Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 241. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1170  —  241. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á búnaðarlögum, nr. 70/1998, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 10. mars.)



1. gr.

    16. gr. laganna orðast svo ásamt fyrirsögn:

Erfðanefnd landbúnaðarins.


    Landbúnaðarráðherra skipar sjö menn og jafnmarga til vara í erfðanefnd landbúnaðarins að fengnum tilnefningum frá Bændasamtökum Íslands, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, Skógrækt ríkisins, Veiðimálastofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Ráðherra skipar formann nefndarinnar án tilnefningar. Nefndin skal skipuð til þriggja ára í senn.
    Helstu verkefni nefndarinnar eru:
     a.      að annast samráð innan lands um varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði,
     b.      að hvetja til rannsókna á sviði erfðaauðlinda í landbúnaði,
     c.      að stuðla að miðlun þekkingar um erfðaauðlindir og gildi þeirra, jafnt með kennslu sem upplýsingagjöf til almennings,
     d.      að veita hagsmunaaðilum og stjórnvöldum ráðgjöf um varðveislu og nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði,
     e.      að annast samskipti við erlenda aðila á þessu sviði í samstarfi við tengiliði Íslands hjá alþjóðastofnunum.
    Landbúnaðarráðherra setur reglugerð þar sem nánar er kveðið á um verkefni nefndarinnar og nauðsynlegar ráðstafanir til framkvæmdar á ákvæðum þessarar greinar.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.