Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 574. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1127  —  574. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um framkvæmd laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof.

     1.      Hver er skilningur ráðherra á ákvæði 2. mgr. 14. gr. laganna að því er varðar ávinnslu orlofsréttinda, þ.m.t. réttar til orlofslauna við orlofstöku, og hver er skoðun ráðherra á framkvæmdinni?
     2.      Er munur á framkvæmd 2. mgr. 14. gr. laganna eftir því hvort um er að ræða launþega hjá hinu opinbera eða á almennum vinnumarkaði? Sé svo, telur ráðherra það eðlilegt og hvað þarf til að tryggja öllum sambærileg réttindi?
    Ákvæði 2. mgr. 14. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof er svohljóðandi: „Fæðingarorlof reiknast til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum, svo sem rétti til orlofstöku og lengingar orlofs samkvæmt kjarasamningum, starfsaldurshækkana, veikindaréttar, uppsagnarfrests og réttar til atvinnuleysisbóta.“ Ljóst er af orðalagi ákvæðisins að ekki er um tæmandi upptalningu að ræða, sbr. orðalagið „svo sem“. Enn fremur er tekið fram í athugasemdum með frumvarpinu sem varð að lögunum: „Hér er ekki um tæmandi talningu að ræða og er það gert með hliðsjón af því að menn kunna að semja um önnur réttindi síðar, svo sem námsleyfi.“ Má leiða að því líkur að gert hafi verið ráð fyrir því að fæðingarorlof reiknaðist til starfstíma við mat á þeim starfstengdu réttindum sem þegar hafi verið ákveðin í lögum á þeim tíma er frumvarpið varð að lögum. Ekki hefur verið talið ráðlegt að hafa upptalninguna í ákvæðinu tæmandi svo unnt væri að taka tillit til þeirra starfstengdu réttinda sem kæmu til síðar og gætu fallið undir ákvæðið.
    Á þeim tíma er lög um fæðingar- og foreldraorlof tóku gildi voru í gildi lög um orlof, nr. 30/1987, sem enn gilda. Ákvæði 1. gr. þeirra er svohljóðandi: „Allir þeir, sem starfa í þjónustu annarra gegn launum, hvort sem þau eru greidd í peningum eða öðrum verðmætum, eiga rétt á orlofi og orlofslaunum samkvæmt reglum þessara laga.“ Í lögunum er kveðið á um ávinnslu lágmarksorlofsréttar (tveir dagar fyrir hvern unnin mánuð) en í 7. gr. segir: „Launþegi á rétt til orlofslauna í samræmi við áunninn orlofsrétt á síðasta orlofsári.“ Í athugasemdum um 7. gr. segir m.a. að í ákvæðinu felist að „allur réttur til launa í orlofi verður í formi orlofslauna sem greiðast af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, nema til ráðningarslita komi, sbr. 8. gr.“
    Fyrir liggur að foreldrar ávinna sér rétt til orlofstöku í fæðingarorlofi samkvæmt orðanna hljóðan í 2. mgr. 14. gr. laga um fæðingar- og foreldrarorlof. Verður að ætla að um sé að ræða rétt til orlofstöku í skilningi laga um orlof. Með hliðsjón af framansögðu verður því ekki séð að unnt sé að undanskilja ávinnslu á rétti til greiðslna í orlofi sem foreldri ávinnur sér í fæðingarorlofi frá þeim starfstengdu réttindum sem fæðingarorlof skal reiknast til starfstíma við mat á.
    Þá kemur að því álitaefni hver sé vinnuveitandi (launagreiðandi) þegar foreldri er í fæðingarorlofi en allt frá árinu 1943 hafa lög um orlof gert ráð fyrir að sá vinnuveitandi, sem launamaður ávann sér rétt til orlofstökunnar hjá, greiði orlofslaunin. Í því sambandi má annars vegar benda á að í 29. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof er tekið fram að ráðningarsamband milli starfsmanns og vinnuveitanda haldist óbreytt í fæðingarorlofi. Er enn fremur er gert ráð fyrir að starfsmaður eigi rétt á að hverfa aftur að starfi sínu að loknu fæðingarorlofi. Hins vegar verður að hafa hliðsjón af því að Fæðingarorlofssjóður bætir foreldrum upp launamissi í fæðingarorlofi með greiðslum er nema 80% af launum þeirra. Enn fremur verður að horfa til þess að skv. 1. mgr. 14. gr. laganna hefur þótt ástæða til að Fæðingarorlofssjóður taki á sig greiðslu mótframlags vinnuveitanda til lífeyrissjóða meðan á fæðingarorlofi stendur. Þegar litið er til þessara atriða verður að telja að síðari atriðin vegi þyngra og líta verði á Fæðingarorlofssjóð sem ígildi launagreiðanda í tilvikum þegar um lögbundin starfstengd réttindi er að ræða.
    Í því skyni að meta hvernig reikna skuli þær orlofsgreiðslur sem foreldri á rétt til í fæðingarorlofi þótti ástæða til að kanna heimild félagsmálaráðherra skv. 10. gr. laga um orlof til að setja reglur um „útreikning orlofslauna launþega sem ekki taka laun beint frá atvinnurekanda sínum, heldur fá greitt í þjónustugjaldi eða á annan hátt sem er frábrugðinn venjulegum greiðslumáta launa“. Ákvæði þetta kom fram í fyrstu lögunum um orlof, nr. 16/1943. Þar segir í 5. gr.: „Nú tekur maður ekki kaup beint frá vinnuveitanda, heldur fær kaupið greitt t.d. með þjórfé að öllu leyti eða nokkru leyti, og skal upphæð orlofsfjár þá miðast við framtal tekna til skatts næsta ár á undan, eða áætlun skattanefndar um vinnutekjur, ef ekki var talið fram til skatts.“ Þótti ekki ástæða til að skýra ákvæðið nánar í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögunum. Í athugasemdum við frumvarp er varð að lögum nr. 87/1971, um orlof, kemur fram að gert sé ráð fyrir reglugerð um útreikning orlofsfjár þeirra sem ekki taka laun beint frá atvinnurekanda sínum, sbr. þjórfé o.fl., í stað ákvæðis 5. gr. laga nr. 16/1943. Umrætt ákvæði er óbreytt í lögum nr. 30/1987 frá eldri lögunum að því frátöldu að í stað orlofsfjár kom orðið orlofslaun.
    Þegar litið er til forsögu þessa ákvæðis hefur tilgangur þess ekki verið sá að reikna út orlofsgreiðslur vegna greiðslna í fæðingarorlofi enda hafa slíkar greiðslur komið til mun síðar. Engu síður virðist sem markmið ákvæðisins hafi verið að tryggja að launafólk fengi orlofsgreiðslur enda þótt það fengi ekki beinar launagreiðslur frá vinnuveitanda. Þykir það því renna enn frekari stoðum undir það að launamaður njóti greiðslna í orlofi sem hann hefur áunnið sér samkvæmt lögum, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 95/2000. Ráðherra hefur ekki sett reglur á grundvelli 10. gr. laga um orlof. Í ljósi þess að ákvæðið á samkvæmt orðanna hljóðan ekki við um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og að teknu tilliti til eðlis greiðslnanna verður að telja eðlilegra að líta til reiknireglu 2. mgr. 7. gr. sömu laga við útreikninga á orlofsgreiðslum vegna þeirra.
    Um fyrirkomulag orlofsgreiðslna vegna greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði verður enn fremur að teljast eðlilegt að sjóðurinn nýti sér heimild 8. gr. laga um orlof til að greiða orlofsgreiðslur með síðustu greiðslu í fæðingarorlofi en þar segir: „Ljúki ráðningarsamningi launþega og vinnuveitanda skal vinnuveitandi við lok ráðningartímans greiða launþeganum öll áunnin orlofslaun hans samkvæmt 2. mgr. 7. gr.“
    Í ljósi þess sem að framan er rakið er það álit ráðherra að ekki verði annað ráðið af lögum en að fæðingarorlof samkvæmt IV. kafla laga um fæðingar- og foreldraorlof teljist til starfstíma við mat á rétti til greiðslna í orlofi samhliða rétti til orlofstöku, sbr. lög um orlof. Ber því Fæðingarorlofssjóði að greiða foreldrum orlofslaun skv. 7. og 8. gr. laga um orlof, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, vegna þess tíma sem þeir eru í fæðingarorlofi og njóta greiðslna úr sjóðnum.

     3.      Hvernig hefur verið brugðist við þeirri kjaraskerðingu sem reikniregla 13. gr. laganna um greiðslur úr fæðingarorlofssjóði getur haft í för með sér samanborið við eldri lög, annars vegar hvað varðar starfsmenn hins opinbera og hins vegar starfsmenn á almenna vinnumarkaðnum?

    Greiðslur úr eldra kerfi fóru eftir 15. og 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum, ásamt reglugerðum sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setti með stoð í þeim lögum. Um var að ræða tvenns konar greiðslur. Annars vegar fæðingarstyrk sem greiddist móður við hverja fæðingu barns óháð því hvort hún var á vinnumarkaði eða ekki. Hins vegar var kveðið á um fæðingardagpeninga en rétt til þeirra áttu einungis foreldrar sem lögðu niður launuð störf í fæðingarorlofi. Var fjárhæð þeirra greiðslna misjöfn eftir starfshlutfalli foreldris. Fjárhæð þessara greiðslna svarar til lágmarksgreiðslna til þeirra foreldra sem eiga rétt á fæðingarorlofi skv. 8. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldrarorlof, ásamt greiðslum skv. 13. gr. sömu laga. Með lágmarksgreiðslum skv. 4. mgr. 13. gr. laganna var þannig tryggt að foreldrar á almennum vinnumarkaði öðluðust ekki lakari rétt samkvæmt gildandi kerfi en þeir hefðu samkvæmt eldra kerfi.
    Um fæðingarorlofsgreiðslur til kvenna sem höfðu starfað hjá hinu opinbera í samfellt sex mánuði fyrir fæðingu barns var í gildi reglugerð nr. 410/1989, um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Reglugerð þessi var sett með heimild í þágildandi lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 38/1954. Þar var kveðið á um að þær ættu rétt á dagvinnulaunum í þrjá mánuði og rétt til yfirvinnu- og álagsgreiðslna í þrjá mánuði. Lá því fyrir að hugsanlegt væri að einhverjar konur er störfuðu hjá hinu opinbera gætu orðið fyrir tekjutapi frá hinu eldra kerfi við það að núverandi kerfi væri komi á. Í því skyni að koma til móts við þessar konur var gert samkomulag milli Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Kennarasambands Íslands annars vegar og hins vegar fjármálaráðherra f.h. ríkisjóðs, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga um að settur væri á fót fjölskyldu- og styrktarsjóður í þeim tilgangi að greiða framangreindan mismun. Í þessu sambandi ber að hafa í huga að foreldrar fá 80% af meðaltali heildarlauna, óháð starfshlutfalli, í núverandi kerfi enda var markmið þess að röskun á tekjum heimilanna yrði sem minnst þegar foreldrar legðu niður störf vegna tilkomu nýs fjölskyldumeðlims sem þarfnaðist umönnunar þeirra. Ekki njóta því allar konur er starfa hjá ríkinu lakari réttar samkvæmt núverandi kerfi.

     4.      Má að öðru leyti finna einhvern mismun á réttindum launþega samkvæmt efni laganna eða framkvæmd þeirra eftir því hvort þeir starfa hjá hinu opinbera eða á almennum vinnumarkaði?
     5.      Sé um einhvern mismun að ræða samkvæmt framangreindu, hversu mikið fé má þá telja að þurfi til að eyða honum, sundurliðað eftir einstökum aðgerðum sem grípa þarf til, og hyggst ráðherra beita sér fyrir því að svo verði gert?

    Markmið laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldrarorlof, var m.a. að jafna rétt foreldra sem eru virkir þátttakendur á vinnumarkaði til fæðingarorlofs. Átti það bæði við um mæður og feður, þá sem starfa á almennum vinnumarkaði og þá sem starfa hjá hinu opinbera, þá sem vinna launuð störf í annarra þjónustu og þá sem eru sjálfstætt starfandi. Enginn greinarmunur er gerður á þessum hópum í lögunum samkvæmt orðanna hljóðan né heldur í framkvæmd á efni þeirra. Í þessu sambandi ber að taka fram að samtökum aðila vinnumarkaðarins er frjálst að semja um betri rétt til handa félagsmönnum sínum kjósi þau að gera slíkt. Verður ekki litið á framangreint samkomulag öðruvísi en að um sé að ræða samkomulag samtaka aðila vinnumarkaðarins á hinum opinbera vinnumarkaði.

     6.      Hversu margir hafa tekið fæðingarorlof frá því að lögin tóku gildi, skipt eftir kynjum
         og milli opinbera vinnumarkaðarins annars vegar og almenna markaðarins hins vegar?
    Í ljósi þess að enginn mismunur er í framkvæmd á því hvort foreldrar starfa á almenna vinnumarkaðinum eða hjá hinu opinbera er ekki unnt að greina milli þeirra í tölvukerfi Fæðingarorlofssjóðs. Tafla 1 sýnir fjölda foreldra sem hafa tekið fæðingarorlof á árunum 2001 og 2002 skipt eftir kyni. Enn fremur er unnt að sjá fjölda þeirra sem hafa kosið að taka fæðingarorlof sitt í einu lagi eða kosið að nýta sér þann sveigjanleika í töku orlofsins sem lögin heimila.

Tafla 1. Fjöldi foreldra sem hafa tekið fæðingarorlof árin 2001 og 2002,
skipt eftir kyni og tilhögun fæðingarorlofs.

Feður Mæður
Samfellt 2.220 4.311
Skipt 3.697 2.023
Samtals 5.917 6.334
Heimild: Fæðingarorlofssjóður.

     7.      Hversu langt fæðingarorlof hafa feður að meðaltali tekið á grundvelli laganna og er einhver munur á lengd fæðingarorlofs eftir því hvort í hlut eiga feður á almennum vinnumarkaði eða starfsmenn hins opinbera?
    Varðandi upplýsingar um sundurgreiningu á töku fæðingarorlofs feðra eftir því hvort þeir starfa á almenna vinnumarkaðinum eða hjá hinu opinbera er vísað til svars við 6. tölulið fyrirspurnarinnar. Tafla 2 sýnir hversu margir feður hafa tekið fæðingarorlof í styttri eða lengri tíma en sjálfstæður réttur þeirra er. Sýnir taflan einnig meðalfjölda þeirra daga sem feður tóku í fæðingarorlof.

Tafla 2. Fjöldi feðra sem hafa tekið styttra eða lengra fæðingarorlof en einstaklingsbundinn réttur þeirra var árin 2001 og 2002,
ásamt meðalfjölda fæðingarorlofsdaga.

Fjöldi innan tíu daga Fjöldi yfir grunnrétti Fjöldi undir grunnrétti Meðalfjöldi daga
Samfellt 2.059 210 293 44
Skipt 3.642 622 322 55
Samtals 5.701 832 615 51
Heimild: Fæðingarorlofssjóður.

    Eins og sjá má af töflu 2 eru þeir feður mun fleiri sem nýta sér sveigjanleikann í töku fæðingarorlofs en þeir sem taka fæðingarorlofið í einu lagi. Að meðaltali voru feður í 51 dag í fæðingarorlofi. Í því sambandi verður að taka tillit til þess að árið 2001 áttu feður sjálfstæðan rétt, sem ekki er framseljanlegur, til 30 daga fæðingarorlofs en það lengdist um einn mánuð árið 2002, eða upp í sem svarar til 60 daga. Töflur 3 og 4 sýna sömu upplýsingar og tafla 2, skipt eftir árum.

Tafla 3. Fjöldi feðra sem hafa tekið styttra eða lengra fæðingarorlof en einstaklingsbundinn réttur þeirra var árið 2001,
ásamt meðalfjölda fæðingarorlofsdaga.

Fjöldi innan tíu daga Fjöldi yfir grunnrétti Fjöldi undir grunnrétti Meðalfjöldi daga
Samfellt 1.222 123 50 35
Skipt 1.607 331 57 42
Samtals 2.829 454 107 39
Heimild: Fæðingarorlofssjóður .

Tafla 4. Fjöldi feðra sem hafa tekið styttra eða lengra fæðingarorlof en einstaklingsbundinn réttur þeirra var árið 2002,
ásamt meðalfjölda fæðingarorlofsdaga.

Fjöldi innan tíu daga Fjöldi yfir grunnrétti Fjöldi undir grunnrétti Meðalfjöldi daga
Samfellt 836 87 243 58
Skipt 2.034 289 266 67
Samtals 2.870 376 509 64
Heimild: Fæðingarorlofssjóður

    Þegar töflur 3 og 4 eru bornar saman kemur í ljós að fleiri feður tóku fæðingarorlof lengra en sjálfstæður réttur þeirra var árið 2001 en árið 2002. Skýrist þetta líklega af að fæðingarorlof feðra lengdist milli þessara ára. Fæðingarorlofsdögum feðra fjölgar þrátt fyrir þetta um 25 daga að meðaltali milli ára. Samt sem áður virðist meiri hluti feðra taka fæðingarorlof skemur en í tíu daga.

     8.      Hve margir foreldra utan vinnumarkaðar og í námi hafa fengið fæðingarstyrk árlega
         frá gildistöku laganna?

    Tafla 5 sýnir fjölda foreldra utan vinnumarkaðar og í námi sem hafa fengið fæðingarstyrk frá ársbyrjun 2001.

Tafla 5. Fjöldi foreldra sem hafa fengið fæðingarstyrk á árunum 2001
og 2002 skipt eftir kyni og tegund styrks.

Feður Mæður
Utan vinnumarkaðar 175 885
Í námi 393 871
Samtals 568 1.756
Heimild: Fæðingarorlofssjóður .