Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 446. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1270 — 446. mál.
um frv. til l. um námsstyrki.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Val Árnason og Gunnar Jóhann Birgisson frá menntamálaráðuneyti. Þá bárust umsagnir frá Öryrkjabandalagi Íslands, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Menntaskólanum að Laugarvatni, Garðyrkjuskóla ríkisins, Framhaldsskólanum á Laugum, Kennaraháskóla Íslands, Iðnnemasambandi Íslands og Félagi íslenskra framhaldsskóla.
Markmið frumvarpsins er að stuðla að því að tryggja öllum jöfn tækifæri til náms án tillits til búsetu eða efnahags. Helstu efnislegu breytingar eru þær að skilgreining á þeim sem njóta námsstyrkja er rýmkuð og látin ná til erlendra ríkisborgara. Þannig er tekið tillit til réttar þeirra sem grundvallast á alþjóðlegum skuldbindingum. Þá er lagt til að þær reglur sem byggt hefur verið á í framkvæmd, m.a. samkvæmt reglugerð nr. 576/2002, komi með skýrum hætti fram í lögunum og hafi þannig ótvíræða lagastoð. Að lokum er lagt til að málsmeðferð samkvæmt lögunum verði breytt þannig að allir tímafrestir verði styttri en verið hefur. Ástæða fyrir því er sú að nemendum er nauðsynlegt að fá endanlega ákvörðun varðandi umsóknir á sem stystum tíma.
Fram kom við meðferð málsins í nefndinni að rétt væri að breyta 2. tölul. 1. mgr. 2. gr. til frekari skýringa þannig að í stað þess að meðal skilyrða fyrir námsstyrk sé að viðkomandi stundi reglubundið framhaldsnám hér á landi verði notað orðið framhaldsskólanám. Með því er ljóst að í frumvarpinu er um að ræða nám á framhaldsskólastigi í skólum landsins. Þá kom fram að efnisatriði og tilvísun til 2. gr. í 2. málsl. 3. tölul. 3. gr. væri óþörf og leggur nefndin því til breytingu hvað það varðar. Loks telur nefndin rétt að benda á að skýringar á einstökum hugtökum frumvarpsins koma fram í athugasemdum við lagafrumvarpið. Skýringar þessar hafa því ekki lagagildi heldur er hér um lögskýringargagn að ræða við túlkun á ákvæðum laganna.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
2. 2. málsl. 3. tölul. 3. gr. falli brott.
Sigríður Jóhannesdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir og Kristinn H. Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1270 — 446. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um námsstyrki.
Frá menntamálanefnd.

BREYTINGUM:
2. 2. málsl. 3. tölul. 3. gr. falli brott.
Sigríður Jóhannesdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir og Kristinn H. Gunnarsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 12. mars 2003.
Gunnar Birgisson,
form., frsm.
Ólafur Örn Haraldsson.
Einar Már Sigurðarson.
Sigríður Ingvarsdóttir.
Kjartan Ólafsson.