Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1188, 128. löggjafarþing 377. mál: vátryggingastarfsemi (EES-reglur, gjaldþol).
Lög nr. 37 20. mars 2003.

Lög um breyting á lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 60/1994, með síðari breytingum.


1. gr.

     29. gr. laganna verður svohljóðandi:
     Eftirtaldar fjárhæðir mynda grunn útreiknings á gjaldþoli vátryggingafélags:
    1. Innborgað hlutafé að frádregnum eigin hlutabréfum félagsins.
    2. Stofnfé að viðbættum framlögum eigenda gagnkvæms vátryggingafélags ef þau uppfylla það skilyrði að í stofnsamningi eða samþykktum sé kveðið á um að ekki sé heimilt að greiða eigendum þessi framlög ef það hefði í för með sér að gjaldþol færi niður fyrir tilskilið lágmark. Einnig er það skilyrði að við félagsslit skuli fyrst gera upp allar aðrar skuldir félagsins. Enn fremur skal í stofnsamningi eða samþykktum kveðið á um að Fjármálaeftirlitinu skuli tilkynnt um greiðslur slíkra skulda, nema þær tengist lokum aðildar einstakra félagsmanna að félaginu, með að minnsta kosti eins mánaðar fyrirvara og að það geti lagt bann við útborgun innan þess frests. Umrædd ákvæði og breytingar á þeim öðlast ekki gildi nema með samþykki Fjármálaeftirlitsins.

  1. Varasjóðir sem ekki eru til að mæta skuldbindingum félagsins og óráðstöfuð ágóðajöfnunarskuld líftryggingafélags.
  2. Óráðstafaður hagnaður að frádregnu ójöfnuðu tapi og ráðgerðum arðgreiðslum.
  3. Forgangshlutafé og víkjandi lán sem bindandi samkomulag er um að víki fyrir öllum skuldbindingum sem ekki eru víkjandi og að ekki komi til endurgreiðslu fyrr en þær skuldbindingar hafa verið gerðar upp við gjaldþrot eða slit vátryggingafélags. Víkjandi lán skal einnig uppfylla eftirtalin skilyrði:
    1. Lánið skal vera innborgað og skuldfært í bókum félagsins.
    2. Upphaflegur lánstími lána með föstum lánstíma skal ekki vera skemmri en fimm ár. Eigi síðar en einu ári áður en kemur að endurgreiðslu skal vátryggingafélagið leggja áætlun fyrir Fjármálaeftirlitið til samþykktar er sýni fram á fullnægjandi gjaldþol félagsins á gjalddaga nema eftirstöðvar lánsins hafi farið minnkandi sem hlutfall af gjaldþoli félagsins á minnst fimm ára tímabili fyrir umsaminn gjalddaga. Sæki vátryggingafélagið um að flýta endurgreiðslu slíkra lána getur Fjármálaeftirlitið heimilað það að því tilskildu að gjaldþol fari ekki niður fyrir tilskilið lágmark.
    3. Lán sem eru ekki með föstum lánstíma skulu vera með a.m.k. fimm ára uppsagnarfresti, nema þau séu ekki lengur talin til gjaldþols félagsins eða að endurgreiðslur fyrir gjalddaga séu háðar samþykki Fjármálaeftirlitsins. Verður vátryggingafélagið þá að óska eftir slíku samþykki að minnsta kosti sex mánuðum fyrir áætlaðan greiðsludag og tilgreina áætlað gjaldþol og lágmarksgjaldþol bæði fyrir og eftir endurgreiðslu. Því aðeins skal heimila endurgreiðslu að gjaldþol vátryggingafélagsins fari ekki niður fyrir lágmarksgjaldþol.
    4. Lánssamningurinn má ekki fela í sér ákvæði sem gera ráð fyrir endurgreiðslu fyrr en á gjalddaga, nema vátryggingafélaginu verði slitið.
    5. Samþykki Fjármálaeftirlitsins þarf til að breyta lánssamningum.
    Fjárhæð samkvæmt þessum tölulið má ekki fara yfir 50% af lágmarksgjaldþoli, eða heildargjaldþoli ef það er lægra. Þar af mega víkjandi lán með fastan lánstíma og heildarfjárhæð forgangshlutafjár ekki fara yfir 25% samanlagt.
  4. Skuldabréf án tiltekins lánstíma og önnur bréf, svo sem forgangshlutafé sem ekki fellur undir 4. tölul., ef samningarnir uppfylla eftirtalin skilyrði:
    1. Ekki má endurgreiða bréfin að frumkvæði handhafa og ekki án samþykkis Fjármálaeftirlitsins.
    2. Samið er um að vátryggingafélagið megi fresta greiðslu á vöxtum.
    3. Kröfur á hendur vátryggingafélaginu samkvæmt þessum tölulið víkja fyrir öllum öðrum kröfum sem ekki eru víkjandi.
    4. Skjalfest er við útgáfu skuldabréfanna að eftirstöðvar og ógreidda vexti megi nota til að mæta tapi þannig að vátryggingafélagi sé kleift að halda áfram starfsemi sinni.
    5. Aðeins skal telja með innborgaðar fjárhæðir.
    Fjárhæð samkvæmt þessum tölulið og fjárhæð skv. 4. tölul. mega samanlagt ekki fara yfir 50% af lágmarksgjaldþoli, eða heildargjaldþoli ef það er lægra.
  5. Helmingur óinnborgaðs hlutafjár eða stofnfjár, enda nemi innborgað fé minnst 25% heildarfjárins. Þessi fjárhæð má ekki fara yfir 50% af lágmarksgjaldþoli, eða heildargjaldþoli ef það er lægra.
  6. Viðbótarframlög eða aukaiðgjöld sem gagnkvæm vátryggingafélög önnur en líftryggingafélög, eða félög hliðstæðrar gerðar með breytilegum framlögum, mega krefja félagsmenn um á reikningsárinu, allt að helmingi mismunar á hámarki þess sem krefjast má og þess sem þegar hefur verið krafist. Þessi fjárhæð má ekki fara yfir 50% af lágmarksgjaldþoli, eða heildargjaldþoli ef það er lægra.
  7. Duldir sjóðir vegna vanmats eigna, enda séu þeir af varanlegum toga.
  8. Allt að 50% áætlaðs framtíðarhagnaðar af líftryggingum. Framtíðarhagnað skal þá áætla með því að margfalda árlegan hagnað, eða lægri tölu, með stuðli sem svarar til gildistíma líftrygginganna sem eftir er í árum talið, þó ekki með hærri stuðli en 6. Með árlegum hagnaði er átt við meðaltal hagnaðar af líftryggingarekstri samkvæmt rekstrarreikningi fimm undangengin ár í viðkomandi greinum líftrygginga. Þessi fjárhæð má ekki fara yfir 25% af lágmarksgjaldþoli, eða heildargjaldþoli ef það er lægra.
  9. Hluti iðgjaldaskuldar í líftryggingum með eða án Zillmer-aðferðar. Þegar Zillmer-aðferð er ekki beitt eða henni er beitt og kostnaðarálag vegna öflunar líftrygginga er lægra en álagið sem fólgið er í iðgjöldum vegna öflunar líftrygginganna má reikna til gjaldþols mismuninn á iðgjaldaskuld án Zillmer-aðferðar eða iðgjaldaskuld með Zillmer-aðferð að hluta og iðgjaldaskuld þar sem reiknað er samkvæmt Zillmer-aðferð með öflunarkostnaði að fullu eins og í reiknigrundvelli iðgjalda. Fjárhæðin sem færð er til gjaldþols samkvæmt þessum tölulið má þó aldrei vera hærri en 3,5% af mismun líftryggingarfjárhæða og iðgjaldaskuldar samanlagt vegna líftryggingarsamninga þar sem unnt er að beita Zillmer-aðferð. Frá þessum mismun skal draga allan óafskrifaðan eignfærðan öflunarkostnað.
  10. Nauðsynlegar afskriftir og niðurfærslur. Sé nauðsynlegt að afskrifa eða niðurfæra eignaliði umfram það sem gert er í efnahagsreikningi skal það koma til lækkunar gjaldþoli. Meðal annars skal hafa hliðsjón af atriðum utan efnahags.
  11. Lækkun tjónaskuldar sem stafar af núvirðingu hennar. Þó þarf ekki að draga frá gjaldþoli lækkun vegna núvirðingar tjóna í slysa- og sjúkratryggingum, né heldur vegna lífeyrisgreiðslna í öðrum greinaflokkum.

     Gjaldþol vátryggingafélags er reiknað með því að leggja saman fjárhæðir skv. 1.–5. tölul. og draga frá fjárhæðir skv. 11.–12. tölul. Fjárhæðir skv. 6.–10. tölul. má leggja við framangreindar fjárhæðir hafi Fjármálaeftirlitið fallist á rökstudda ósk vátryggingafélags um það. Ef horfur eru á að gjaldþol verði einhvern tímann á næstu þremur árum lægra en gjaldþol reiknað skv. 1.–12. tölul. skal til viðbótar færa gjaldþolið niður um muninn á framantöldum liðum og áætluðu lægsta gjaldþoli á næstu þremur árum.
     Aðlagað gjaldþol vátryggingafélags, sem á annað vátryggingafélag að dótturfélagi eða hlutdeildarfélagi, er gjaldþol þess skv. 2. mgr. að frádregnum fjárhæðum sem verða til við að sömu eignir eru taldar beint eða óbeint hjá fleiri en einum aðila, svo og öllum eignum sem verða til við gagnkvæma fjármögnun. Tekið skal tillit til allra dóttur- og hlutdeildarfélaga vátryggingafélagsins, félaga sem hafa yfirráð yfir eða eiga hlutdeild í vátryggingafélaginu og annarra dóttur- og hlutdeildarfélaga þeirra félaga. Fjármálaeftirlitið getur í sérstökum tilvikum krafist eða heimilað að önnur aðferð sé notuð við útreikning aðlagaðs gjaldþols.
     Sé vátryggingafélag dótturfélag annars vátryggingafélags eða félags þar sem meginstarfsemin er eignarhald á vátryggingafélagi skal reikna aðlagað gjaldþol móðurfélagsins samkvæmt ákvæðum þessarar greinar auk útreiknings á gjaldþoli vátryggingafélagsins. Við útreikninginn skal taka tillit til allra hlutdeildarfélaga móðurfélagsins.
     Nánar skal kveða á um útreikning á aðlöguðu gjaldþoli í reglugerð. Þar má einnig tilgreina undanþágur frá skyldu til að reikna aðlagað gjaldþol. Taki útreikningurinn til fyrirtækja í öðrum ríkjum fer um samstarf eftirlitsstjórnvalda eftir alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að og samstarfssamningum sem Fjármálaeftirlitið gerir á grundvelli þeirra.

2. gr.

     30. gr. laganna verður svohljóðandi:
     Gjaldþol vátryggingafélags, sem rekur aðra starfsemi en líftryggingastarfsemi, skal á hverjum tíma nema minnst þeirri fjárhæð sem hærri er samkvæmt eftirfarandi útreikningi og nefnist lágmarksgjaldþol félagsins, sbr. þó 33. gr.:
  1. Við útreikning á lágmarksgjaldþoli á grundvelli iðgjalda skal nota þá fjárhæð sem hærri er af bókfærðum iðgjöldum og iðgjöldum ársins samkvæmt rekstrarreikningi. Byggt skal á iðgjöldum að frádregnum endurgreiðslum og niðurfellingum, en án frádráttar á hlut endurtryggjenda. Hækka skal iðgjöld í greinaflokkum skv. 11., 12. og 13. tölul. 1. mgr. 22. gr. um 50%. Í gagnkvæmum vátryggingafélögum skal telja með iðgjöldum þau framlög eigenda á reikningsárinu sem jafna má til iðgjalda.
  2.      Fjárhæð sem reiknuð er skv. 1. mgr. þessa töluliðar skal skipt í tvennt, þannig að fyrri hlutinn nemi allt að 4.250 millj. kr. og sá síðari því sem umfram er. Fjárhæð þessi skal taka árlegum breytingum með þeim hætti sem lýst er í 1. mgr. 33. gr. Leggja skal saman 18% af fyrri hlutanum og 16% af því sem umfram er. Niðurstaða þeirrar samlagningar er síðan margfölduð með hlutfallinu milli samanlagðra eigin tjóna síðustu þriggja reikningsára og samanlagðra tjóna í heild síðustu þrjú reikningsár samkvæmt rekstrarreikningi, en þó aldrei með lægri tölu en 0,5.
  3. Við útreikning á lágmarksgjaldþoli á grundvelli tjóna skal byggt á meðalfjárhæð tjóna ársins síðustu þrjú reikningsár, að frádregnum yfirteknum vátryggðum fjármunum og réttindum sem félagið öðlast, en án frádráttar á hlut endurtryggjenda. Áður en meðaltal er reiknað skal hækka tjón í greinaflokkum skv. 11., 12. og 13. tölul. 1. mgr. 22. gr. um 50%. Reki vátryggingafélag starfsemi skv. 18. tölul. 1. mgr. 22. gr. skal leggja við tjónsfjárhæðir í þeirri grein allan kostnað sem félagið hefur borið vegna veittrar aðstoðar, jafnvel þótt hann kunni að falla undir aðra liði í rekstrarreikningi.
  4.      Fjárhæð sem reiknuð er skv. 1. mgr. þessa töluliðar skal skipt í tvennt, þannig að fyrri hlutinn nemi allt að 2.975 millj. kr. og sá síðari því sem umfram er. Fjárhæð þessi skal taka árlegum breytingum með þeim hætti sem lýst er í 1. mgr. 33. gr. Leggja skal saman 26% af fyrri hlutanum og 23% af því sem umfram er. Útkoma þeirrar samlagningar er síðan margfölduð með hlutfallinu milli samanlagðra eigin tjóna síðustu þriggja reikningsára og samanlagðra tjóna í heild síðustu þrjú reikningsár samkvæmt rekstrarreikningi en þó aldrei með lægri tölu en 0,5.

     Í útreikningum skv. 1. mgr. skal miða við meðaltal sjö síðustu reikningsára í stað þriggja reki félagið aðallega starfsemi í óveðurs-, hagl- eða frostskaðatryggingum eða í greiðsluvátryggingum.
     Ef lágmarksgjaldþol reynist vera lægra en á næstliðnu reikningsári skal það ekki lækka meira hlutfallslega en sem nemur hlutfallslegri lækkun eigin tjónaskuldar milli sömu ára.
     Í sjúkratryggingum sem reknar eru samkvæmt tæknilegum reiknigrundvelli skal miða við 6% eða 5,33% bókfærðra iðgjalda í stað 18% eða 16% þegar reiknað er á grundvelli iðgjalda, og 8,67% eða 7,67% meðaltjónsfjárhæðar á síðustu þremur árum í stað 26% eða 23% þegar reiknað er á grundvelli tjóna og eftirfarandi skilyrðum er öllum fullnægt:
  1. Iðgjöld eru reiknuð samkvæmt tryggingastærðfræðilegum aðferðum út frá sjúkratöflum.
  2. Vátryggingaskuldin tekur m.a. mið af hækkandi aldri.
  3. Kveðið er á um greiðslu viðbótariðgjalda til að koma upp hæfilegu öryggisálagi.
  4. Vátryggingafélagið má segja vátryggingarsamningum upp fyrir lok 3. vátryggingarárs í síðasta lagi.
  5. Vátryggingarsamningar kveða á um að hækka megi iðgjöld eða lækka bætur á vátryggingartímabilinu.

     Í reglugerð er heimilt að kveða á um hvort og hvernig tekið skuli tillit til hliðarstarfsemi skv. 11. gr. við útreikning á lágmarksgjaldþoli.

3. gr.

     31. gr. laganna verður svohljóðandi:
     Gjaldþol vátryggingafélags sem rekur líftryggingastarfsemi skal á hverjum tíma nema minnst samanlögðum fjárhæðum skv. 1.–7. tölul. hér á eftir, en samtala þessi nefnist lágmarksgjaldþol félagsins, sbr. þó 33. gr.:
  1. Hlutdeild áhættu- og söfnunarlíftrygginga án fjárfestingaráhættu skv. 1. tölul. 23. gr. er samtala þeirra fjárhæða sem koma út úr a-, b- og c-lið hér á eftir:
    1. Reikna skal 4% af líftryggingaskuldinni í frumtryggingum samkvæmt reiknigrundvelli án frádráttar á hlut endurtryggjenda, en að viðbættri líftryggingaskuld vegna móttekinna lífendurtrygginga. Sú fjárhæð er margfölduð með hlutfallinu milli líftryggingaskuldar að frádregnum hlut endurtryggjenda og heildarlíftryggingaskuldar eins og hlutfallið var á næstliðnu reikningsári, en hlutfall þetta má þó aldrei vera lægra en 0,85.
    2. Reikna skal 0,3% af samanlögðum þeim hluta líftryggingarfjárhæða vegna dánaráhættu sem líftryggingafélagið ber áhættu af gagnvart hinum líftryggðu í lok reikningsárs án frádráttar á hlut endurtryggjenda. Sú fjárhæð er margfölduð með hlutfallinu milli samanlagðra líftryggingarfjárhæða að frádregnum hlut endurtryggjenda og heildarlíftryggingarfjárhæða eins og hlutfallið var á næstliðnu reikningsári, en hlutfall þetta má þó aldrei vera lægra en 0,50.
    3. Beita skal aðferð 30. gr. til þess að reikna gjaldþolskröfu vegna viðbótartrygginga sem falla undir f- til h-lið 1. tölul. 23. gr.
    Sé um að ræða tímabundnar dánaráhættulíftryggingar með gildistíma í þrjú ár eða skemur skal stuðullinn í b-lið vera 0,1% í stað 0,3% og 0,15% sé gildistími lengri en þrjú ár en mest fimm ár.
  2. Hlutdeild hjóna- og barnalíftrygginga skv. 2. tölul. 23. gr. er reiknuð eins og í 1. tölul. þessarar málsgreinar.
  3. Hlutdeild áhættu- og söfnunarlíftrygginga með fjárfestingaráhættu skv. 3. tölul. 23. gr. er samtala fjárhæða samkvæmt eftirfarandi:
    1. Ef líftryggingafélagið ber fjárfestingaráhættu skal reikna 4% af líftryggingaskuldinni í frumtryggingum skv. a-lið 1. tölul.
    2. Ef kostnaðarhluti iðgjalda er bundinn til að minnsta kosti fimm ára án þess að líftryggingafélagið beri fjárfestingaráhættu skal reikna 1% af líftryggingaskuldinni skv. a-lið 1. tölul.
    3. Ef líftryggingafélagið ber ekki fjárfestingaráhættu og kostnaðarhluti iðgjalda er ekki bundinn til að minnsta kosti fimm ára skal reikna 25% af skrifstofu- og stjórnunarkostnaði við rekstur þeirrar starfsemi á síðasta reikningsári.
    4. Vegna dánaráhættu skal reikna hlutfall líftryggingarfjárhæða skv. b-lið 1. tölul.
  4. Hlutdeild varanlegra heilsutrygginga án uppsagnarréttar skv. 4. tölul. 23. gr. er samtala tveggja liða sem ákvarðast annars vegar af vátryggingaskuldinni, sbr. a-lið 1. tölul., og hins vegar af lágmarksgjaldþoli eins og það er reiknað skv. 30. gr. Þó má falla frá kröfu 2. tölul. 4. mgr. þeirrar greinar þegar um hópvátryggingar er að ræða.
  5. Hlutdeild annarra líftrygginga skv. 5. tölul. 23. gr. í lágmarksgjaldþoli skal ákveðin með reglugerð.
  6. Hlutdeild endurtrygginga líftrygginga skv. 6. tölul. 23. gr. skal ákveðin skv. 1.–5. tölul. í samræmi við eðli þeirra líftryggingarsamninga sem endurtryggðir eru. Sé endurtryggingarsamningur ekki til lengri tíma en eins árs er þó heimilt að beita aðferð 30. gr.
  7. Hlutdeild slysa- og sjúkratrygginga skv. 1.–2. tölul. 1. mgr. 22. gr. skal ákvörðuð skv. 30. gr.

     Í reglugerð er heimilt að kveða á um hvort og hvernig tekið skuli tillit til hliðarstarfsemi skv. 11. gr. við útreikning á lágmarksgjaldþoli.

4. gr.

     32. gr. laganna fellur brott.

5. gr.

     33. gr. laganna verður svohljóðandi:
     Þrátt fyrir ákvæði 30. og 31. gr. skal lágmarksgjaldþol vátryggingafélags aldrei vera lægra en 255 millj. kr. Stundi vátryggingafélagið eingöngu starfsemi skv. 1.–9. eða 16.–18. tölul. 1. mgr. 22. gr. má lágmarksgjaldþol ekki vera lægra en 170 millj. kr. Fjárhæðir þessar skulu taka breytingum hinn 31. desember ár hvert í samræmi við breytingar á samræmdri vísitölu neysluverðs í aðildarríkjum EES frá gildinu 111,2 og breytingar á opinberu viðmiðunargengi evru frá genginu 85 kr. Nánar skal kveðið á um útreikning fjárhæða þessara í reglugerð.
     Að minnsta kosti þriðjungur lágmarksgjaldþols, þó ekki lægri fjárhæð en segir í 1. mgr., skal myndaður af gjaldþolsliðum skv. 1.–5. tölul. í 1. mgr. 29. gr. Einnig er heimilt að telja þar með gjaldþolsliði skv. 8. tölul. 1. mgr. 29. gr. að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins.
     Fjármálaeftirlitið getur heimilað að lágmarksfjárhæðir skv. 1. mgr. séu lægri í gagnkvæmu vátryggingafélagi en í vátryggingahlutafélagi að teknu tilliti til ábyrgðar vátryggingartaka samkvæmt samþykktum félagsins, sbr. 42. gr. Lágmarksfjárhæðir mega þó aldrei vera lægri en þrír fjórðu hlutar þess sem krafist er í vátryggingahlutafélagi.
     Við stofnun vátryggingafélags og meðan félag starfar á grundvelli framlagðrar áætlunar um starfsemina, sbr. 24. gr. eða 90. gr., skal tilskilið lágmarksgjaldþol reiknað á grundvelli áætlunarinnar og endurskoðunar hennar ef forsendur áætlunarinnar breytast.

6. gr.

     1. mgr. 54. gr. laganna verður svohljóðandi:
     Fjármálaeftirlitið skal a.m.k. árlega kanna gjaldþol og greiðsluþol vátryggingafélaga á grundvelli ársreiknings fyrir næstliðið reikningsár og annarra nauðsynlegra gagna og upplýsinga um starfsemina. Einnig skal kanna aðlagað gjaldþol vátryggingafélaga og móðurfélaga þeirra ef við á. Fjármálaeftirlitið getur snúið sér til dóttur- og hlutdeildarfélaga vátryggingafélags, félaga sem hafa yfirráð yfir eða eiga hlutdeild í vátryggingafélaginu og til dóttur- og hlutdeildarfélaga þeirra félaga til að afla nauðsynlegra gagna hafi vátryggingafélagið sjálft ekki staðið Fjármálaeftirlitinu skil á þeim. Viðkomandi fyrirtæki skal þegar verða við beiðni um slík gögn. Einu gildir hvort eignaraðild er bein eða óbein. Gögnin má sannreyna með athugun á staðnum, hjá vátryggingafélaginu sjálfu eða öðrum félögum í sömu félagasamstæðu. Fjármálaeftirlitið getur í könnun sinni lækkað gjaldþolsliði frá mati vátryggingafélags, einkum þegar markaðsverð þeirra hefur lækkað eða er óvissu undirorpið. Einnig má draga úr áhrifum endurtrygginga við útreikning lágmarksgjaldþols skv. 30. og 31. gr. hafi orðið veruleg breyting á endurtryggingarvernd frá því tímabili sem útreikningur lágmarksgjaldþols miðast við, eða ef óveruleg vátryggingaráhætta er flutt til endurtryggjenda. Fjármálaeftirlitið metur hvort skilyrði 29.–33. gr., eftir því sem við á, séu uppfyllt. Hafi Fjármálaeftirlitið athugasemdir fram að færa skal það tilkynnt félaginu. Sé nauðsynlegt að grípa til sérstakra ráðstafana vegna þessa eiga ákvæði XI. kafla við.

7. gr.

     90. gr. laganna verður svohljóðandi:
     Uppfylli vátryggingafélag, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, ekki lágmarkskröfur um gjaldþol við ársuppgjör eða á öðrum tíma skal félagið þegar í stað gera áætlun um hvenær og á hvern hátt markinu verði náð og skal áætlunin lögð fyrir Fjármálaeftirlitið sem ákveður hvort þær ráðstafanir sem gera á teljist fullnægjandi. Slík áætlun skal ekki taka til skemmri tíma en næstu þriggja reikningsára og innihalda m.a.:
  1. Áætlaðan rekstrarkostnað, m.a. við núverandi yfirstjórn, og umboðslaun.
  2. Sundurliðaða áætlun um tekjur og gjöld í frumtryggingum, endurtryggingum sem félagið kann að taka að sér og vegna endurtryggingarverndar þess.
  3. Áætlaðan efnahagsreikning.
  4. Greinargerð um fjármagn sem ætlað er að mæta vátryggingaskuldbindingum og lágmarksgjaldþoli.
  5. Ráðgerða endurtryggingarvernd.

     Meðan slík áætlun er í gildi skal hvorki gefa út gjaldþolsvottorð vegna ráðagerða um starfsemi erlendis, sbr. 1. mgr. 77. gr. og 1. mgr. 78. gr., né heimila félaginu að veita viðtöku vátryggingarstofni, sbr. 1. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 86. gr.
     Sé gjaldþol vátryggingafélags minna en þriðjungur þess sem tilskilið er eða minna en sú lágmarksfjárhæð sem tilgreind er fyrir þá starfsemi sem félagið rekur, sbr. 33. gr., hvort sem hærra er, skal áætlun skv. 1. mgr. miða að því að rétta við fjárhag félagsins á skömmum tíma og skal Fjármálaeftirlitið setja félaginu ákveðinn frest í því efni.
     Sé vátryggingaskuld félags vanmetin við ársuppgjör eða á öðrum tíma að mati Fjármálaeftirlitsins eða hafi fjárhagsstaða þess með öðrum hætti versnað þannig að tilskildar kröfur um gjaldþol eru ekki uppfylltar skal með sama hætti grípa til viðeigandi ráðstafana.
     Sé vátryggingaskuld vanmetin skal vanmatið koma til lækkunar gjaldþoli.
     Sé aðlagað gjaldþol vátryggingafélags eða móðurfélags þess minna en lágmarksgjaldþol skv. 30., 31. og 33. gr. að viðbættri hlutdeild í lágmarksgjaldþoli allra hlutdeildar- og dótturfélaga sem eru vátryggingafélög skal vátryggingafélagið þegar í stað gera áætlun um hvenær og hvernig markinu verði náð og skal áætlunin lögð fyrir Fjármálaeftirlitið sem ákveður hvort hún telst fullnægjandi. Lágmarksgjaldþol hlutdeildar- og dótturfélaga skal reiknað samkvæmt tilvísuðum greinum, jafnvel þótt aðrar reglur gildi í heimaríki þeirra.
     Telji Fjármálaeftirlitið fjárhag vátryggingafélags vera með þeim hætti að réttindum vátryggingartaka sé stefnt í hættu getur það krafist áætlunar eins og gjaldþol væri ófullnægjandi, sbr. 1. mgr.
     Fjármálaeftirlitið getur takmarkað eða bannað ráðstöfun vátryggingafélags, sem fengið hefur starfsleyfi hér á landi, á fjármunum sínum og eignum sé það liður í aðgerðum til að koma fjárhag þess á réttan kjöl, sbr. 1.–5. mgr. Ákvörðun þessa efnis skal tilkynna eftirlitsstjórnvöldum aðildarríkja eftir því sem við á.
     Starfi félagið eftir áætlun skv. 24. gr. eða skv. 1. mgr. þessarar greinar og hafi fjárhagsstaða félagsins versnað miðað við þá áætlun skal Fjármálaeftirlitið taka ákvörðun um nauðsynlegar ráðstafanir og gera kröfu um að ný rekstraráætlun til þriggja ára verði lögð fram ef þörf er á.

8. gr.

     Ákvæði til bráðabirgða í lögunum verður svohljóðandi:
     Þau vátryggingafélög sem ekki uppfylla ákvæði 33. gr. um lágmarksfjárhæðir 1. janúar 2003 hafa frest til ársloka 2007 til þess að uppfylla þau, enda verði gjaldþol þeirra fram til þess aldrei lægra en krafist var 31. desember 2001. Hafi markið ekki náðst á tilskildum tíma getur Fjármálaeftirlitið heimilað að félag starfi í tvö ár til viðbótar á grundvelli áætlunar skv. 90. gr.
     Hinn 31. desember 2009 fellur 9. tölul. 1. mgr. 29. gr. brott.

9. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.
     Greinar laga þessara sem varða útreikning gjaldþols koma þó fyrst til framkvæmda við eftirlit sem byggist á ársreikningum vegna reikningsársins 2004.

Samþykkt á Alþingi 10. mars 2003.