Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 694. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1154  —  694. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um nýtt tækifæri til náms.

Flm.: Einar Már Sigurðarson, Björgvin G. Sigurðsson,
Sigríður Jóhannesdóttir, Össur Skarphéðinsson.


    Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að láta semja og leggja fyrir Alþingi áætlun um átak í menntun þeirra sem ekki hafa lokið námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmiðið er að hækka menntunarstig þjóðarinnar og skapa nýtt tækifæri til náms og auðvelda fólki að taka aftur upp þráðinn í náminu þar sem frá var horfið. Við undirbúning og framkvæmd verði haft samráð við aðila vinnumarkaðarins, samtök sveitarfélaga, Vinnumálastofnun, Atvinnuleysistryggingasjóð og menntastofnanir. Áætlunin verði lögð fyrir Alþingi fyrir 1. desember 2003.

Greinargerð.


    Nýtt tækifæri til náms fyrir þá sem ekki hafa lokið grunn- eða framhaldsskólanámi er eitt brýnasta verkefni í menntamálum samtímans. Samfélaginu ber skylda til að skapa þeim sem horfið hafa frá námi, t.d. vegna takmarkaðrar þjónustu menntakerfisins eða persónulegra erfiðleika, nýtt tækifæri. Þekkingu á ýmsum námsörðugleikum hefur fleygt fram og nú er t.d. hægt að greina bæði lestrar- og stærðfræðierfiðleika með viðeigandi greiningartækjum. Margir hurfu frá námi af félagslegum ástæðum og þurfa nú aðeins hvatningu, upplýsingar eða ráðgjöf til að hefja nám á ný. Með sérstöku átaki innan menntakerfisins opnast þessum hópi ný leið til menntunar.

Jöfnun námstækifæra.
    Nýtt tækifæri til náms á að byggjast á aðgengilegu grunn- , framhalds- eða starfsnámi auk sérstakra námstilboða fyrir þá sem vilja bæta við fyrri menntun eða hasla sér völl á nýjum sviðum. Þannig má jafna tækifæri til náms, stuðla markvisst að því að allir nýti tækifæri sín og virkja þann auð sem hvað mestu skiptir, þ.e. mannauðinn. Samkvæmt vinnumarkaðsrannsóknum Hagstofunnar síðastliðin ár eru um 30% þeirra sem eru á vinnumarkaði með grunnskólapróf eða minni menntun. Þetta er markhópur umrædds átaks. Hluti þessa hóps er hinn svokallaði „brottfallshópur“ framhaldsskólans sem talinn er vera allt að 33% af árgangi. Það bendir til þess að þörf sé á nýju tækifæri til náms, auk hins formlega framhaldsskólanáms. Þá er þessi hópur hlutfallslega stærstur meðal atvinnulausra og fellur fyrst út af vinnumarkaði þegar að þrengir.

Stéttaskipting framtíðar.
    Átak um nýtt tækifæri til náms hefur einnig mikið gildi litið til framtíðar því að rannsóknir sýna tengsl milli háskólanáms og menntunar foreldra, sbr. t.d. sænska rannsókn sem sýnir að 9% barna verkafólks sæki háskóla en um 85% barna háskólamenntaðra. Stéttaskipting framtíðarinnar gæti markast af því hverjir hefðu tækifæri til menntunar og hverjir ekki og tekur verkefnið sem hér er gerð tillaga um mið af þessu. Annað markmið tillögunnar er að koma í veg fyrir að til verði tvær þjóðir í landinu, þ.e. sú sem hefur tækifæri til að afla sér þekkingar og hin sem ekki fær tækifæri til þekkingaröflunar.

Sí- og endurmenntun.
    Mikil áhersla hefur verið lögð á sí- og endurmenntun undanfarin ár og margt gott verið gert í þeim efnum. Líkt og víða erlendis hefur það hins vegar komið í ljós hérlendis að sá hópur sem minnstrar menntunar hefur notið nýtir sér slík námstækifæri síður en aðrir. Er það mat flutningsmanna að ríkisvaldið, atvinnulífið, sveitarfélög og samtök launafólks þurfi að taka höndum saman um átak í þessum tilgangi. Er það sjálfsögð skylda samfélagsins að tryggja öllum jöfn tækifæri til náms.
    Skýringar á því hvers vegna þeir sem hafa styttri skólagöngu nýta sér síður tækifæri til sí- og endurmenntunar geta verið margar en þessar eru taldar helstar:
     a.      slæm reynsla og neikvæðar minningar frá fyrri skólagöngu,
     b.      langur tími liðinn frá því að nám var stundað,
     c.      lítil námshvatning úr umhverfinu,
     d.      lág laun og minni skilningur á gildi náms,
     e.      fá tækifæri til náms.
    Margar nágrannaþjóðir hafa skipulagt sams konar átak til að hækka menntunarstigið. Má þar nefna Svía, Dani, Norðmenn og Skota sem hafa skipulagt sérstakt átak til að gefa þeim sem stysta skólagöngu hafa nýtt námstækifæri. Átakið byggist á þeim grunni að örar tæknibreytingar og alþjóðavæðing geri kröfur um aukna hæfni. Hugmyndafræðin er m.a. byggð á því að:
     a.      mannauðurinn sé mikilvægasta auðlindin sem ekki megi vannýta,
     b.      auka megi hæfni þjóðarinnar með því að leggja áherslu á nám fyrir þann hóp sem hefur stysta skólagöngu,
     c.      tryggja jafnan rétt allra til náms,
     d.      sí- og endurmenntun auki hæfni einstaklinga í atvinnulífinu til að mæta sem best kröfum morgundagsins.

Þjóðarsátt um nýtt tækifæri.
    Til að átak sem þetta heppnist er nauðsynlegt að tryggja eins konar þjóðarsátt milli stjórnvalda, samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingar um hækkun menntunarstigs þjóðarinnar. Í því felst að skipta þarf kostnaði milli aðila þar sem allt samfélagið mun hagnast til lengri tíma litið. Í raun er fórnarkostnaður lítill þar sem átakið mun skila hagnaði til allra. Átakið þarf að taka mið af þörfum þeirra sem minnsta menntun hafa og skapa þeim jafnframt aðgengileg tækifæri til náms. Þarfir einstaklingsins þurfa að hafa forgang, námstilboðin þurfa að vera opnari og sveigjanlegri en þau sem boðið hefur verið upp á hingað til og fjölbreytni þarf að vera sem mest. Tengja þarf saman nám og vinnustaði, meta þá reynslu sem fæst með vinnu og auka tengsl fræðslustofnana og atvinnulífs. Þá þarf átakið að tryggja að einstaklingarnir hverfi ekki af vinnumarkaði þótt þeir afli sér viðbótarmenntunar.

Hvatning.
    Mikilvægt er að tekið verði fullt tillit til þeirrar reynslu sem einstaklingar hafa aflað sér utan hins hefðbundna skólakerfis og hún verði metin sem hluti af námi. Byggt verði upp formlegt matskerfi sem mælir hæfni einstaklings umfram formlega skólamenntun. Slíkt er bæði hvatning til að bæta við þekkingu og til að nýta sér ný námstækifæri.

Fjölbreytt námsframboð.
    Byggð verði upp ráðgjöf sem sniðin verði að þörfum þeirra sem ekki hafa lokið formlegu námi til að meta og aðstoða við skipulagningu námsins. Venjan er sú að meta fólk út frá formlegu námi en á tímum símenntunar þegar fólk aflar sér þekkingar eftir ýmsum leiðum, bæði formlega og óformlega, er afar brýnt að slík þekking verði metin á viðeigandi hátt.
    Átakinu má skipta eftir hópum, t.d.:
     1.      þeim sem ekki hafa lokið grunnskólanámi,
     2.      þeim sem lokið hafa grunnskólanámi en þurfa styrkingar og upprifjunar við,
     3.      nýbúum án grunnmenntunar.
    Mikilvægt er að allir eigi kost á raunverulegri náms- og starfsráðgjöf, en nú er nánast ekkert slíkt fyrir hendi. Í ráðgjöfinni fælist hvatning og stuðningur til náms og mat á þörfum fólks. Enn fremur þarf að veita fólki upplýsingar um námsframboð og leiðbeiningar um vinnubrögð í námi.