Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 706. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1242  —  706. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir 2002.

(Lögð fyrir Alþingi á 128. löggjafarþingi 2002—2003.)



INNGANGUR


    Í þessari skýrslu er að finna stuttorðar lýsingar á ríkisstyrktum hafnarframkvæmdum árið 2001 á hverjum stað fyrir sig og tölur um fjárveitingar til hafnarframkvæmda og ráðstöfun þeirra í töflum I–VII. Einnig er fjallað um varnir gegn landbroti af ágangi sjávar og greint frá verkum sem unnin hafa verið í höfnum án ríkisstyrkja. Þá er í skýrslunni stutt samantekt um það helsta í rannsóknum Siglingastofnunar Íslands á sviði hafnamála og greinargerð fyrir megindráttum í starfsemi stofnunarinnar á árinu 2002 og birtar eru tölur úr rekstri.
    Árið 2002 var eftirgreindum fjárhæðum varið til ríkisstyrktra framkvæmda við hafnir. Til samanburðar eru tölur fyrra árs.

                          2002     2001
                            millj. kr.     millj. kr.


Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir          1.870,0     1.164,5
Ferjubryggjur          15,5     0,1
Samtals                   1.885 ,5     1.164,6


Ríkisstyrktar hafnarframkvæmdir.

Grundartangi.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Akranes.
    Í október 2002 var dýpkun Akraneshafnar boðin út. Í verkinu felst í aðalatriðum að dýpkað verður í 8,5 til 10 m dýpi við væntanlegt þil Aðalhafnargarðs og er flatarmál dýpkunarsvæðisins um 15.000 m 2. Þrjú tilboð bárust í verkið. Lægst var tilboð Hagtaks ehf. í Hafnarfirði, 59.529.500 kr. er nam 93,6% af kostnaðaráætlun hönnuða og var gengið til samninga við fyrirtækið á grundvelli tilboðs þess.
    Verkið hófst í lok október 2002 og er áætlað að því ljúki í byrjun mars 2003.
    Undirbúningur að uppsetningu stálþils meðfram innsta hluta Aðalhafnargarðs hófst á árinu 2002 en verkið verður unnið á árinu 2003. Verkfræðistofan Burður ehf. annaðist hönnun á þili og festingum. Þilið verður um 160 m langt og er gert ráð fyrir að dýpi við það verði 10 m. Þarna hefur farið fram löndun á uppsjávarfiski og mun aðstaðan batna mjög með auknu dýpi.
    Útboð á efni hefur farið fram en úrslit úr því eru ekki fengin.
    Framkvæmdakostnaður: 37,4 millj. kr.

Borgarnes.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Snæfellsbær.
     Arnarstapi: Þar var grjótgarður lengdur og gert við hann. Framkvæmdin fólst í því að lengja grjótgarðinn um því sem næst 45 m og gera við þann hluta hans sem fyrir var með því að bæta grjóti utan á hann og styrkja hann þannig. Unnið var viðbótarverk sem fólst í að skjólveggur var endurbyggður og færður til. Við það stækkaði þekjan um u.þ.b. 210 2 og er steypu þessarar þekju lokið.
    Verkið var boðið út í júlí 2001 en megin hluti þess var unninn á árinu 2002.
    Í viðgerðina á garðinum fóru um 6.000 m 3 af grjóti og kjarna og varð viðgerðin mun umfangsmeiri og kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir í samningi við verktaka.
    Í lengingu garðsins fóru um 8.500 m 3 af grjóti og kjarna. Grjótnáma var við Malarrif. Innifalið í verkinu var að sprengja og fjarlægja tvö til þrjú sker við enda garðsins og fjarlægja laust efni innst í höfninni. Brottnám skerjanna og dýpkun á klöpp varð til muna umfangsmeiri en áætlað var og jókst því kostnaður við þennan verklið verulega frá því sem gert var ráð fyrir í útboðinu. Alls var dýpkað 1.570 m 2 svæði í 2 til 3 m dýpi og 2.700 m 3 fjarlægðir.
    Þegar unnið var að dýpkun meðfram trébryggju sem næst er grjótgarði kom í ljós að styrkja þurfti undirstöður hennar. Lárus Einarsson verktaki úr Mosfellsbæ var fenginn í það verk. Aðalverktaki við framkvæmdirnar var Stafnafell ehf., undirverktaki við dýpkun var Hagtak hf.
    Á fjárlögum ársins 2001 voru ætlaðar 38 millj. kr. í verkið og annað eins á fjárlögum 2002.
    Rifshöfn: Þar stendur yfir bygging viðlegugarðs, svonefnds Norðurþils, samkvæmt hafnaáætlun. Verkið felst í því að keyra út um 80 m langa fyllingu og ramma við hana um 94 m langt stálþil. Í verkinu felst einnig að fjarlægja gömlu staurakistuna og dýpka í 2 m við nýja stálþilið. Sú dýpkun mun þó hvorki vera endanleg né fullnægjandi.
    Verkið var boðið út í október 2002. Tilboð voru opnuð þann 12. nóvember 2002 og að svo búnu samið við lægstbjóðanda, Ísar ehf. í Hafnarfirði, er hóf störf í desember. Er áformað að ljúka þessum verkhluta vorið 2003. Verður þá boðin út vinna við þekju og lagnir og einnig raflagnir og lýsing.
    Á fjárlögum voru ætlaðar 24 millj. kr. til verksins og einnig voru 24 millj. kr. ætlaðar til að endurbyggja trébryggjuna. Að fengnu leyfi Siglingastofnunar voru þessi fjárframlög sameinuð í framkvæmdina við Norðurþil þar sem fyrirséð var að fé það sem ætlað var til verksins væri ekki nægjanlegt.
     Ólafsvík: Árið 2001 var flotbryggja næst Suðurgarði lengd um 20 m og einnig voru fjarlægðar tvær úr sér gengnar flotbryggjur innan og austan við trébryggjuna og ein 20 m flotbryggja sett í staðinn. Árið 2002 var lokið við að setja stiga á flotbryggjurnar í samræmi við nýlega reglugerð um slysavarnir í höfnum og gengið frá slitlagi ofan við landgang.
    Í fjáraukalögum 2002 var fjárveiting að upphæð 5,0 millj. kr. færð frá Snæfellsbæ til Raufarhafnar þar sem lenging grjótgarðs á Arnarstapa hafði reynst ódýrari en ætlað var.
    Framkvæmdakostnaður: 81,9 millj. kr.

Grundarfjörður.
    Þar var unnið að lengingu Stórubryggju, steypt þekja og settar vatnslagnir og ídráttarlagnir fyrir rafmagn.
    Vinna við þil og skjólgarð utan á bryggjunni var boðin út í júní 2001 og var samið við Ísar ehf. í Hafnarfirði sem lauk framkvæmdinni í apríl 2002 og einnig var steypt upp ljósamastur og vatnshús.
    Vinna við þekju og lagnir var boðin út í júní 2002. Lægsta tilboðið barst frá Almennu umhverfisþjónustunni ehf. á Grundarfirði að upphæð 24.670.632 kr. og var samið við fyrirtækið á grundvelli þess. Verkið fólst í því að steypa tæplega 4.000 m 2 þekju, leggja vatnslagnir og koma fyrir ídráttarrörum fyrir rafmagn. Þessum verkhluta lauk að mestu á árinu 2002.
    Vinna við raflagnir og lýsingu á hafnarsvæði var boðin út í september 2002 og samið við lægstbjóðanda, Kristmund Harðarson rafverktaka á Grundarfirði, er bauð 3.340.000 kr. Verktaki lauk störfum að mestu á árinu 2002 en úttekt fer ekki fram fyrr en í janúar 2003.
    Framkvæmdakostnaður: 50,7 millj. kr.

Stykkishólmur.

    Þar var lengt stálþil austan við ferjulægi Baldurs í Súgandisey um 30 m ásamt um 10 m gafli. Enn fremur var steyptur kantur á þilið og komið fyrir pollum.
    Verkið var boðið út í september 2002 og gengið til samninga við lægstbjóðanda, skipasmíðastöðina Skipavík hf. í Stykkishólmi, er bauð 8.283.600 kr. Stálþil og festingar komu til landsins í október 2002 og varð kostnaður við þennan lið 5,5 millj. kr.
    Verkið er á fjárlögum og voru ætlaðar þar til þess 16,0 millj. kr.
    Ljósamasturs- og vatnshús í Skipavík var á hafnaáætlun ársins 2001 en var þá frestað og svo var einnig nú og féð lánað til framkvæmdarinnar við stálþilið í Súgandisey þar sem gert var ráð fyrir að áætlað fé til þess verks myndi ekki hrökkva til.
    Framkvæmdakostnaður: 13,6 millj. kr.

Dalabyggð.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Reykhólahöfn.
    Dýpkað var meðfram bryggjunni og í höfninni. Samið var við GP-krana um gröbbun og við heimamenn um að flytja efni frá krananum. Haft var samráð við heimamenn og forsvarsmenn Þörungaverksmiðjunnar um val á verktíma. Verkið hófst í október og var lokið fyrir árslok 2002.
    Veittur var tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði til að lagfæra tjón á garðinum fram á bryggju. Gert var við grjótvörnina og þekja o.fl. sem skemmst hafði var lagfært.
    Framkvæmdakostnaður: 3,0 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr hafnabótasjóði: 2,8 millj. kr.

Vesturbyggð.
     Patreksfjörður: Þar var samkvæmt hafnaáætlun veitt fé á fjárlögum 2002 til að dýpka og breikka innsiglingaropið og setja grjótvörn á enda Oddans, en heimamenn afréðu að fresta framkvæmdum.
     Bíldudalur: Þar var veitt fé á síðasta ári til lengingar flotbryggju en heimamenn frestuðu verkinu og svo var einnig í ár.

Tálknafjörður.

    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Bolungarvík.
    Fjárveitingu í Grundargarð, sem á síðasta ári var lánuð til Vopnafjarðar, var endurúthlutað á fjárlögum 2002 og einnig var veitt fé samkvæmt hafnaáætlun til niðurrifs skjólveggs við Brjótinn. Heimamenn ákváðu að fresta báðum þessum verkefnum og leggja í staðinn áherslu á að dýpka innsiglinguna og höfnina. Ekki var þó byrjað á dýpkun á árinu enda er það verkefni kostnaðarsamt og krefst mikils undirbúnings.

Ísafjarðarbær.
     Þingeyri: Veitt var fé samkvæmt hafnaáætlun til að rífa gömlu trébryggjuna við ytri hafnargarð, en framkvæmdinni var frestað.
     Flateyri: Þar var steypt þekja við hafnarkantinn, lagðar ídráttarlagnir fyrir vatn og rafmagn, gengið frá ljósamasturshúsi og settir upp tveir úttaksbrunnar. Steypt var 1.240 m 2 þekja, lögð út 345 m 2 klæðning og steyptur upp 15 x 1 m skvettmúr á landgafl á þili.
    Verkið var boðið út að undanteknum raflagnaþættinum, en um hann var samið við Pólinn hf. á Ísafirði að undangenginni verðkönnun. Tilboð voru opnuð þann 22. maí 2002. Tvö tilboð bárust, hið lægra frá Eiríki og Einari Val hf. á Ísafirði að upphæð 12.674.000 kr. og var samið við fyrirtækið um framkvæmd verksins fyrir þessa upphæð. Samningsverð við Pólinn hf. var 2.917.120 kr.
    Verk Eiríks og Einars Vals hf. hófst þann 9. júlí og lauk þann 14. september. Raflagnavinnu Pólsins var ekki að fullu lokið við áramót þar sem Orkubú Vestfjarða átti eftir að byggja spennistöð og leggja heimtaug. Mun þetta verða gert vorið 2003.
     Suðureyri: Þar var samkvæmt hafnaáætlun veitt fé til stækkunar á smábátahöfninni, en þeim framkvæmdum var frestað.
     Ísafjörður: Enn var frestað lögnum og þekjusteypu við nýja stálþilsbakkann í Sundahöfn, en samkvæmt hafnaáætlun var úthlutað fjárveitingu í það verk í fyrra og einnig í ár.
    Í Sundahöfn á Ísafirði var samkvæmt hafnaáætlun veitt fé á fjárlögum til að endurbyggja elstu flotbryggjuna. Því var frestað, en í staðinn var flotholti með landgangi bætt við endann á ferjubrúnni. Flotholtið er 4 m á breidd og 10 m á lengd og hæðin er 0,9 m. Landgangurinn er 9 m að lengd. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta aðstöðu ferðaþjónustubáta.     
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð þann 23. apríl 2002. Þrjú tilboð bárust, hið lægsta frá Trésmiðjunni ehf. í Hnífsdal að upphæð 2.595.501 kr. er nam 87,23% af kostnaðaráætlun hönnuða. Var samið við Trésmiðjuna ehf. á grundvelli tilboðsins og unnu starfsmenn fyrirtækisins verkið í apríl og maí.
    Heimilað var að ráðast í endurbyggingu elsta hluta Ásgeirsbakka. Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir að endurbygging hæfist árið 2004, en skoðun leiddi í ljós að ástand mannvirkisins er nú þegar orðið það slæmt að hætta stafar af og því nauðsynlegt að flýta framkvæmdum. Hafinn var undirbúningur en ekki byrjað á sjálfu verkinu fyrir áramót.
    Viðgerðarbryggja skipasmíðastöðvar sem gert var ráð fyrir í hafnaáætlun var felld út í niðurskurði á framlagi til hafnagerða sem ákveðinn var í fjárlögum.
    Framkvæmdakostnaður: 23,1 millj. kr.

Súðavík.
    Þar var lokið framkvæmdum við 45 m langan skjólgarð við Suðurgarð og endurröðun og styrkingu grjótvarnar við Suðurgarð til að mynda skjól fyrir smábáta. Verkið var boðið út í október 2001 og hófst litlu síðar. Lægstbjóðandi var Jónas H. Jónbjörnsson á Húsavík er bauð 4.376.794 kr. sem nam 71,7% kostnaðaráætlunar. Í verkið fóru 4.334 m 3 af kjarna og 1.231 m 3 af grjóti. Endurraðað var 491 m 3 en viðbótargrjót sótt í Súðavíkurnámu.
    Verkinu lauk í janúar 2002 og var tekið út í lok mánaðarins.
    Undirbúningur að byggingu trébryggju á Súðavík hófst seint á árinu 2002. Mannvirkið er hannað hjá Siglingastofnun Íslands. Upphaflega var ráðgert að byggja 15 m langa léttbyggða viðlegubryggju en heimamenn óskuðu eftir því að hún yrði lengd í 30 m og höfð fullsterk. Varð því að endurhanna bryggjuna að hluta. Í núverandi verkáætlun felst að garður við bryggju verður breikkaður, 20 m landveggur byggður og einnig 30 x 7 m furubryggja.
    Úrslit útboðs fást í lok janúar 2003 og verða svo gerðir samningar vegna verksins. Hluti efnis hefur þegar verið keyptur.
    Framkvæmdakostnaður: 10,7 millj. kr.

Norðurfjörður.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Drangsnes.
    Þar var steypt utan á bryggjuvegginn á um 19 m kafla næst landi. Gengið var frá kanttré á bryggjubrún og settir tveir stigar og þybbur. Innan við vegginn var fyllt upp og planið hækkað í sömu hæð og fremri hluti bryggju. Að svo búnu var steypt 424 m 2 þekja yfir. Gengið var frá vatnslögn undir þekju og ídráttarrörum fyrir rafmagn.
    Verkið var að mestu unnið í júní og júlí 2002. Frágangur við stiga og þybbur dróst þó fram á haustið og verkinu var lokið að fullu í desember.
    Kostnaður og umfang við verkið var innan þeirra marka að skylt væri að bjóða það út og var leitað tilboðs hjá Grundarási ehf. á Hólmavík og gerður samningur við fyrirtækið þann 21. september 2001. Samningsverð var 6.788.745 kr. Aukaverk fólust í því að bætt var við polla, niðurfalli frá vatnsbrunni, tengd ídráttarrör milli ljósamasturs og brunns og sett hitaveitulögn niður á bryggju. Að auki varð magn steypu meira en áætlað var, aðallega í vegg og utan á bryggju. Þetta olli tæplega 17% hækkun frá samningsverði.
    Lögð var klæðning á alls 1.544 m 2 plan ofan við bryggjuna í Kokkálsvík og fram garðinn að bryggjunni. Í ljós kom að stærð svæðisins hafði verið vanmetin í hafnaáætlun og reyndist það rúmlega þriðjungi stærra en þar var gert ráð fyrir og skýrir það að verkið varð nokkru dýrara en áætlað var.
    Verkfræðistofan Stoð á Sauðárkróki sá um undirbúningsmælingu og ákvarðaði hæðarlegu á plani en Siglingastofnun Íslands sá um gerð verklýsingar fyrir jarðvinnu.
    Leitað var eftir tilboði frá Val Þórðarsyni á Hólmavík í jarðvinnuna og Vegagerðin á Ísafirði fengin til að sjá um útlagningu slitlags.
    Mælingar og undirbúningur fór fram í júní. Byrjað var á jarðvinnu undir slitlag í júlí og lauk þeim störfum seint í ágúst. Vegagerðin lagði slitlagið þann 18. september 2002.
    Framkvæmdakostnaður: 11,3 millj. kr.

Hólmavík.
    Leiðrétt var uppgjör frá árinu 2001 vegna framkvæmda við upptökubraut. Heimamenn lögðu raflögn á flotbryggjuna til landtengingar og veitti Siglingastofnun samþykki sitt fyrir því að sú framkvæmd yrði metin styrkhæf, falli undir endurbætur á smábátaaðstöðunni sem hafnaáætlun gerði ráð fyrir.
    Í fjáraukalögum var ónotuð fjárveiting, 3,5 millj. kr., færð frá Hólmavík til Raufarhafnar þar eð hluta af áformuðum framkvæmdum á Hólmavík var slegið á frest.
    Framkvæmdakostnaður: 1,2 millj. kr.

Húnaþing vestra.
     Hvammstangi: Ekki var unnið að styrkhæfum framkvæmdum á árinu.
    Í fjáraukalögum var ónotuð fjárveiting að upphæð 13,0 millj. kr. færð frá Hvammstanga til Raufarhafnar þar sem dýpkun Hvammstangahafnar var frestað.

Blönduós.
    Ekki var unnið að styrkhæfum framkvæmdum á árinu.

Skagaströnd.
    Í byrjun ágúst var samið við Björgun ehf. um að dýpka höfnina og innsiglinguna. Alls var farið yfir um 30.000 m 2 svæði. Dýpkunarskipið Perlan dældi upp um 15.000 m 3 af efni og losaði það í sjó vestur af Spákonufellshöfða. Innsiglingin var dýpkuð í rúma 7 m. Innan hafnar var miðað við að ná 7 m dýpi og tókst það að mestu en þó varð eftir haft út af enda nýju stálþilsbryggjunnar þar sem dýpi er 6,5 til 7 m. Verkinu lauk þann 27. ágúst.
    Skömmu fyrir áramót var samið við M&T ehf. um kaup á upplýsingakerfi fyrir sjófarendur. Uppsetningu þess var ekki lokið við áramót.
    Fyrri hluta sumars var lokið við viðgerð á siglingamerki á Brúnkollu og það sett upp að nýju, en siglingamerkið hafði brotnað af skerinu í miklu brimi í fyrrahaust. Var veittur tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði til viðgerðarinnar.
    Dýpkun Skagastrandarhafnar reyndist kosta minna en ætlað var og í fjáraukalögum var ónotuð fjárveiting að upphæð 1,2 millj. kr. færð frá Skagaströnd til Raufarhafnar.
    Framkvæmdakostnaður: 7,8 millj. kr.
    Tjónastyrkur: 0,6 millj. kr.

Skagafjörður.
     Sauðárkrókur: Í júní lauk Elinn ehf. verkþætti sínum við 130 m langt stálþil á Norðurgarði. Í því fólst að reka niður þilið, ganga frá festingum, fylla að og steypa kant.
    Í byrjun júlí var boðin út þekjusteypa og lagnir við stálþil á Norðurgarði og samið við lægstbjóðanda, G. Þorsteinsson ehf. á Hornafirði. Lauk hann verkinu um mánaðamótin október nóvember. Lagðar voru vatnslagnir og ídráttarrör fyrir rafmagn í bryggjuna og steypt 3.309 m 2 þekja. Ákveðið var að malbika 700 m 2 af þekjunni og verður það verk unnið á næsta ári.
    Um haustið var gengið til samninga við Rafsjá um raflagnir í bryggjuna. Samningsupphæð var 2.788 þús. kr. Einnig var sett upp spennistöð fyrir bryggjuna ásamt heimtaug. Því verki var ekki að fullu lokið um áramót.
    Samkvæmt hafnaáætlun var veitt fé til að dýpka við Norðurgarðinn og í innsiglingu. Dýpkunarskipið Perlan var fengið til að dæla upp um 4.000 m 3 og dýpka í 8,5 m meðfram nýja stálþilinu, en ákveðið var að fresta megin hluta dýpkunarinnar fram á næsta ár. Hugmyndin er að nýta efni úr dýpkun í uppfyllingu við fyrirhugaða breikkun Strandvegar sem Vegagerðin ráðgerir að bjóða út á næsta ári.
    Rekstur þilsins var mjög erfiður og var dýpkað frá því til að kanna hvort það hefði skemmst í rekstrinum. Í ljós komu skemmdir á einni plötu og var gatinu lokað með stálplötu og þétt með steypu. Einnig var komið fyrir steyptri rofvörn á botninum framan við viðgerðu plötuna.
    Bygging stálþils á Norðurgarði reyndist ódýrari en ætlað var og var því fjárveiting að upphæð 7,0 millj. kr. flutt til Raufarhafnar í fjáraukalögum 2002.
     Haganesvík: Þar var grafinn upp sandur sem borist hafði að bryggjunni og notuð til þess fjárveiting frá síðasta ári. Kostnaður við það varð um 170 þús. kr.
    Framkvæmdakostnaður: 58,9 millj. kr.

Siglufjörður.
    Þar var boðin út þekja og lagnir við lengingu Óskarsbryggju. Útboð fór fram í júní og var í framhaldi af því gengið til samninga við lægstbjóðanda, Bás ehf. á Siglufirði. Steypt var 2.355 m 2 þekja ásamt rafbúnaðarhúsi og gengið frá ídráttar- og vatnslögnum. Verkinu lauk þann 28. október 2002. Í framhaldi af því var gengið til samninga við Rafbæ sf. um rafbúnað og lagnir. Því verki lauk ekki á árinu.
    Framkvæmdakostnaður: 29,3 millj. kr.

Hafnasamlag Eyjafjarðar.
     Ólafsfjörður: Í hafnaáætlun var gert ráð fyrir að endurbyggja loðnulöndunarkant en Alþingi frestaði fjárveitingu í það verkefni.
    Veitt var fé samkvæmt hafnaáætlun til að rífa gamla trébryggju við vesturenda togaralöndunarkants og hefja framkvæmdir við 40 m langt stálþil, en heimamenn tóku ákvörðun um að fresta því verki. Í staðinn fengu þeir heimild til að dýpka höfnina og til að styrkja grjótvörn á Norðurgarði. Dýpkunin var boðin út í nóvember ásamt dýpkun Akureyrarhafnar við Krossanes og bauð Björgun ehf. lægst í þessi verkefni, tæplega 10,8 millj. kr. sem var 69% af áætluðum kostnaði. Byrjað var að dýpka á Ólafsfirði í desember og lauk verkinu fyrir áramót, en lokauppgjör fer ekki fram fyrr en dýpkun í Krossanesi er lokið svo hægt verði að mæla bæði verkin í einu. Dælt var á um 23.000 m 2 svæði austan til í höfninni og við hafnarmynnið, alls um 6.200 m 3.
    Samið var við Árna Helgason á Ólafsfirði um styrkingu grjótvarnar á Norðurgarði á 60 m kafla. Um áramót hafði verktaki flutt grjót á staðinn en sjálf styrking grjótvarnarinnar var lítið komin af stað.
     Dalvík: Þar var veitt fé samkvæmt hafnaáætlun til að endurraða og styrkja grjótvörn á Suðurgarði en ekki var byrjað á verkinu fyrir áramót.
     Árskógssandur / Hrísey: Þar var unnið að uppsetningu búnaðar sem auðvelda á fötluðum að komast að og frá borði Hríseyjarferjunnar Sævars. Þetta var lokahnykkurinn til að endurbæta aðstöðuna fyrir nýju Hríseyjarferjuna, en framkvæmdir við það hófust árið 2000. Hönnunarforsendur voru þær að unnt yrði að koma hjólastólum að og frá ferjunni með breiðum spil- eða vökvadrifnum landgangi. Landganginum varð að vera hægt að fjarstýra frá skipinu.
    Verkfræðistofan Burður hannaði búnaðinn og samið var við Kötlu ehf. á Árskógssandi um að vinna verkið í tímavinnu. Það hófst í júlí og var unnið þá að mestu leyti en endanlega var lokið við það í nóvember.
     Hauganes: Þar var sett grjótvörn á hafnarsvæði við gömlu bryggjuna. Þetta var smáverk og var það unnið með sjóvörninni. Hallgrímur Hreinsson á Dalvík vann verkið í september 2002.
    Framkvæmdakostnaður: 13,0 millj. kr.

Grímsey.
    Þar var grjótvörn á hafnargarði lagfærð og einnig var byggður sjóvarnargarður (sjá kafla um sjóvarnargarða). Var þetta gert vegna þess að veður hafði valdið tjóni á hafnarmannvirkjum og var verkið að hluta fjármagnað með styrk úr Hafnabótasjóði. Samkvæmt hafnaáætlun hefði átt að steypa þekju, alls um 300 m 2 og laga skvettmúr, en því var frestað til ársins 2003, og fjárveitingin notuð til að styrkja grjótvörnina.
    Verkið var boðið út og þrjú tilboð bárust sem opnuð voru þann 20. júní 2002. Lægstbjóðandi reyndist Árni Helgason verktaki í Ólafsfirði og var samið við hann um verkið. Samningsupphæð var 16.046.000 kr. er nam 90,7% af kostnaðaráætlun hönnuða. Í verkinu fólst að skapa aðstöðu í Grímsey til að vinna verkið. Flytja þangað vinnuvélar og tæki og ennfremur stórgrýti frá námu á Árskógssandi, alls 208 steina 8–14 tonn. Grjót í milliflokka, um 4.240 m 3, var unnið úr námu í Grímsey. Af því fóru um 2.000 m 3 í sjóvörnina. Verktaki hóf störf í byrjun júlí og lauk verki þann 15. september. Þörf er á að styrkja grjótvörn hafnargarðsins enn frekar með grjóti úr landi og brýnt að það verði gert á næstu árum.
    Framkvæmdakostnaður: 8,6 millj. kr. (án sjóvarnar).
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 10,0 millj. kr.

Hafnasamlag Norðurlands.
     Akureyri: Þar var unnið að II. áfanga vesturbakka í fiskihöfn. Efni í stálþil hafði verið keypt árið 2001 og var ætlunin þá að lengja bakkann um 70 m og setja 35 m langan landgafl. Heimamenn óskuðu eftir því að þilið yrði stytt og framhliðin ekki höfð nema 30 m, en landgaflinn óbreyttur, þ.e. 35 m. Þilið er hannað fyrir 9 m dýpi og landgaflinn fyrir 4,5 m, en þar eiga minni bátar að geta legið.
    Útboð fór fram í apríl og tilboð voru opnuð í lok mánaðarins. Gengið var til samninga við lægstbjóðanda, Kötlu ehf. á Árskógssandi, sem bauð 15.354.500 kr., 83% af kostnaðaráætlun. Verkið fólst í að reka niður stálþil og ganga frá festingum, fylla að og steypa kant, sem varð 69 m langur, og koma fyrir pollum, niðurföllum og stigum. Fríholt voru sett upp og gengið frá bráðabirgðalýsingu. Fyllt var í þilið með kjarna og möl en efsta burðarlagið var sótt að Þverá. Að síðustu var svæðið jafnað með hörpuðu efni.
    Verktaki hóf störf í maí 2002 og lauk verkinu þann 16. október og úttekt fór fram þann 31. nóvember.
    Lokið var uppgjöri vegna dýpkunar sem unnið var að í fiskhöfn á síðasta ári, en fullnaðardýpkun er þó ekki lokið. Áformað er að dýpkunarskip verði á Akureyri í febrúar eða mars 2003 og er ætlunin að ljúka þá við dýpkunina.
    Samkvæmt hafnaáætlun kom fjárveiting árin 2001 og 2002 til að rífa Sverrisbryggju og byggja í staðinn bryggju fyrir fóðurskip, en heimamenn frestuðu framkvæmd. Sömuleiðis var frestað byggingu uppsáturs fyrir smábáta, en fjárveiting var í þá framkvæmd árið 2001.
    Í staðinn var fengin heimild til að flýta framkvæmdum við annan áfanga bryggjugerðar í Krossanesi. Byrjað var á uppfyllingu við væntanlegt stálþil og dýpkun boðin út ásamt dýpkun í Ólafsfirði. Björgun ehf. átti lægsta tilboðið, en ekki var byrjað að dýpka á Akureyri fyrir áramót.
    Framkvæmdakostnaður: 27,2 millj. kr.

Húsavík.
    Þar var unnið að gerð brimvarnargarðs á Böku, en það verk hófst í byrjun ágúst 2001 og vísast til skýrslu ársins 2001 um verkundirbúning og framkvæmdir þess árs.
    Samið var við Ístak hf. um verkið að undangengnu útboði á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem Ístak hf. reyndist lægstbjóðandi. Samningsverð var 398.426.658 kr. sem nam 80,2% af kostnaðaráætlun hönnuða.
    Í verkinu felst bygging um 300 m langs brimvarnargarðs af bermugerð út frá fyllingu við Bökuna utan við Norðurgarð á Húsavík. Garðurinn nær út á 12 m dýpi. Hann er byggður úr fimm grjótflokkum auk sprengds kjarna. Í garðinn fara um 275.000 m 3 af efni, þar af um 140.000 m 3 af grjóti og um 135.000 m 3 af kjarna. Megnið af grjótinu var sótt í námu í Hlíðarhorni á Tjörnesi en hluti af smærra grjótinu og kjarnanum í Kötlunámu rétt sunnan Húsavíkur.
    Áformað var að verkinu lyki í lok september 2002 en vegna þess að nokkur magnaukning varð, er einkum stafaði af því að dýpi undir garðinum reyndist meira en ætlað var, og að gerð var útrás í gegnum garðinn að beiðni Húsavíkurbæjar, lauk verkinu ekki fyrr en þann 18. desember og fór lokaúttekt fram í desember 2003. Enn er þó eftir að ganga frá endanlegu uppgjöri við verktaka.
    Kostnaður við verkið á árinu 2002 skiptist í greiðslur fyrir grjótnám, eftirlits- og umsjónarkostnað auk verktakakostnaðar.
    Framkvæmdakostnaður: 325 millj. kr.

Tjörneshöfn.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Kópasker.
    Fram fór dýpkun í höfninni á Kópaskeri. Fjarlægðir voru 5.126 m 3 af efni.
    Óskað var eftir tilboði frá Björgun ehf. í verkið og var samið um það við fyrirtækið. Einnig sá Vökvaþjónusta Eyþórs ehf. á Kópaskeri um hluta af verkinu sem fólst í dýpkun frá landi þar sem fyrirséð var að tæki Björgunar kæmust ekki að grynnsta hluta dýpkunarsvæðis.
    Verkið hófst í júlí 2002 og var lokið í ágúst. Höfnin var dýptarmæld í september. Innsiglingarbauja við höfnina var endurnýjuð og var veittur styrkur af óskiptri fjárveitingu í það verk.
    Gerð viðlegubryggju fyrir smábáta var frestað og fjárveiting er til hennar var ætluð, að upphæð 1,8 millj. kr., var flutt til Raufarhafnar.
    Framkvæmdakostnaður: 4,5 millj. kr. (að meðtöldu framlagi af óskiptri fjárveitingu).

Raufarhöfn.
    Dýpkunarframkvæmdir sem hafnirnar á Raufarhöfn og Þórshöfn standa að í sameiningu hófust í maí 2002 að undangengnu útboði og er ráðgert að þeim ljúki þann 1. mars 2003, sbr. lýsingu á þessu verki í kaflanum um Þórshöfn. Þar sem framkvæmdir við dýpkun innsiglingarrennu á Raufarhöfn eru fyrr á ferð en upphaflega var áætlað var fjárveiting til verksins hækkuð um 104,0 millj. kr. í fjáraukalögum 2002.
    Unnið var að undirbúningi upplýsingakerfis um veður og sjólag. Útbúið var þráðlaust fjarskiptakerfi vegna þessa, sem ekki hefur verið gert áður. Áformað er að kerfið verði sett upp og taki til starfa vorið 2003.
    Frestað var framkvæmdum við frágang vegna niðurrifs á bryggjum og grjóthleðslu við hótel Norðurljós. Var fjárveiting sem ætluð var í það verk notuð í dýpkunarframkvæmd.
    Framkvæmdakostnaður: 71,6 millj. kr.

Þórshöfn.
    Suðurkantur Hafskipabryggunnar var lengdur um 15 m árið 2001 með því að rekið var niður stálþil til suðvesturs. Steyptur var kantur með pollum og stigum ásamt þybbum, sbr. skýrslu um hafnaframkvæmdir ársins 2001. Þessu verki lauk laust eftir áramótin 2001 / 2002 og var tekið út þann 15. janúar 2002.
    Þekja og lagnir á lengingu suðurkants Hafskipabryggjunnar var boðin út og tilboð opnuð þann 8. ágúst 2002. Í verkinu fólst að fjarlægt var óburðarhæft fyllingarefni og nothæft efni sett í staðinn og jafnað. Steypt var 547 m 2 þekja, lagðar lagnir fyrir vatn, ídráttarlagnir fyrir raflagnir, sett stigaljós og gengið frá úttaksbrunni fyrir vatn og rafmagn. Rafbúnaðarhús var byggt, sett upp aðaltafla og allt rafmagn tengt.
    Aðeins barst eitt tilboð í verkið, frá Vökvaþjónustu Kópaskers ehf., að fjárhæð 6.008.420 kr., er var 86,3% af kostnaðaráætlun hönnuða. Var samið við fyrirtækið á grundvelli þessa tilboðs.
    Verkið hófst í lok ágúst 2002 og því lauk í október 2002. Lenging suðurkants Hafskipabryggju var upphaflega á hafnaáætlun árið 2000 og var þá veitt fé til verksins. Frestun framkvæmda og breytingar á framkvæmdatíma hafa leitt til þess að kostnaður fór talsvert fram úr því sem upphaflega var áætlað.
    Viðgerð fór fram á norðurhlið Hafskipabryggjunnar, en hún hafði orðið fyrir skemmdum er togarinn Stakfell ÞH lamdist við hana í ofsaveðri. Veittur var styrkur úr Hafnabótasjóði til verksins. Í verkinu fólst að skemmt bryggjutimbur var fjarlægt og nýtt sett í staðinn. Óskað var eftir verðtilboði frá Trésmiðjunni Brú á Þórshöfn og var samið við fyrirtækið um viðgerðina fyrir 2.118.760 kr. Nokkur aukaverk bættust við á verktíma þannig að heildargreiðsla til verktaka var 3.583.460 kr.
    Verkið hófst í byrjun apríl og lauk þann 10. maí 2002.
    Þann 12. mars 2002 voru opnuð tilboð í dýpkun innsiglingar og hafnar á Þórshöfn og dýpkun innsiglingar inn að nýjum stálþilskanti við Löndunarbryggjuna á Raufarhöfn. Alls bárust fimm tilboð í verkið og varð Sæþór ehf. lægstur með tilboð í bæði verkin að fjárhæð 275.268.545 kr. er nam 56% af kostnaðaráætlun Siglingastofnunar. Var gengið til samninga við fyrirtækið á grundvelli þessa tilboðs.
    Verkið hófst í lok maí 2002 og á samkvæmt verksamningi að ljúka þann 1. september 2003. Fjárveitingu til dýpkunarframkvæmda, sem lánuð var til Vopnafjarðar árið 2001, var endurúthlutað á fjárlögum 2002.
    Frestað var framkvæmdum við stálþilsbryggju sem samkvæmt hafnaáætlun áttu að hefjast á árinu og fjárveitingin notuð í dýpkun.
    Framkvæmdakostnaður: 102,4 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 3,9 millj. kr.

Bakkafjörður.
    Boðin var út lenging löndunarbryggju og Sjafnarbryggju í nýju höfninni á Bakkafirði. Voru tilboð opnuð þann 2. júlí 2002 og í framhaldi var gengið til samninga við lægstbjóðanda, Mælifell ehf., á grundvelli tilboðs fyrirtækisins að upphæð 9.081.720 kr. sem var aðeins yfir kostnaðaráætlun. Helstu efniskaup fólust í því að keyptur var harðviður af Channel Timber Ltd. með milligöngu Ríkiskaupa fyrir 3,6 millj. kr. og boltaefni var keypt frá Sandblæstri og málmhúðun fyrir um 350.000 kr.
    Vinna við löndunarbryggju hófst um miðjan september og framkvæmdum við hana lauk um miðjan nóvember 2002. Bryggjan var lengd um 20 m til lands, steyptur var landveggur og ofan við bryggjuna var steypt 250 m 2 þekja, sem ekki hafði verið áformuð í upphafi.
    Vegna mikils hæðarmunar á veginum niður á hafnarsvæði og nýju bryggjunni var ákveðið að lækka veginn og þurfti þess vegna að moka burt talsverðu efni, eða um 740 m 3. Þessar breytingar og viðbótarverk höfðu í för með sér talsverða hækkun á greiðslu til verktaka umfram það sem samningsbundið var og munaði þar mest um þekjusteypuna.
    Pantaðir voru furustaurar og timbur í Sjafnarbryggju en tafir urðu á afhendingu efnisins þannig að ekki var unnt að hefja verkið eins og áætlað var. Er búist við að timbrið berist í ársbyrjun 2003.
    Framkvæmdakostnaður: 19,1 millj. kr.

Vopnafjörður.
    Sett var þekja á löndunarbryggju á Vopnafirði að stærð 2.358 m 2, lagðar ídráttarlagnir fyrir rafmagn og vatnslagnir, stigaljós sett, gengið frá úttaksbrunnum fyrir vatn og rafmagn, sett upp aðaltafla og allt rafmagn tengt.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð þann 24. maí 2002. Tvö tilboð bárust og var samið við Mælifell ehf. á Vopnafirði á grundvelli tilboðs fyrirtækisins er hljóðaði upp á 15.607.760 kr. og nam 74,2% af kostnaðaráætlun. Aukaverk urðu fá og smá, en heildarupphæð vegna þeirra nam 162.800 kr. Vinna við raflagnir var utan útboðs og nam 1.700.000 kr.
    Verkið hófst í byrjun júlí 2002 og var þekja steypt og kláruð í lok ágúst ásamt ídráttarlögnum og vatnslögnum.
    Innsiglingarleið innan Skipahólma að Vopnafjarðarhöfn var dýpkuð, en það verk hófst árið 2001 samkvæmt sérstökum ákvörðunum. Rennan innan við hólmann, sem er 41 m á breidd, var dýpkuð í 9,0 m dýpi inn á móts við Kaupfélagsbryggjuna. Rennan frá Kaupfélagsbryggju að snúningshring var dýpkuð í 8,6 m dýpi. Lengd rennu er 450 m inn að bryggju. Í heild var dýpkað á 51.328 m 2 svæði.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð þann 8. ágúst 2001. Tvö tilboð bárust og var því lægra, sem barst frá Sæþóri ehf. tekið, að upphæð 97.500.000 kr.
    Verkið hófst í lok maí 2001 og var það tekið út þann 1. júní 2002.
    Á árinu 2001 námu greiðslur til verktaka 62.724.915 kr. og árið 2002 55.583.146 kr.
    Sett voru upp innsiglingarmerki fyrir nýju innsiglingarleiðina og voru þau tekin í notkun þann 25. september 2002. Þá var um svipað leyti komið fyrir tveimur nýjum baujum sem marka ytri enda á siglingaleiðinni.
    Snemma á árinu heimilaði Hafnaráð greiðslu á tjónastyrk að upphæð 1,9 millj. kr. vegna viðgerðar á stálþili löndunarbryggju. Stálþilið hafði orðið fyrir skemmdum í byggingu og skipta þurfti um 10 plötur á miðkafla þilsins. Var það verk unnið síðastliðið haust og lauk skömmu fyrir áramót 2002/2003. Þá var innheimt verktrygging að upphæð kr 4,5 millj. frá þeim verktaka sem vann að byggingu stálþilsins á sínum tíma.
    Framkvæmdakostnaður: 72,7 millj. kr.
    Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 1,9 millj. kr.
    Greidd verktrygging: 4,5 millj. kr.

Borgarfjörður eystri.
    Heimild var veitt til að nota ónotaða fjárveitingu frá dýpkun sem unnið var að á síðasta ári í ýmsan frágang við bátahöfnina í Hafnarhólma. Bátauppsátur var lengt og slitlag við höfnina endurnýjað á nokkrum stöðum.
    Þá var veittur styrkur af óskiptri fjárveitingu til að setja upp ný leiðarmerki sem merkja siglingaleiðina inn á bátahöfnina við Hafnarhólma.
    Framkvæmdakostnaður: 1,9 millj. kr. (að meðtöldu framlagi af óskiptri fjárveitingu).

Seyðisfjörður.
    Þar var unnið að byggingu nýrrar ferjuhafnar. Standa að þeim framkvæmdum Siglingastofnun, Vegagerðin og Seyðisfjarðarbær. Verkefnið var ekki á samþykktri hafnaáætlun fyrir árin 2001–2004, en Alþingi tók ákvörðun um að veita í það 199,9 millj. kr. á fjárlögum 2002. Framlag ríkisins til hafnarmannvirkja þetta árið hækkaði því frá því sem hafnaáætlun gerði ráð fyrir en á móti kom lækkun á nokkrum stöðum þannig að heildarframlag varð 1.397 millj. kr. í stað 1.291,5 millj. kr. sem hafnaáætlun gerði ráð fyrir.
     Byrjað var á fergingu á svæði fyrir væntanlega bryggju, þjónustuhús og brú á Fjarðará. Í verkinu fólst að keyrður var út fyrirstöðugarður og gengið frá sigplötum. Síðan var efni dælt úr dýpkun inn fyrir garðana og sá Björgun ehf. um það verk. Strax og búið var að dæla hluta efnis bak við garðinn hófst vinna við fargið. Efni til verksins var tekið úr námum við suðurströnd Seyðisfjarðar utan byggðar úr skriðum undir Strandatindi. Var annars vegar tekið efni úr skeringum meðfram vegi og hins vegar úr námum í svonefndum Borgartanga. Þessar námur eru í u.þ.b. 2,0 til 3,5 km fjarlægð frá vinnusvæðinu á leirunum. Aðkeyrt efni í fyrirstöðugarðinn og fargið var um 34.000 m 3. Einnig var tekið efni í fargið, um 45.000 m 3, úr ósi Sörlastaðaár með dýpkunarskipi frá Björgun ehf.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð þann 11. desember 2001. Höfðu þá borist 11 tilboð. Lægstbjóðandi var Gáma- og tækjaleiga Austurlands ehf. er bauð 18.125.000 kr. sem nam 76% af kostnaðaráætlun hönnuða og var gerður verksamningur við fyrirtækið.
    Verkið hófst í byrjun janúar 2002 og lauk í endaðan apríl 2002. Var verkið nokkuð á eftir áætlun. Orsakaðist það m.a. af óvenjulegu hlýviðri og stórrigningum í janúar sem gerðu verktaka erfitt fyrir. Varð að takmarka öxulþunga á vegum að námum austan bæjarins sem varð til þess að verktaki gat ekki nýtt sér vegina. Einnig gerði bleytan það að verkum að erfitt var að nota efnið úr Borgartanga. Var þá dýpkunarskip frá Björgun ehf. fengið til að flytja efni sjóleiðina úr ós Sörlastaðaár að vinnusvæði við leirurnar. Þessar breytingar og tafir sem urðu á verktímanum ollu nokkurri hækkun á kostnaði.
    Boðinn var út fyrri áfangi dýpkunar við nýja ferjulægið og voru tilboð opnuð þann 3. janúar 2002. Þrjú tilboð bárust, hið lægsta frá Björgun ehf. að upphæð 18.095.000 kr., er nam 87,0% af kostnaðaráætlun hönnuða, og var gerður verksamningur við Björgun ehf.
    Verkið hófst í lok febrúar 2002 og var tekið út þann 22. maí 2002. Magn dýpkunar nam um 44.000 m 3 og var efni úr dýpkuninni dælt í landfyllingu innan fyrirstöðugarðs eins og lýst er hér að framan.
    Gerður var samningur við Verkfræðstofu Austurlands og Björn Kristleifsson arkitekt um skipulag svæðisins og gerð útboðsgagna fyrir þjónustubyggingu, landgang, götur, bílaplön og lagnir. Verkfræðistofan Burður og Siglingastofnun sáu um hönnun og útboðsgögn fyrir bryggju og akstursrampa.
    Um vorið bauð Vegagerðin út byggingu brúar yfir Fjarðará. Framkvæmdum við brúna lauk á haustmánuðum.
    Bygging stálþilsbryggju ásamt seinni áfanga dýpkunar var boðin út í maí og samið við lægstbjóðanda, Gáma- og tækjaleigu Austurlands ehf, sem bauð 72.968.740 kr. í verkið. Var það 78% af kostnaðaráætlun Siglingastofnunar. Stálþil og festingar var keypt frá Anker Schröder fyrir 59.112.752 kr. að undangengnu útboði. Vinna við stálþilið hófst í júní og í júlí og ágúst var fjarlægt farg af hafnar- og brúarstæðinu. Síðan var hafin römmun stálþils, fylling að þili og kantsteypa. Þilið er 170 m langt hannað fyrir 10 m dýpi. Þvert á vesturenda þess kemur 34 m langt þil þar sem byggður verður akstursrampur. Gáma- og tækjaleigan átti samkvæmt samningi að hafa lokið verki sínu 15. nóvember en um áramót var enn eftir að ljúka frágangi kantbita og dýpkun var ekki að fullu lokið.
    Þann 16. júlí voru opnuð tvö tilboð sem fólu í sér lokaverkþætti við gerð ferjulægisins. Þar var annars vegar um að ræða byggingu þjónustuhúss og landgangs og hins vegar gatnaog vegagerð, bílaplön og lagnir og þekju við stálþilið. Malarvinnslan ehf. á Egilsstöðum átti lægsta tilboð í bæði verkin. Bauð 137.401.597 kr. í þjónustuhús og landgang, 108% af áætlun, og 119.789.732 kr. í götur, vegi, plön og þekju og var það 91% af kostnaðaráætlun hönnuða. Vegagerðin er aðili að síðara útboðinu ásamt hafnar- og bæjarsjóði Seyðisfjarðar. Verksamningar voru undirritaðir við Malarvinnsluna og í ágústbyrjun hófust framkvæmdir við þjónustuhús og gatnagerð. Miðað er við að 15. maí 2003 verði framkvæmdir komnar á það stig að hægt verði að taka á móti nýrri ferju Smyril Line og í ágústbyrjun 2003 á framkvæmdum að vera að fullu lokið.
    Framkvæmdakostnaður: 260,2 millj. kr.

Fjarðabyggð.
     Mjóifjörður: Samkomulag var gert milli Fjarðabyggðar og Mjóafjarðarhrepps um að Fjarðabyggð yfirtæki höfnina í Mjóafirði. Hafnarreglugerð fyrir Mjóafjarðarhöfn var felld úr gildi með reglugerð nr. 732/2002 og höfnin felld undir Hafnarreglugerð fyrir hafnir Fjarðarbyggðar nr. 390/2000.
    Smábátahöfnin á Mjóafirði var stækkuð. Hafnarkvíin var dýpkuð um 3.800 m 3 til vesturs og gerður var 68 m langur skjólgarður utan með dýpkunarsvæðinu. Í það fóru 7.780 m 3 af grjóti.
    Verkið var ekki boðið út heldur óskað eftir tilboði frá Vélaleigu Sigga Þórs hf. og var gerður verksamningur við þetta fyrirtæki að upphæð 7.840.000 kr.
    Verkið hófst í lok ágúst 2002 og lauk þann 9. október.
    Gerður var landstöpull, settar niður þrjár flotbryggjueiningar og landgangur. Samið var við Árverk ehf. um gerð landstöpulsins að undangenginni verðkönnun, en við Einar Dalberg Einarsson um að smíða þriggja eininga flotbryggju. Starfsmenn Mjóafjarðarhrepps sáu um að festa flotbryggju og annan frágang.
    Vinna við landstöpul hófst í lok október 2002 og lauk í desember. Vinna við flotbryggjur hófst í desemberbyrjun 2002 og lauk í janúar 2003.
     Eskifjörður: Lokið var uppgjöri frá árinu 2000 vegna hafskipabryggju.
     Neskaupstaður: Togarabryggjan í Neskaupstað var lengd til suðurs um 83 m. Rekið var niður stálþil, steyptur kantur með pollum og stigum ásamt þybbum. Verk þetta var boðið út og bárust fimm tilboð er opnuð voru þann 24. júlí 2001. Var svo gengið til samninga við lægstbjóðanda, Gáma- og tækjaleigu Austurlands, er bauð 21.003.050 kr. í verkið og nam sú fjárhæð 76,2% af kostnaðaráætlun hönnuða.
    Verktaki hóf störf í lok september 2001, verklok voru í febrúarbyrjun 2002 og verkið var tekið út þann 4. apríl 2002. Þær breytingar voru gerðar að í stað þess að reka stálþil í gafl var ákveðið að lengja bryggjuþilið um 13 m. Efni í fyllingu innan stálþils var tekið úr Viðfirði.
    Á árinu var síðan gengið frá lögnum og bryggjuþekju við lengingu togarabryggjunnar. Í verkinu fólst að ónothæft fyllingarefni var fjarlægt og burðarefni sett í þess stað, steypt var 1.494 m 2 þekja, lagðar ídráttarlagnir fyrir rafmagn og vatnslagnir. Sett voru stigaljós, gengið frá úttaksbrunni fyrir vatn og rafmagn, sett upp aðaltafla og allt rafmagn tengt.
    Verkið var boðið út og þrjú tilboð bárust. Tvær tilboðsfjárhæðir voru jafn háar, tilboð Nestaks ehf. og Haka ehf., bæði í Neskaupstað, en gengið var til samninga við Haka ehf. Samningsverð var 12.000.000 kr. er nam 85,3% af kostnaðaráætlun.
    Utan útboðsverksins var unnið að malbikun þekju, u.þ.b. 950 m 2 og sáu bæjarstarfsmenn um það verk. Einnig vann fyrirtækið Rafalda ehf. að raflögnum og kostaði það verk 2.000.000 kr. Ekki voru gerðar umtalsverðar breytingar á verkinu.
    Verk hófst í byrjun júlí 2002 og var þekjan steypt og fullgerð fyrir septemberlok ásamt ídráttarlögnum og vatnslögnum.
    Gerður var hafnargarður við fiskihöfnina í Neskaupstað. Í verkinu fólst að taka upp kjarna og grjót úr núverandi hafnargarði og að vinna kjarna og flokkað grjót í námu í Skuggahlíðarbjargi. Kjarni og grjót frá þessum stöðum var flutt í nýtt garðstæði austan við núverandi hafnargarð. Um það bil 24.000 m 3 af flokkuðu grjóti og kjarnafyllingu fóru í garðinn.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð þann 22. maí 2002. Þá höfðu borist sex tilboð, hið lægsta frá Klæðningu ehf. í Kópavogi, að upphæð 24.480.000 kr. og nam það 82,7% af kostnaðaráætlun hönnuða. Var gengið til samninga við fyrirtækið á grundvelli tilboðsins. Verktaki hóf störf í júlíbyrjun og lauk verkinu í októberbyrjun 2002. Verkþættir utan útboðsverks voru einungis raflagnir að garðsendaljósum.
    Fiskihöfnin í Neskaupstað var dýpkuð í 9,5 m og hluti efnisins sem þaðan barst var notaður í undirfyllingu í skjólgarð norðan innsiglingar inn í fiskihöfnina. Heildarmagn efnis úr dýpkun var um 150.000 m 3.
    Verkið var boðið út og bárust í það átta tilboð sem opnuð voru þann 20. júní 2002. Lægstbjóðandi var Gáma- og tækjaleiga Austurlands á Reyðarfirði og var samið við fyrirtækið um verkið á grundvelli tilboðs þess að fjárhæð 55.840.000 kr. er nam 66,8% af kostnaðaráætlun.
    Verkinu var ekki að fullu lokið um áramót.
    Jarðvegsrannsóknir í stæði væntanlegs skjólgarðs norðan innsiglingar leiddu í ljós að byggja þarf garðinn í áföngum. Á þessu ári var losað efni úr dýpkun í garðstæðið, en gert er ráð fyrir að ljúka garðinum á næstu þremur árum.
    Reyðarfjörður: Unnið var að undirbúningsrannsóknum og umhverfismati fyrir væntanlega stóriðjuhöfn við Hraun. Framkvæmdum var að öðru leyti frestað og var fjárveiting til verksins, að upphæð 24,0 millj. kr., færð til Raufarhafnar í fjáraukalögum 2002.
    Framkvæmdakostnaður: 125,5 millj. kr.

Fáskrúðsfjörður.
    Fjárveitingu í loðnubryggju, sem á síðasta ári var lánuð til Vopnafjarðar, var endurúthlutað á fjárlögum 2002.
    Byggð var 40 m löng harðviðarbryggja við loðnuverksmiðjuna á Fáskrúðsfirði. Um 9.000 m 3 af fyllingarefni var ekið út til að fá bryggjuna í sömu línu og eldri bryggju lítið eitt norðar í firðinum. Steyptur var 41 m langur landveggur og burðarvirki bryggjunnar fest í hann. Reknir voru niður 28 staurar og bryggjan stífuð með láréttum stálbitum. Dýpi við þessa nýju bryggju verður um 8,5 m.
    Verkið var boðið út og tilboð í það opnuð þann 8. maí 2002. Borist höfðu sex tilboð og var gengið til samninga við Elinn ehf. á grundvelli tilboðs fyrirtækisins að upphæð 16.237.000 kr. er nam 81% kostnaðaráætlunar og var lægst tilboðanna.
    Einnig var leitað eftir kostnaðaráætlun hjá fjórum smiðjum vegna smíði stálfestinga fyrir bryggjuna. Lægst varð stálsmiðjan Stálstjörnur ehf. og var samið við fyrirtækið um þetta verk fyrir 1.678.204 kr.
    Nokkuð vantaði upp á magn fyllingar í útboðsgögnum, eða um 3.000 m 3, önnur aukaverk voru minni háttar.
    Utan útboðsverksins var grjóti raðað í fláa við norðurhorn bryggjunnar.
    Verkið hófst í júní 2002 og var tekið út í desember 2002. Nokkrar tafir urðu á því og var verkinu skilað um hálfum öðrum mánuði síðar en verksamningur kvað á um.
    Helstu efniskaup fólust í kaupum á harðviði af Channel Timber Ldt. með milligöngu Ríkiskaupa fyrir um 12,9 millj. kr. Einnig var keypt boltaefni af Ísól hf. fyrir um 1,2 millj. kr.
    Framkvæmdakostnaður: 39,0 millj. kr.

Stöðvarfjörður.
    Þar var gengið frá uppgjöri framkvæmda við smábátahöfn, slitlagi og lýsingu við tengibraut o.fl., sem eftir var við lokafrágang á árunum 2000 og 2001.
    Framkvæmdakostnaður: 4,7 millj. kr.

Breiðdalsvík.
    Á Breiðdalsvík voru gerðar lagfæringar á grjótvörn utan á veg sem liggur niður að nýja stálþilskantinum, en þessi grjótvörn hafði laskast mikið í óveðri sem gekk yfir landið í byrjun febrúar 2002. Viðgerðin fólst í því að endurraðað var um 500 m 3 af grjóti og bætt við um 700 m 3 af flokkuðu grjóti.
    Veittur var tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði til viðgerðarinnar.
    Verkið var ekki boðið út heldur samið við fyrirtækið Dal-Björgu ehf. um framkvæmd þess. Samningsverð var 2.075.000 kr.
    Verkið hófst um miðjan september 2002 og var það tekið út í nóvember 2002.
    Innsiglingarbauja við höfnina var endurnýjuð. Samþykkt var að veita styrk af óskiptri fjárveitingu til að kaupa nýja bauju og koma henni fyrir. Einnig var veittur styrkur af óskiptri fjárveitingu til að flytja grjót frá Kambanesskriðum inn á Breiðdalsvík. Vegagerðin þurfti að fjarlægja grjótið og þótti hagkvæmt að eiga það til síðari nota við höfnina á Breiðdalsvík.
    Frágangi á lögnum og þekjusteypu við stálþilsbryggju var frestað og fjárveiting til verksins að upphæð 5,0 millj. kr. færð til Raufarhafnar í fjáraukalögum 2002.
    Framkvæmdakostnaður: 2,4 millj. kr. (að meðtöldu framlagi af óskiptri fjárveitingu). Tjónastyrkur úr Hafnabótasjóði: 2,5 millj. kr.

Djúpivogur.
    Steypt var þekja, alls 1.980 m 2, á þilið sem rekið var niður árið 2001. Byggt var ljósamasturshús og raflýsingu komið upp á þekjunni. Lagðar voru vatns- og raflagnir undir þekjuna og vatnsbrunnar voru settir upp við kantinn. Einnig voru sett ljós við neyðarstiga á bryggjunni. Kostnaðaráætlun verksins hljóðaði upp á 24.965.786 kr.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð þann 30. maí 2002. Höfðu borist níu tilboð, þar af þrjú frávikstilboð. Gengið var til samninga við Austverk ehf. á grundvelli tilboðs fyrirtækisins að upphæð 19.919.986 kr., er nam 79,8% af kostnaðaráætlun og var það lægst hinna almennu tilboða.
    Verkið hófst um miðjan júlí 2002 og var tekið út þann 27. nóvember 2002.
    Fylliefni í steinsteypu voru fengin ofan af Héraði. Steypusýni voru send Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og stóðust þau þær kröfur um brotþol sem settar voru fram í verklýsingu.
    Verkið gekk samkvæmt áætlun. Aukaverk voru nokkur og fólust einkum í því að háspennustrengur var lagður frá spennistöð við loðnuverksmiðju niður að hafnarsvæðinu. RARIK sá um þessa framkvæmd. Byggja þurfti spennistöð utan um búnað og var hún höfð áföst ljósamasturshúsinu. Þá var steyptur aukafleki af þekju til að bæta aðkomu að svæðinu. Verktakinn sá einnig um að steypa brunna fyrir loðnubræðsluna. Undirbyggja þurfti veginn frá verksmiðjunni niður að bryggju, en reiknað hafði verið með að hægt yrði að malbika beint ofan á veginn eins og honum var skilað árið áður.
    Um haustið voru sett upp leiðarmerki fyrir innsiglinguna að nýju höfninni í Gleðivík og voru þau tekin í notkun í lok árs. Þá var skipt um tvær baujur á siglingarleið inn á gömlu höfnina. Veittur var til þess styrkur af óskiptri fjárveitingu.
    Gerð löndunarkants í Gleðivík reyndist ekki eins kostnaðarsöm og ætlað var og voru 15,0 millj. kr. færðar af fjárveitingu ársins 2002 til Raufarhafnar með fjáraukalögum 2002.
    Framkvæmdakostnaður: 28,7 millj. kr. (að meðtöldu framlagi af óskiptri fjárveitingu).

Höfn í Hornafirði.
    Unnið var að venjubundinni viðhaldsdýpkun og dældi dýpkunarpramminn Soffía um 24.000 m 3 úr höfninni.
    Byggðir voru tveir leiðigarðar í mynni hafnarinnar, annars vegar út frá Mikley og hins vegar frá Óslandi. Í þá fóru alls um 2.000 m 3 af flokkuðu grjóti (0,1–0,8 t) og um 8.000 m 3 af sprengdum kjarna. Sett var ljós á enda garðsins út frá Óslandi.
    Grjót og kjarni til verksins var sótt í námu við gömlu öskuhaugana rétt utan við Höfn.
    Verkið var boðið út og voru tilboð opnuð þann 20. september 2001. Einungis bárust 2 tilboð og voru bæði frá Rósabergi ehf. Var annað tilboðið frávikstilboð sem gerði ráð fyrir að opnuð yrði grjótnáma í Mikley, en verkkaupi hafnaði þeirri hugmynd.
    Gengið var til samninga við Rósaberg ehf. á grundvelli tilboðs fyrirtækisins að fjárhæð 17.447.500 kr. er var 3,8% yfir kostnaðaráætlun.
    Aukaverk fólust í því að raðað var grjóti í fláa að trébryggju við Óslandsgarð. Einnig fór meira af kjarna í Mikleyjargarð en gert hafði verið ráð fyrir. Nam kostnaðarauki vegna þessa 1.168.500 kr.
    Verkið hófst í janúar 2002 og var það tekið út í júní 2002.
    Byggð var upp aðstaða fyrir smábáta í norðvesturhorni hafnarinnar. Framkvæmdir fólust í að dýpkuð var hafnarkví í 2,5 m dýpi. Alls var mokað þar upp um 7.000 m 3 af efni. Grjóti var raðað í fláa umhverfis höfnina. Þá voru steyptir tveir landstöplar og flotbryggjur festar á þá. Keyptar voru tvær 15x3 m steinsteyptar flotbryggjur og gömlu bryggjurnar tengdar við þær. Raflýsingu var komið upp, steyptir stöplar undir tvö ljósamöstur og þau sett upp. Tengistólpar voru settir á flotbryggjurnar.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð þann 20. september 2001. Aðeins barst eitt tilboð, frá Rósabergi ehf., og hljóðaði það upp á 8.252.600 kr. er var 91,5% kostnaðaráætlunar og var samið við fyrirtækið á grundvelli tilboðs þess. Einnig var samið við Króla ehf. um kaup og niðursetningu á flotbryggjum og var sá samningur að upphæð 6.717.624 kr.
    Aukaverk fólust í því að um 1.700 m 3 af sprengdum kjarna fór í að verja fláann í kvínni þar sem efnið var leirkennt og stóð illa. Þá var vatn lagt að smábátaaðstöðunni og gert þar plan. Samtals nam kostnaður við þessi aukaverk 2.171.915 kr.
    Verkið hófst í byrjun desember 2001 og var tekið út í júní 2002.
    Undirbúningur að Faxeyrarhöfn, sem fé var veitt til árin 2000 og 2001, reyndist ekki eins kostnaðarsamur og ráð var fyrir gert. Því voru fluttar 6,0 millj. kr. af fjárveitingu til Raufarhafnar í fjáraukalögum 2002.
    Framkvæmdakostnaður: 39,4 millj. kr.

Vestmannaeyjar.
    Stálþil við Ískant og Suðurkant var endurnýjað. Í verkinu fólst að rekið var niður 142 m stálþil og var nýja þilið rekið niður um 1,5 m framan þess gamla. Einnig var steyptur kantur og komið fyrir pollum og fyllt að þilinu og skipt um fyllingu að hluta. Einnig þurfti að sprengja um 60 m skurð fyrir þilinu. Stálþil og festingaefni var keypt fyrir 29. 362.717 kr. frá Anker Schröder að undangengnu útboði.
    Rekstur stálþilsins var boðinn út þann 26. apríl 2002 og gengið til samninga við lægstbjóðanda, Ísar ehf., á grundvelli tilboðs fyrirtækisins að upphæð 46.254.300 kr., 76% af áætlun Siglingastofnunar. Verkið hófst í júníbyrjun og var að mestu lokið í október. Nýja þilið er gert fyrir 9,0 m dýpi.
    Endurbygging þekju og lagna í I. áfanga Nausthamarsbryggju var boðin út í október 2001 og samið við lægstbjóðanda, 2–Þ ehf. í Vestmannaeyjum. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á 15.842.479 kr. Flatarmál þekju í þessum áfanga varð um 1.680 m 2, nokkru meira en gert var ráð fyrir í útboði.
    Endurbygging þekju og lagnir í II. áfanga Nausthamarsbryggju var boðin út í maí 2002 og samið við lægstbjóðanda, Vélaþjónustu Þórðar ehf. í Vestmannaeyjum. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á 27.268.040 kr. og var það 84% af áætlun Siglingastofnunar. Lagðar voru vatnslagnir í bryggjuna og ídráttarrör fyrir rafmagn. Flatarmál þekju í þessum áfanga var um 3.160 m 2. Verki lauk haustið 2002 að frátöldum minni háttar frágangi og bíður uppgjör þess að honum verði lokið.
    Eftir er að bjóða út raflögnina á Nausthamarsbryggjuna.
    Heildarkostnaður við endurbyggingu Nausthamarsbryggju var í árslok 2002 orðinn um 225 millj. kr.
    Framkvæmdum við smábátahöfn sem hófust árið 2000 var haldið áfram, sbr Skýrslu samgönguráðherra um hafnarframkvæmdir fyrir árin 2000 og 2001 og er nú aðeins eftir að ganga frá lýsingu og vatni á bryggjurnar. Mun það væntanlega verða gert í febrúar eða mars 2003.
    Grafskip Vestmannaeyjarhafnar dýpkaði við Nausthamarsbryggju og Friðarhafnarkant. Eftir er að dýptarmæla til að ganga endanlega úr skugga um hversu mikið hefur verið fjarlægt, en áætlað magn er 10.000 m 3.
    Fjárveiting var á fjárlögum til að byrja framkvæmdir við norður- og austurkant Friðarhafnar. Unnið var að hönnun og undirbúningi og stálþil og festingaefni boðið út skömmu fyrir áramót.
    Samþykkt var að veita styrk af óskiptri fjárveitingu til að setja upp ný kanttré efst við Nausthamarsbryggjuna á þeim hluta hennar sem ekki hefur verið endurnýjaður. 2Þ ehf. annaðist verkið.
    Endurbygging Nausthamarsbryggju reyndist ódýrari en áætlað var og voru fluttar 18,0 millj. kr. af fjárveitingu til verksins til Raufarhafnar í fjáraukalögum 2002.
    Samkvæmt hafnaáætlun var áformað að vinna að byggingu þurrkvíar í Vestmannaeyjum árin 2002–2005. Alþingi ákvað að lækka fjárveitingu til verksins á árinu 2002 um 44,6 millj. kr. frá því sem gert var ráð fyrir í hafnaáætlun. Það varð því ekki af framkvæmdum á árinu og er byggingu þurrkvíar slegið á frest í bili.
    Framkvæmdakostnaður: 150,8 millj. kr. (að meðtöldu framlagi af óskiptri fjárveitingu).

Þorlákshöfn.

    Samkvæmt hafnaáætlun var unnið að endurbótum á tunnu á enda Suðurvarargarðs. Tunnan var byggð þegar höfnin var stækkuð á árunum 1975–76 og hefur verið undir stöðugu álagi síðan. Nú er svo komið að staurar í efri hluta hennar eru við það að detta í sundur og hætta á að grjót fari að hrynja út.
    Verkfræðistofan Burður var fengin til að gera tillögur um úrbætur og í framhaldinu að annast hönnun samkvæmt þeirri lausn sem valin var. Efni til viðgerðar var pantað og keypt í gegnum Guðmund Arason ehf. og Ísbolta hf. og samið var um framkvæmd verksins við Sjóverk ehf. í nóvember 2002. Umsaminn kostnaður er um 4,9 millj. kr. Beðið er eftir hagstæðu sjólagi til að vinna verkið.
    Unnið var að lítilsháttar viðhaldsdýpkun við Suðurvararbryggju í september 2002. GPkranar önnuðust verkið.
    Framkvæmdakostnaður: 3,3 millj. kr.

Grindavík.
    Þar var unnið að byggingu brimvarnargarða austan og vestan innsiglingarrennu. Verkið var boðið út á síðasta ári og samið við lægstbjóðanda, Suðurverk hf., í byrjun maí 2001. Tilboðsupphæð verktaka var 146.722.380 kr. Framkvæmdum við garðana lauk þann 11. nóvember 2002. Vígsla mannvirkja fór fram litlu síðar að viðstöddum samgönguráðherra.
    Efnisþörf í garðana reyndist nokkru meiri en útboðsgögn gerðu ráð fyrir. Olli einkum erfiðleikum magnaukning í stærsta grjótflokki, 16 til 30 tonna steinar, en grjótnáman gaf minna af grjóti í þeim stærðarflokki en reiknað var með. Þurfti því að losa talsvert meira af efni í námunni í Eldvarpahrauni en notað var í garðana til að fá nægjanlegt magn í stærsta flokki. Heildarmagn í vesturgarð varð 73.803 m 3 og í austurgarð fóru 102.809 m 3, samtals 176.612 m 3 í báða garða og þar af eru 7.750 m 3 í stærsta flokki.
    Rafmagn var lagt fram báða garðana og komið fyrir lýsingu á enda þeirra.
    Vegna magnaukningar og vegna þess að náma var lélegri en rannsóknir höfðu gefið til kynna urðu greiðslur til verktaka talsvert hærri en verksamningur hljóðaði upp á. Þrátt fyrir þetta nam heildarkostnaður frá upphafi við báða garðana einungis rétt um 200 millj. kr., sem er 16% undir því sem hafnaáætlun gerði ráð fyrir.
    Ákveðið var að setja upp bauju, svonefnt stangardufl, við innsiglinguna. Veittur var styrkur til verksins af óskiptri fjárveitingu.
    Framkvæmdakostnaður: 144,0 millj. kr.

Sandgerði.
    Unnið var að dýpkun hafnarinnar samkvæmt samningi sem gerður var við Hagtak hf. í nóvember á síðasta ári. Á um 1.800 m 2 svæði við enda Norðurgarðs, þar sem stálþilsbryggja á að koma, var dýpkað í 9 m og sunnan og vestan við þetta svæði voru 3.300 m 2 dýpkaðir í 6 m. Að auki var dýpkað um 1.200 m 2 svæði í innsiglingunni við snúninginn utan hafnarmynnis. Á öllum þessum svæðum var klöpp í botni sem þurfti að sprengja. Sem viðbótarverk var samið við verktaka um að nema á brott um 1.500 m 3 af lausu efni við flotbryggjur sunnan til í höfninni. Allt efni úr dýpkun var losað í sjó út við Garðskaga. Verkið var tekið út með mælingu 6. júní 2002.
    Í hafnaáætlun var heimild til að hefja dýpkunarframkvæmdir fyrir 165 millj. kr. árið 2001 en ríkisframlag það ár var aðeins fyrir um 1/3 hluta verksins. Samkvæmt áætluninni áttu 2/3 hlutar fjárveitingar frá ríkinu að koma árið 2004. Vegna samdráttar í útgerð og minni umsvifa við höfnina í Sandgerði ákváðu heimamenn að fara hægar í sakirnar og halda verkinu innan þeirra marka sem fjárveiting 2001 miðaðist við.
    Boðin var út 50 m stálþilsbryggja við enda Norðurgarðs og bárust sjö tilboð og eitt frávikstilboð. Samið við lægstbjóðanda, Guðlaug Einarsson ehf. um framkvæmdina, en tilboð hans nam 90,2% af kostnaðaráætlun hönnuða. Byrjað var á verkinu í lok apríl og var lokið við að steypa kant í ágúst. Bryggjan var lengd um 25 m í átt að innsiglingu og er hönnunardýpi 9,0 m.
    Á árinu 2003 er áformað að ljúka við þekju og lagnir.
    Gerð flotbryggju árið 2000 varð ódýrari en ætlað var og voru fluttar 2,0 millj. kr. af fjárveitingu þess verks til Raufarhafnar.
    Samkvæmt hafnaáætlun var áformað að lengja norðurhlið Suðurbryggju í Sandgerði til austurs með 65 m löngu stálþili, en þessu verki var slegið á frest og framkvæmdafé varið í annað á fjárlögum 2002.
    Framkvæmdakostnaður: 75,6 millj. kr.

Hafnasamlag Suðurnesja.
    Hafnasamlag Suðurnesja nær nú aðeins til hafnarsvæðis Reykjanesbæjar (Njarðvík, Keflavík, Helguvík og Hafnir) þar sem Gerðahreppur og Vatnsleysustrandarhreppur sögðu sig úr hafnasamlaginu árið 2002.
    Lokið var framkvæmdum við öldudempara við Helguvíkurhöfn. Sprengt var úr bergstálinu á um 70 m kafla upp af brimvarnargarðinum. Sprengdum kjarna var síðan ýtt fram og grjóti raðað utan á. Er þetta gert til að draga úr því að alda sem leiðir fyrir enda brimvarnargarðsins endurkastist inn í höfnina. Samhliða því að unnið var grjót í brimvörn utan á Garðsbryggju árið 1999 var sprengdur stallur á því svæði þar sem öldudemparinn átti að koma. Verkinu var síðan fram haldið árið 2002 og lauk skömmu fyrir áramótin. SEES ehf. í Njarðvík annaðist framkvæmd við öldudemparann.
    Framkvæmdir við grjótgarð í Njarðvík voru undirbúnar. Samkvæmt hafnaáætlun var veitt 5 millj. kr. til verksins á árinu 2002 og gert er ráð fyrir að því ljúki árið 2004. Verkfræðistofa Suðurnesja vann að hönnun og gerð útboðsgagna með aðstoð frá Siglingastofnun.
    Frestað var framkvæmd við tvo festipolla í Helguvík, sem gert var ráð fyrir árið 2002 samkvæmt hafnaáætlun. Heimamenn sjá fram á að þurfa að lengja hafnarbakkann í Helguvík ef verður af byggingu stálröraverksmiðju þar. Fari svo verða pollar byggðir samhliða lengingu kantsins.
    Framkvæmdakostnaður: 21,5 millj. kr.

Hafnarfjörður.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. Sjá kafla hér á eftir um framkvæmdir sem voru ekki ríkisstyrktar.

Kópavogur.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir.

Reykjavík.
    Engar ríkisstyrktar framkvæmdir. Sjá kafla hér á eftir um framkvæmdir sem voru ekki ríkisstyrktar.

Hafnarframkvæmdir sem voru ekki ríkisstyrktar.


    Í höfnum landsins var unnið að ýmsum framkvæmdum sem voru ekki ríkisstyrktar. Eftirfarandi hafnir hafa komið upplýsingum um framkvæmdir á þeirra vegum á framfæri við Siglingastofnun.

Grundartangi.
    Þar var hafinn undirbúningur að stækkun hafnarinnar með því að leita upplýsinga um matsskyldu hjá Skipulagsstofnun o.fl. Kostnaður var um 1 millj. kr.

Hafnarfjörður.
    Unnið var að landgerð og lóðaframkvæmdum í Suðurhöfninni við Hvaleyrarbakka. Framkvæmdakostnaður: 39,1 millj. kr.

Reykjavík.
    Í fjárhags- og framkvæmdaáætlun Reykjavíkurhafnar fyrir árin 2002 var gert ráð fyrir að ráðstöfunarfé hafnarsjóðs yrði að megin hluta varið til að ljúka áföngum í uppbyggingu hafnarmannvirkja og lands í Sundahöfn fyrir áætlanasiglingar en þessi verk hafa staðið yfir undanfarin fjögur ár. Þessum framkvæmdum lauk flestum á miðju ári 2002 og þá tóku við ný verkefni í þróun og uppbyggingu hafnarinnar. Þessi verkefni voru til dæmis landgerð og undirbúningur að þróun hafnar á Klettasvæði í Sundahöfn og bygging hafnarbakka við Norðurgarð í gömlu höfninni.
    Vegna áforma um byggingu tónlistahúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels í Austurhöfn er reiknað með að löndunaraðstaða fiskiskipa muni færast burt úr Austurhöfn og því komið að aðstöðubótum fyrir sjávarútveg í Vesturhöfninni en þangað er miðað við að sjávarútvegsstafsemi muni í framtíðinni færast í auknum mæli. Fyrsti áfangi þessa verks er uppbygging nýrrar hafnaraðstöðu við Norðurgarð fyrir útgerðarstarfsemi Granda hf.
    Lokið var frágangi og dýpkun við Kleppsbakka í Vatnagörðum fyrir farmstöð Eimskips. Samhliða frágangi bakka var lokið landgerð og frágangi lands sunnan bakkans, en þar hefur Eimskip verið úthlutað fimm hektara viðbótarlandi sem tekið var í notkun um mitt ár 2002. Á árinu var unnið að ýmsum verkefnum í tengslum við byggingu á nýju og glæsilegu vöruhóteli Eimskips við Sundabakka sem hafin var bygging á vorið 2002 og tekið var í notkun nú í lok febrúar 2003.
    Lokið var frágangi Vogabakka í Kleppsvík fyrir farmstöð Samskipa. Samhliða frágangi bakka var lokið landgerð og frágangi lands við bakkann, en þar hefur Samskip verið úthlutað tveggja hektara viðbótarlandi sem tekið var í notkun um mitt ár 2002. Unnið var að dýpkun nýrrar innsiglingar að Kleppsvík á árinu. Hér er um stórt dýpkunarverk að ræða sem hófst á árinu 2001 og miðað er við að ljúki vorið 2003. Allt efni sem upp kemur við dýpkun er nýtt til landgerðar á nálægum svæðum.
    Hafnar voru framkvæmdir við nýjan hafnarbakka við Norðurgarð og lokið var greftri efnisskiptaskurðar.
    Í framkvæmdaáætlun var reiknað með að hefjast handa við undirbúning að hafnargerð á Klettasvæði þegar fram kæmi á árið 2002. Hafnarmannvirki á Klettasvæði, Skarfabakki og Skarfagarður, eru mannvirki sem þurfa mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Þeirri vinnu er nú lokið og fallist hefur verið á byggingaráform mannvirkjanna. Niðurstöður þessa máls fengust ekki fyrr en í lok árs 2002 og upphafs framkvæmdir við hafnargerð hafa því frestast fram á árið 2003.
    Aðrar helstu framkvæmdir á vegum Reykjavíkurhafnar á árinu voru ýmis verkefni við þróun hafnarlands og landgerð bæði í gömlu höfninni og eins í Sundahöfn. Gatnagerð er nú í fyrsta skipti eignfærð og talin með fjárfestingaframkvæmdum.
    Framkvæmdakostnaður ársins 2002 var 496,9 millj. kr.

Ferjubryggjur.
         

     Mjólkárbryggja: Þar var gert við grjótgarðinn við bryggjuna og burðarviðir hennar endurnýjaðir að hluta til. Sett var ný þybba, fríholt og stigi. Verkið var ekki boðið út heldur samið við Græði á Flateyri um viðgerð á grjótgarði fyrir 1.160.000 kr. og Trésmiðjuna í Hnífsdal um viðgerð á timburverki fyrir 1.000.000 kr.
     Æðeyjarbryggja: Þar var landveggur endurbyggður og lengdur og einnig kanttré, fríholt og stigi. Trésmiðjan í Hnífsdal sá um verkið.
     Vigurbryggja: Þar var gert flotholt við ferðamannabryggju. Vigurbændur sáu sjálfir um verkið.
     Bæjabryggja: Þar var steypt í göt á landvegg og keri og þybba, stigi og fríholt endurnýjuð. Trésmiðjan í Hnífsdal sá um verkið.
     Reykjanesbryggja: Þar var steypt utan um ker og landvegg, kanttré, fríholt og þekja lagfærð, nýr stigi settur upp og innsiglingarvörður lagfærðar og málaðar. Trésmiðjan í Hnífsdal sá um verkið.
    Framkvæmdakostnaður vegna ferjubryggja: 15,5 millj. kr.

Sjóvarnargarðar.


     Akranes: Gerður var um 120 m langur sjóvarnargarður við Bræðrapart og Kárabæjarlóð. Einnig var gerður um 25 m langur sjóvarnargarður við Vesturgötu og nokkur bílhlöss af grjóti voru sett við Presthúsabót.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð þann 11. apríl 2002. Þrjú tilboð bárust og eitt frávikstilboð. Ísar ehf. í Hafnarfirði reyndist lægstbjóðandi með 2.654.160 kr. er nam 65% af kostnaðaráætlun hönnuða og var gengið til samninga við fyrirtækið á grundvelli tilboðs þess. Verkið var aukið um sjóvarnargarðinn við Vesturgötu og Presthúsabót og nam því heildargreiðsla til verktaka 3.467.760 kr.
    Efnisnáma var í landi Kirkjubóls þar sem teknir voru 3.508 m 3 af efni. Verkið hófst í lok apríl, sóttist vel og var lokið þann 15. maí 2002.
    Samkvæmt sjóvarnaáætlun átti einnig að koma til framkvæmda á þessu ári að verja 100 m kafla á Breiðinni meðfram fyllingu við ÞÞÞ, en lokið var við gerð sjóvarna á þessu svæði árið 2001.
     Ólafsvík: Gerður var sjóvarnargarður meðfram Ólafsbraut og vestan við Ytra-Klif þar sem félagsheimili bæjarins stendur. Sameiginlegt útboð Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar fór fram í desember 2001 og var síðan samið við lægstbjóðanda, Suðurverk ehf.
    Grjót var sótt í grjótnámuna á Rifi. Verkið var unnið í apríl og maí 2002 og sá Vegagerðin um eftirlitið. Kostnaður varð um 1,8 millj. kr.
     Grundarfjörður: Á sjóvarnaáætlun var gert ráð fyrir sjóvörn á tveimur stöðum, á 120 m kafla við Sæból og 50 m kafla við Framnes. Hafnarstjórn Eyrarsveitar æskti leyfis til að láta gera 120 m langa sjóvörn við Skallabúðir einnig og fékkst það.
    Samið var við Ísar ehf., sem var með útboðsverk við Grundarfjarðarhöfn, og fengust hagstæð einingaverð. Settir voru um 2.000 m 3 af grjóti í sjóvörn við Framnes, 1.200 m 3 við Skallabúðir og 600 m 3 við Sæból. Efni í sjóvörnina var tekið úr sömu námu og efnið í hafnarframkvæmdina.
    Verkinu lauk í febrúar 2002. Kostnaður við það nam rúmlega 5,7 millj. kr.
     Flatey: Í samræmi við sjóvarnaáætlun var gert við gamla sjóvörn austan við Flateyjarbryggju þar sem sjór hafði brotið tvö skörð í hana.
    Gengið var til samninga við Friðgeir V. Hjaltalín sf. í Grundarfirði um framkvæmd verksins og lauk því í október. Frekari sjóvarnarframkvæmdir eru fyrirhugaðar vestan Flateyjarbryggju á árinu 2003.
     Ísafjarðarbær/Flateyri: Grjóti í sjóvarnargarði við Brimnesveg á Flateyri á að endurraða og byggja upp garðinn á um 140 m löngum kafla frá íþróttahúsi að Ytri-Bót. Byggja síðan áfram til norðurs um 50 m langan nýjan garð. Grjót kemur úr Ísafjarðarnámu.
    Verkið var ekki boðið út heldur leitað eftir kostnaðartölum hjá Græði sf. á Flateyri, sem hafði unnið við sjóvörnina þar áður. Græðir sf. bauð 5.712.700 kr. sem nam um 82% af kostnaðaráætlun hönnuða og var samið við fyrirtækið um framkvæmdina.
    Verktakinn hóf störf þann 30. október en þar sem bleyta var óvenjulega mikil varð að fresta verkinu fram yfir áramót og er gert ráð fyrir að ljúka því í janúar 2003.
    Framkvæmdakostnaður: 3.332.300.
     Súðavík: Gerð var 100 m sjóvörn neðan við olíuport og þvottaplan. Samið var við Tígur ehf. um verkið að undangengnu útboði. Var samningsverð 2.973.813 kr.
    Verkið hófst þann 7. nóvember. Verktaki fékk heimild til að gera hlé á framkvæmdinni vegna starfa að öðru verki en tók til starfa aftur um áramót og er verkið langt komið.
     Kaldrananeshreppur: Gerð var sjóvörn á Drangsnesi á um 43 m kafla framan við iðnaðarhúsnæðið Framtíðina og á 80 m kafla vestast við Grundargötu. Leitað var eftir tilboði í verkið hjá Norðurtaki ehf. og samið í framhaldi af því. Samningsverð var 1.511.700 kr. Byrjað var á verkinu í september og því lauk um miðjan október. Grjót fékkst úr vegskeringum inn við Hveravík og víðar, alls um 630 m 3.
     Höfðahreppur: Gerð var sjóvörn á tveim stöðum við Skagaströnd, vestan hafnar framan við ullarverksmiðjuna Árblik og við Fjörubraut. Við Árblik var byggður um 60 m langur sjóvarnargarður framan við húsið. Frá enda sjóvarnar eru rúmir 50 m að hafnargarðinum. Við Fjörubraut var gerður 55 m langur garður frá enda sjóvarnargarðs sem kominn var og suður fyrir iðnaðarhús við Vallarbraut.
    Leitað var eftir tilboði í verkið hjá Norðurtaki ehf. og samið í framhaldi af því. Samningsverð var 3.552.000 kr. Byrjað var á verkinu í mars og því lauk 20. apríl. Grjót var tekið úr námu í ásnum við Hvammskotsbruna, alls um 1.670 m 3.
     Dalvíkurbyggð: Gerð var sjóvörn norðan hafnar á Hauganesi í framhaldi af fyrra verki norðaustan við hús Ektafisks þar. Verklýsing og teikningar voru til. Hallgrímur Hreinsson á Dalvík og Katla ehf. á Árskógssandi unnu verkið sem hófst í september 2002 og lauk þann 1. október. Heildarkostnaður nam 1.566.113 kr.
     Grýtubakkahreppur: Þar var lokið verki sem hófst haustið 2001 við sjóvörn sunnan Gömlubryggju.
     Grímsey: Þar gekk sjór á land í óveðri sl. vetur og olli tjóni við fiskverkunarhús Sigurvonar. Heimild fékkst til að nota óskipta fjárveitingu ársins 2002, 2,2 millj. kr. til að gera sjóvarnargarð frá Hraunkolli og út fyrir fiskverkunarhúsið, alls um 160 m að lengd. Verkið var boðið út um leið og endurbætur á grjótvörn hafnargarðsins og samið við Árna Helgason verktaka í Ólafsfirði (sjá kafla um ríkisstyrktar hafnarframvæmdir). Grjót í sjóvörnina, um 2.000 m 3, var tekið við flugvöllinn í Grímsey.
     Kópasker: Þar var gerður um 70 m langur sjóvarnargarður vestan við verksmiðjuhús Geflu hf. Í verkinu fólst m.a. að grafin var 76 m löng rás í fjöruna og undirlag jafnað undir sjóvörnina. Grjóti var síðan komið fyrir í garðfæti og að svo búnu hlaðið upp grjóti af I. II. og III. flokki. Magn grjóts var 1.082 m 3.
    Verkið var boðið út og tilboð opnuð þann 30. apríl 2002. Tvö tilboð bárust og var gengið til samninga við Vökvaþjónustu Kópaskers ehf. er átti lægra tilboðið, að fjárhæð 1.484.200 kr.
    Verkið hófst þann 11. júní og var tekið út þann 8. ágúst. Heildarkostnaður við það nam 1.968.789 kr. Þar af var undirbúnings-, mælinga-, hönnunar- og eftirlitskostnaður 280.962 kr.
     Vopnafjarðarhreppur: Veitt var fé til sjóvarnar innan Kaupfélagsbryggju samkvæmt sjóvarnaáætlun. Að ósk heimamanna var verkinu frestað fram á næsta ár. Þá mun verða farið í brimvarnargarð milli Miðhólma og Skiphólma og sjóvörnin unnin samhliða.
     Fjarðabyggð: Á Neseyri við Neskaupstað var 120 m langur sjóvarnargarður lagfærður. Grafin var 120 m löng rás í fjöruna og undirlag jafnað undir sjóvörnina. Grjóti var síðan komið fyrir í garðfæti og því næst var grjóti úr I. II. og III. flokki komið fyrir. Magn grjóts var um 1.300 m 3 og magn kjarna um 600 m 3. Verkið var ekki boðið út heldur var óskað eftir verðtilboði frá Klæðningu ehf. Var svo gerður samningur við fyrirtækið á þeim grunni og var samningsverð 3.200.000 kr. Ekki voru gerðar neinar breytingar á verkinu og ekki kom til aukaverka. Verkið hófst í októberbyrjun 2002 og því lauk þann 1. nóvember 2002.
     Árborg: Um er að ræða 1.200 m langa sjóvörn vestan Stokkseyrar (Kaðlastaðir – Hraunsá) í framhaldi af eldri sjóvörn við byggðina í samræmi við sjóvarnaáætlun. Nýja sjóvörnin er byggð ofan á og framan við gamla sjóvarnargarðinn án þess að raska honum. Sjóvörnin er til að draga úr hættu á yfirrennsli og til að hindra að sjórinn brjóti skörð í gamla garðinn. Við Hraunsá verður útbúin þrenging til að minnka innrennsli.
    Verkið var boðið út í nóvember 2002 og bárust 12 tilboð. Samið var við lægstbjóðanda, Ræktunarsamband Flóa og Skeiða ehf., sem bauð 67,2% af kostnaðaráætlun hönnuða. Verkið hófst í lok desember og er gert ráð fyrir að því ljúki í apríl 2003.
    Kostnaður vegna undirbúnings féll á verkið á árinu 2002 en verktakareikningar munu allir berast á árinu 2003.
    Grindavík: Þar var unnið að sjóvörnum vestan Grindvíkur í Staðarhverfi við Húsatóftavöll og við aðstöðu Stofnfisks og við Litlubót. Einnig við Hraun austan Grindavíkur. Samið var við Suðurverk um grjótvinnslu fyrir verkið um leið og gerðir voru samningar um brimvarnargarða við innsiglingu. Um áramót var búið að vinna 6.400 m 3 af grjóti í sjóvörnina í námunni við Eldvarpahraun, en ekki var byrjað á görðunum.
    Vatnsleysustrandarhreppur: SEES lauk gerð sjóvarnargarðs samkvæmt verksamningi frá í nóvember 2001. Byggður var um 177 m langur sjóvarnargarður frá enda sjóvarnar við Minni Voga í átt að Grænuborg. Verktakinn sá um að útvega grjót, alls um 4.400 m 3.
     Bessastaðahreppur: Þar var gerð sjóvörn við Kasthúsatjörn á um 250 m kafla. Endurraðað var um 1.000 m 3 af grjóti. Flokkað grjót úr námu var um 3.000 m 3 og magn kjarna var um 700 m 3. Grjót skal sækja í námu í Kapelluhrauni. Verkið var ekki boðið út heldur samið við Suðurverk hf. um framkvæmd þess. Samningsverð var 5.361.468 kr. Verkið hófst í lok nóvember 2002 og var ekki lokið við áramót.
     Seltjarnarnes: Byggð var sjóvörn við Kotgranda, alls um 230 m. Alls fóru um 1.650 m 3 af flokkuðu grjóti og um 1.000 m 3 af kjarna í byggingu þessarar sjóvarnar. Verkið var ekki boðið út heldur var samið við Borgarvirki ehf. um framkvæmd þess og var samningsverð 4.669.500 kr. Grjót var sótt í námu í Kapelluhrauni. Verkið hófst um miðjan september 2002 og var tekið út í lok nóvember 2002.

Rannsóknir Siglingastofnunar Íslands í hafnamálum.

    Á vegum Siglingastofnunar var unnið að rannsóknum á sviði hafnamála fyrir 42,5 millj. kr. Með rannsóknum er átt við öflun ýmissa grunnupplýsinga, mælingar og rannsóknir sem stuðla að öryggi sjófarenda og réttum ákvörðunum við val á lausnum við mannvirkjagerð.
    Dýptarmælingar voru gerðar á Bakkafjöru, Djúpavogi og í Þorlákshöfn.
    Byggt var líkan af Þorlákshöfn og unnið við líkanið út árið 2002. Tilgangur tilraunanna var að leggja drög að framtíðarþróun hafnarinnar. Við lok ársins lágu fyrir tillögur að nýrri hafnarkví norðan og austan við núverandi Svartaskersgarð er afmörkuð verður af nýjum skjól- og brimvarnargarði, Austurgarði. Núverandi hafnarmynni helst óbreytt, Norðurvarargarður, eða L-ið, verður tekið upp, enda er það að hruni komið, en garður verður byggður út í höfnina frá Svartaskersgarði sem skýla á innri hluta hafnarinnar.
    Unnið var áfram að öldufarsrannsóknum fyrir Þorlákshöfn. Í tengslum við þingsályktunartillögu um rannsóknir á ferjuaðstöðu við Bakkafjöru frá desember 2000 var unnið að öldufarsreikningum með það að markmiði að kortleggja öldufar á mögulegum siglingaleiðum frá Vestmannaeyjum upp á Bakkafjöru. Unnið var að öldufarsreikningum vegna leiðastjórnunarverkefnis, sem miðar að afmörkun á siglingaleiðum olíu- og flutningaskipa, með kortlagningu á öldu á siglingaleiðum fyrir Suðvesturlandi. Hafinn var undirbúningur að öldufarsreikningum fyrir Hornafjarðarós og Breiðamerkursand, en síðara verkefnið er unnið í samvinnu við Vegagerðina.
    Unnið var að frumathugunum og frumtillögum fyrir höfn í Arnarfirði fyrir kalkþörungaverksmiðju. Fyrir Snæfellsbæ voru gerðar bergmálsmælingar í Ólafsvík, innan og utan hafnar, til að kanna möguleika á hafnarköntum með meira dýpi en þar er. Jafnframt voru athugaðir möguleikar á bergmálsmælingum á Rifi, en ekki er talið að sú mæliaðferð henti vegna botngerðar. Haldið var áfram að fylgjast með og kanna botnbreytingar á Grynnslunum framan við Hornafjarðarós.
    Unnið var að stafrænum gagnagrunni með sjávardýpi fyrir Suðaustur- og Norðurlandi ásamt Breiðafirði. Haldið var áfram uppsetningu sjávarfallalíkans með þéttu neti (2x2 km) fyrir Norðvesturland og Breiðafjörð. Einnig var unnið við þróun reklíkans fyrir olíu og rek hluta.     
    Jafnframt var áfram unnið að tilraunum með hreyfistöðugleika skipa og framsetningu stöðugleikagagna.
    Á árinu voru birtar tvær greinar sem unnar voru annars vegar í samvinnu við Háskóla Íslands og háskólann í Bologna á Ítalíu og hins vegar við tæknistofnunina SINTEF í Þrándheimi og Kystverket í Noregi. Fyrri greinin var birt á alþjóðlegri ráðstefnu ICCE 2002 í Bretlandi, „On the Application of a Conceptual Abrasion on Six Icelandic Breakwaters.“ Seinni greinin var birt á PIANC ráðstefnu í Sydney „Berm Breakwaters: A Flexible Construction – An Excellent Wave Breaker Some Results from Model Tests.“

Starfsemi Siglingastofnunar Íslands árið 2002.


    Starfsemi Siglingastofnunar skiptist í þrjá meginþætti: hafnamál, skipamál og vita- og leiðsögumál. Í þessari framkvæmdaskýrslu er fjallað ítarlega um eftirlit og umsjón Siglingastofnunar með ríkisstyrktum sjóvarna- og hafnarframkvæmdum, rannsóknir á sviði hafnamála og uppbyggingu sjóvarna og hafna. Hér á eftir er í stuttu máli fjallað um helstu verkefni stofnunarinnar á öðrum sviðum.
    Samkvæmt lögum um skráningu skipa heldur Siglingastofnun aðalskipaskrá. Undanfarin ár hefur skipum á aðalskipaskrá fjölgað en að þessu sinni fækkar um 57 skip í flotanum. Í upphafi ársins 2002 voru alls 2.465 skip á skrá en 2.408 í árslok. Þrátt fyrir fækkunina er heildarbrúttótonnatala skipastólsins 4.756 tonnum hærri en fyrir ári. Skýringuna er m.a. að finna í stórum skipum sem skráð voru á árinu. Þilfarsskip á skrá eru samtals 1.135 og brúttótonnatala þeirra er 235.775. Opnir bátar eru samtals 1.273 og brúttótonnatala þeirra er 7.473.
    Siglingastofnun gefur út á ári hverju skrá yfir íslensk skip og báta miðað við 1. janúar ár hvert. Í henni er að finna frekari upplýsingar um breytingar á skipa- og bátaflotanum milli ára auk ítarlegra tæknilegra upplýsinga um hvert skip, eiganda þess, heimahöfn o.fl.
    Skoðunarsvið Siglingastofnunar sinnir lögbundnu eftirliti stofnunarinnar með skipum. Aðalskrifstofa sviðsins er í Kópavogi en sjö umdæmisskrifstofur sinna skipaeftirliti á landsbyggðinni. Árlega eru gerðar um tíu þúsund skoðanir, að stærstum hluta aðalskoðanir og aukaskoðanir. Aðalskoðun skips skiptist í árlega búnaðar- og vélskoðun, bolskoðun, sem gerð er annað hvert ár, og öxulskoðun á fjögurra ára fresti. Aðrar skoðanir eru t.d. skyndiskoðanir, skoðanir á fjarskiptatækjum, brunavarnakerfum, hallaprófanir, rafmagnsskoðanir, skoðanir vegna nýsmíði o.fl.
    Í samræmi við ákvæði Parísarsamkomulagsins um hafnarríkiseftirlit eru árlega skoðuð um a.m.k. 25% erlendra kaupskipa sem hér koma í höfn. Tilgangur hafnarríkiseftirlitsins er að stemma stigu við siglingum skipa sem ekki uppfylla alþjóðakröfur um aðbúnað, öryggi og hollustuhætti áhafna kaupskipa, atvinnuréttindi þeirra og mengun frá skipum. Hér á landi voru skoðuð 85 skip frá 28 þjóðlöndum af þeim 326 sem í höfn komu, eða 26%.
    Af öðrum verkefnum á sviði skipamála má nefna útgáfu atvinnuréttindaskírteina, þjónustu við mönnunar- og undanþágunefndir sjómanna og undirbúning og kynningu á laga- og reglugerðasetningu. Þá er alþjóðasamstarf á sviði siglingamála mikið og tekur Siglingastofnun m.a. þátt í starfi Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, IMO.
    Framkvæmd langtímáætlunar í öryggismálum sjófarenda er á hendi Siglingastofnunar í samvinnu við verkefnisstjórn, en í henni sitja fulltrúar stéttarfélaga sjómanna, samtaka útgerða, Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Siglingastofnunar og samgönguráðuneytis. Árið 2002 voru gefnir út og dreift fræðslupésum um öryggismál sjófarenda í þeim tilgangi að bæta aðgengi sjómanna að fræðsluefni og leiðbeiningum um öryggismál sjófarenda. Pésarnir fjalla um æfingar um borð í skipum, nýliðafræðslu, eldvarnir, fallhættu og öryggi við hífingar.
    Lokið var við gerð stuttmynda um öryggismál sem bera heitin: Frágangur gúmmíbjörgunarbáta, Móttaka þyrlu, Æfingar um borð, Öryggi skips og áhafnar, Notkun línubyssa, Léttbáturinn, Öryggi við hífingar, Fallhætta, Öryggi við veiðarfæri, Frágangur varasamra efna, Öryggi í vinnslunni.
    Unnið er að því að útgefið fræðsluefni og myndbönd verði einnig aðgengileg á sérstökum vef um öryggismál sjómanna.
    Fræðast má frekar um framkvæmd áætlunarinnar í sérstakri skýrslu sem samgönguráðherra leggur fyrir Alþingi. Samgönguráðuneytið hefur ákveðið að öryggismál sjófarenda verði hluti af samgönguáætlun samkvæmt lögum um samgönguáætlun nr. 71/2002.
    Siglingastofnun tók þátt í undirbúningi ýmissa lagafrumvarpa sem varða starfssvið stofnunarinnar. Frumvörpin fjalla m.a. um þurrleiguskráningu fiskiskipa, skipamælingar, vitagjald og staðsetningu mannvirkja á sjó, vinnutíma sjómanna, eftirlit með skipum og vaktstöð siglinga. Jafnframt hefur Siglingastofnun tekið þátt í gerð tillögu að samgönguáætlun að því marki sem fjallað er um framkvæmdir við hafnir, vita, sjóvarnir, öryggismál sjófarenda og önnur mál er varða rekstur og starfssvið Siglingastofnunar. Innan Siglingastofnunar var unnið að undirbúningi ýmissa reglugerða, t.d. reglugerðar um eftirlit og skoðanir íslenskra skipa, reglugerðar um breytingu á reglugerð nr. 26/2000 um öryggi fiskiskipa sem eru 24 metrar að lengd eða lengri og reglugerðar um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa.
    Með nýjum lögum um rannsóknir sjóslysa nr. 68/2000 breyttist aðild Siglingastofnunar að þeim málum. Hlutverk Siglingastofnunar er nú m.a. að sjá til þess að tillögur til úrbóta í öryggismálum á sjó sem berast frá nefndinni séu teknar til formlegrar afgreiðslu og sendir nefndinni skýrslu um niðurstöður. Þá ber Siglingastofnun samkvæmt reglugerð nr. 133/2002 að eiga frumkvæði að sérstökum aðgerðum séu þær taldar nauðsynlegar.
    Á undanförnum misserum hefur staðið yfir vinna við endurskipulagningu og gerð frumvarps um vaktstöð siglinga. Markmið frumvarpsins er að tryggja öruggar siglingar í íslenskri efnahagslögsögu, öryggi skipa, farþega og áhafna og efla varnir gegn mengun sjávar frá skipum. Til að ná þessu markmiði er lagt til að Siglingastofnun Íslands setji á fót vaktstöð siglinga. Við undirbúning frumvarpsins var lögð áhersla á mikilvægi þess að gefa einni strandarstöð aukið hlutverk sem byggist á því að vera vaktstöð siglinga í íslenskri efnahagslögsögu.
    Helstu verkefni vaktstöðvar siglinga verða að vera miðstöð skipaumferðar í íslenskri efnahagslögsögu og halda utan um siglingar erlendra skipa sem koma til landsins, vöktun og eftirlit með sjálfvirka tilkynningakerfinu, STK, hlustun á alþjóðlegum neyðartíðnum, GMDSS og umsjón með NAVTEX-tilkynningum til sjófarenda, skráning allra skipa sem falla undir hafnarríkiseftirlit, eftirlit með siglingum skipa sem flytja hættulegan varning, umsjón með tilkynningum um bilaða siglingavita og dufl og rekstur fjarskiptakerfis vegna ofangreindra verkefna.
    Formlegt eftirlit með framkvæmd samstarfssamninga samgönguráðuneytis og Slysavarnafélagsins Landsbjargar var falið Siglingastofnun sl. vor. Um er að ræða m.a. samning um starfrækslu Slysavarnaskóla sjómanna, samning um starfrækslu sjálfvirka tilkynningakerfisins fyrir íslensk skip og báta styttri en 24 m, samning um rekstur björgunarbáta og samning um starfrækslu þjálfunar- og fræðslumiðstöðvar að Gufuskálum.
    Siglingastofnun annast uppbyggingu og rekstur landsvitakerfisins og hefur umsjón og eftirlit með uppbyggingu og rekstri hafnarvita og innsiglingarmerkja.
    Meginþungi eftirlits með búnaði vita og viðhalds á vitabyggingum er á sumrin. Einnig er sinnt viðhaldi á baujum og radíóvitum. Að jafnaði er reynt að sinna viðhaldi á fimmtu hverri vitabyggingu árlega en alls rekur stofnunin 104 ljósvita á ströndum landsins. Á árinu 2002 var sinnt viðhaldi á 21 vitabyggingu. Sinnt var eftirliti með búnaði í 65 vitum á árinu og 14 baujum.
    Í eftirlitsferðunum var auk þess lokið við að taka ljósmyndir af vitum landsins fyrir útgáfu bókarinnar Vitar á Íslandi. Leiðarljós á landsins ströndum 1878–2002, sem út kom haustið 2002. Bókin er menningarsögulegt rit um sögu og þróun vitamála á Íslandi og í henni er að finna fjölda mynda og teikninga auk umfjöllunar um alla íslenska vita. Rakin er saga íslensku vitaþjónustunnar frá upphafi, fjallað um vitaskipin og þátt vitavarðanna og breytileg vitatækni er skýrð og skilgreind. Einnig er fjallað um byggingarlist íslenskra vita og tengsl byggingarstíls þeirra við strauma og stefnur í byggingarlist á hverjum tíma.
    Fréttabréf Siglingastofnunar, Til sjávar, og vefur, www.sigling.is, mynda kjarnann í upplýsingastarfseminni. Fimm tölublöð voru gefin út af fréttabréfinu árið 2002 og því dreift til allra skráðra skipa og báta, útgerða, hafna, sveitarfélaga og alþingismanna auk fjölda fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Í blaðinu er jafnan að finna greinar og fréttir um það helsta sem er að gerast á vettvangi stofnunarinnar. Sömu sögu er að segja um vef stofnunarinnar. Unnið var að breytingum á vefnum í því skyni að auðvelda aðgengi að upplýsingum sem þar er að finna, svo sem öll lög og reglur á starfssviði Siglingastofnunar, þ.e. um hafnir, vita, sjóvarnir, köfun, siglingar, skráningu skipa, skipamælingar, leiðsögu skipa, eftirlit með skipum, öryggismál, leit og björgun á sjó, menntun og þjálfun áhafna skipa og réttindi og skyldur sjómanna að ógleymdu upplýsingakerfinu um veður og sjólag.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.