og kynferðislegt. Aðeins hluti tveggja síðarnefndu flokkanna leitar til heilbrigðisþjónustunnar og enn færri þeirra sem verða fyrir andlegu ofbeldi. Um 63% ofbeldismannanna eiga við áfengis- og vímuefnavanda að glíma og þeir sem eru í neyslu vímuefna beita grófara ofbeldi. Gögnin sýna m.a. að aðeins um 10% kvenna í úrtakinu kæra ofbeldisverknað og því eru lögregluskýrslur heldur ekki góð heimild um umfang.
Ofbeldi gagnvart börnum er tvímælalaust vanskráð. Börn leita oft til heilbrigðisþjónustunnar í fylgd gerenda og stafar jafnvel ógn af því að veita upplýsingar. Skilgreiningar á því hvað er vanræksla og ofbeldi hafa verið til endurskoðunar og einnig ferli kæru og viðbragða. Nokkrar kannanir á umfangi hafa verið gerðar á síðustu árum en þær hafa ekki þótt gefa nægilega góðar vísbendingar. Sem dæmi má þó taka að árið 2002 komu 13 mæður til slysadeildar með meira en 25 börn sem voru beinir og óbeinir þolendur ofbeldis á heimilum. Slysadeild tilkynnti 127 mál til barnaverndaryfirvalda árið 2002 og var þar um vanrækslu eða ofbeldi að ræða.
Á næstunni mun ætlunin að endurskoða viðbrögð heilbrigðiskerfisins við ábendingum um ofbeldi gegn börnum og efla samstarf heilbrigðis- og barnaverndaryfirvalda hvað þetta varðar.
2. Hversu mörg dauðsföll á síðustu tíu árum má rekja til heimilisofbeldis?
Leitað var til Hagstofu Íslands til að fá svar við þessu. Því miður er enginn kóði sem segir nákvæmlega til um þetta, dánarorsakir eru ekki skráðar sem afleiðingar heimilisofbeldis sérstaklega. Því þyrfti að gera rannsókn til að fá fram rétta mynd af þessum fjölda, eða breyta skráningarkerfinu.
Þó liggur fyrir að sjö konur og 25 karlar létust á árunum 1981–98 af völdum líkamsáverka, en ekki liggja fyrir upplýsingar um hve stór hluti lést af völdum heimilisofbeldis. Það er þó athyglisvert að fimm af þessum konum létust á eigin lögheimili. Karlar sem deyja af völdum áverka deyja oftar utan heimilis en aðeins 10 af þessum 25 létust á eigin heimili.
Rétt er að minna á að hér er aðeins um vísbendingar að ræða og ekki er hægt að fullyrða neitt um hvort rekja megi þessi dauðsföll til heimilisofbeldis nema að undangenginni frekari skoðun.
Svar við þessari fyrirspurn sýnir að ekki liggi fyrir óyggjandi upplýsingar um umfang, alvöru og afleiðingar heimilisofbeldis hér á landi. Skráning í heilbrigðisþjónustunni gerir ekki ráð fyrir sérstökum flokkum fyrir þetta efni og upplýsingar Hagstofunnar ekki heldur.
Nauðsynlegt er að þróaðar verði aðferðir sem auka líkur á að þessar upplýsingar séu aðgengilegar á hverjum tíma, en þær gætu nýst við að styrkja aðgerðir gegn heimilisofbeldi.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1094 — 221. mál.
Svar