Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 697. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1218  —  697. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um gjaldtöku fyrir löggæslu á úti-, menningar- og byggðahátíðum.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hafa reglur um gjaldtöku fyrir löggæslu á úti-, menningar- og byggðahátíðum verið endurskoðaðar og ef svo er, hvaða fyrirkomulag verður þá á þeim málum á komandi sumri?
     2.      Eru einhverjir fjármunir til ráðstöfunar hjá ráðuneytinu til að jafna kostnað við slíka löggæslu?
     3.      Stendur til að endurskoða reglur eða setja reglugerð um úti-, menningar- og byggðahátíðahald?