Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 632. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1147  —  632. mál.




Svar



samgönguráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers um sérleyfi til fólksflutninga innan lands.

     1.      Hvaða sérleyfi til fólksflutninga voru endurnýjuð á síðasta ári og til hversu langs tíma?
    Sérleyfi sem endurnýjuð voru, eða verða, frá 1. september 2002 til 31. júlí 2005:
     1.      Reykjavík–Leifsstöð (flugrúta).
     2.      Reykjavík–Reykjanesbær–Vogar.
     3.      Keflavík–Garður–Sandgerði.
     4.      Reykjavík–Grindavík.
     5.      Reykjavík–Akranes–Borgarnes.
     6.      Borgarnes–Reykholt (Borgarfjarðarhérað).
     7.      Borgarnes–Vatnaleið–Stykkishólmur–Grundarfjörður–Ólafsvík–Hellissandur.
     8.      Borgarnes–Búðardalur–Króksfjarðarnes–Reykhólar.
     9.      Bolungarvík–Ísafjörður.
     10.      Ísafjörður–Bíldudalur–Patreksfjörður.
     11.      Patreksfjörður–Tálknafjörður–Bíldudalur.
     12.      Ísafjörður–Súðavík–Hólmavík.
     13.      Hólmavík–Drangsnes–Brú.
     14.      Reykjavík–Borgarnes–Brú–Hvammstangi–Blönduós–Varmahlíð–Akureyri.
     15.      Blönduós–Skagaströnd.
     16.      Varmahlíð–Sauðárkrókur.
     17.      Sauðárkrókur–Siglufjörður.
     18.      Akureyri–Árskógssandur–Dalvík–Ólafsfjörður.
     19.      Akureyri–Húsavík.
     20.      Akureyri–Laugar–Skútustaðir–Reykjahlíð–Egilsstaðir.
     21.      Akureyri–Húsavík–Raufarhöfn–Þórshöfn.
     22.      Egilsstaðir–Bakkagerði (Borgarfjörður eystri).
     23.      Egilsstaðir–Seyðisfjörður.
     24.      Egilsstaðir–Reyðarfjörður–Eskifjörður–Neskaupstaður.
     25.      Egilsstaðir–Fáskrúðsfjörður–Stöðvarfjörður–Breiðdalsvík.
     26.      Djúpivogur–Höfn–Árnesflugvöllur.
     27.      Höfn–Djúpivogur–Breiðdalsvík–Egilsstaðir.
     28.      Selfoss–Hella–Hvolsvöllur–Vík–Kirkjubæjarklaustur–Höfn.
     29.      Reykjavík–Hveragerði–Selfoss.
     30.      Reykjavík–Þorlákshöfn–Eyrarbakki–Stokkseyri–Selfoss.



Prentað upp.
     31.      Selfoss–Laugarvatn–Reykholt–Laugarás.
     32.      Selfoss–Flúðir.

     2.      Hvaða sérleyfi voru ekki endurnýjuð og hvers vegna?
    Sérleyfum til fólksflutninga er ætlað að liðka fyrir almenningssamgöngum milli þéttbýlisstaða, þ.e. tengja saman byggðarlög landsins og tengja þau við helstu flugvelli í landinu. Sérleyfishafar fá styrk til þess að halda uppi ferðaáætlun á ákveðinni leið eða leiðum hvort sem farþegar eru margir eða enginn, þ.e. að sjá almenningi fyrir ferðum milli staða gegn hóflegu gjaldi. Sjónarmið sem höfð voru að leiðarljósi við val á hvaða leiðir skyldu vera áfram sérleyfisleiðir, við endurúthlutun sérleyfa, voru í fyrsta lagi að á þéttbýlisstöðum væru yfir 100 íbúar allt árið og í öðru lagi að ekki væri verið að styrkja tvo eða fleiri aðila til að aka sömu leið.
    Þær leiðir sem ekki var endurúthlutað sérleyfi á:
     1.      Reykjavík–Þingvellir.
     2.      Reykjanesbær–Leifsstöð–Bláa lónið–Grindavík.
     3.      Reykjavík–Ljósafoss–Úlfljótsvatn.
     4.      Selfoss–Þingvellir–Laugarvatn.
     5.      Reykjavík–Vatnaskógur.
     6.      Reykjavík–Borgarnes–Brú–Hvammstangavegamót–Blönduós–Varmahlíð–Sauðárkrókur–Hofsós–Siglufjörður.
     7.      Þórshöfn–Vopnafjörður–Egilsstaðir um Hellisheiði.
     8.      Egilsstaðir–Eiðar.
     9.      Egilsstaðir–Hallormsstaður.
     10.      Reykjavík–Laugardalur–Haukadalur (Geysir) og Gullfoss um Hveragerði og Selfoss.
    Auk þess voru ekki öll sérleyfi endurnýjuð í sömu mynd og þau höfðu verið, þ.e. hluti af viðkomustöðum tekinn út:
     11.      Reykjavík–Bláa lónið–Grindavík (Bláa lónið tekið út).
     12.      Ísafjörður–Flókalundur–Brjánslækur–Látrabjarg (Flókalundur og Látrabjarg tekin út).
     13.      Reykjavík–Borgarnes–Brú–Hólmavík (Reykjavík–Borgarnes tekin út frá og með 1. júní 2003).

     3.      Hvaða fjárstyrkir voru veittir til sérleyfishafa 2001 og 2002, hversu háir voru þeir og til aksturs hvaða sérleiða voru þeir veittir?
    Á meðfylgjandi tveimur töflum fyrir árin 2001 og 2002 getur að líta greiðslur til sérleyfishafa. Tekið skal skýrt fram að upphæðirnar eru ekki í öllum tilvikum samanburðarhæfar né gefa þær sjálfar samningsfjárhæðirnar til kynna. Inn í þær geta fléttast uppgjörsgreiðslur vegna sameiningar sérleyfishafa, sérstakar greiðslur vegna tölvuvæðingar miðakerfa og fyrirframgreiðslur og svo hitt að ekki er gerð allra þjónustusamninga lokið þannig að stemma þarf af milli áranna 2001 og 2003, en 2003 er ekki sýnt hér, og getur það breytt heildarmyndinni nokkuð.
Greiðslur til sérleyfishafa árið 2001:
Sérleyfishafi Greiðslur
Allrahanda/Ísferðir ehf. 384.906
Austfjarðaleið ehf. 9.673.335
Austurleið – SBS hf. 29.096.020
Björn Fjalar Lúðvígsson 2.617.904
Bóas Ævarsson 1.510.084
BSH ehf. 4.525.301
Ferðaþjónusta Austurlands 2.634.075
Guðmundur Jónasson hf. 1.296.776
Haukur Elísson 2.865.628
Jakob Sigurðsson 998.843
Kynnisferðir 7.198.497
SBA – Norðurleið hf. 27.322.248
SBK hf. 2.626.033
Sérleyfisbílar HP hf. 17.594.240
Siglufj.–flugrúta 8.000.150
Suðurleiðir ehf. 0
Sæmundur Sigmundsson ehf. 15.842.016
Valdimar L. Gíslason 299.409
Þingvallaleið ehf. 1.786.696
Samtals 136.272.161
Greiðslur til sérleyfishafa árið 2002:
Sérleyfishafi greiðslur
Stjörnubílar 385.202
Austfjarðaleið ehf. 9.980.900
Austurleið – SBS hf. 57.000.000
Björn Fjalar Lúðvígsson 2.591.200
Bóas Ævarsson 2.383.300
Ferðaþjónusta Austurlands 2.422.900
Guðmundur Jónasson hf. 1.380.000
Haukur Elísson 2.701.000
Jakob Sigurðsson 1.046.900
Kynnisferðir 5.886.731
SBA – Norðurleið hf. 36.000.004
SBK hf. 7.786.383
Siglufj. – flugrúta 5.325.450
Suðurleiðir ehf. 2.325.000
Sæmundur Sigmundsson ehf. 20.000.000
Valdimar L. Gíslason 460.254
Þingvallaleið ehf. 2.321.938
BSH ehf. 3.000.000
Samtals 162.997.162