Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1203, 128. löggjafarþing 241. mál: búnaðarlög (erfðanefnd).
Lög nr. 53 20. mars 2003.
Erfðanefnd landbúnaðarins.
Landbúnaðarráðherra skipar sjö menn og jafnmarga til vara í erfðanefnd landbúnaðarins að fengnum tilnefningum frá Bændasamtökum Íslands, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, Skógrækt ríkisins, Veiðimálastofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Ráðherra skipar formann nefndarinnar án tilnefningar. Nefndin skal skipuð til þriggja ára í senn.
Helstu verkefni nefndarinnar eru:
Landbúnaðarráðherra setur reglugerð þar sem nánar er kveðið á um verkefni nefndarinnar og nauðsynlegar ráðstafanir til framkvæmdar á ákvæðum þessarar greinar.
Þingskjal 1203, 128. löggjafarþing 241. mál: búnaðarlög (erfðanefnd).
Lög nr. 53 20. mars 2003.
Lög um breytingu á búnaðarlögum, nr. 70/1998, með síðari breytingum.
1. gr.
16. gr. laganna orðast svo ásamt fyrirsögn:Helstu verkefni nefndarinnar eru:
- að annast samráð innan lands um varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði,
- að hvetja til rannsókna á sviði erfðaauðlinda í landbúnaði,
- að stuðla að miðlun þekkingar um erfðaauðlindir og gildi þeirra, jafnt með kennslu sem upplýsingagjöf til almennings,
- að veita hagsmunaaðilum og stjórnvöldum ráðgjöf um varðveislu og nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði,
- að annast samskipti við erlenda aðila á þessu sviði í samstarfi við tengiliði Íslands hjá alþjóðastofnunum.
Landbúnaðarráðherra setur reglugerð þar sem nánar er kveðið á um verkefni nefndarinnar og nauðsynlegar ráðstafanir til framkvæmdar á ákvæðum þessarar greinar.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 10. mars 2003.