Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 264. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1312  —  264. mál.




Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um tekjuskatta einstaklinga.

     1.      Hver var fjárhæð álagðra tekjuskatta (almennur tekjuskattur, sérstakur tekjuskattur, útsvar og fjármagnstekjuskattur), barnabóta og vaxtabóta á hverju áranna 1995–2002, tilgreint á verðlagi hvers árs og á föstu verðlagi?
    Meðfylgjandi tafla sýnir fjárhæð tekjuskatta, barnabóta og vaxtabóta á árunum 1995– 2002 á verðlagi hvers árs og á föstu verðlagi. Ártölin fyrir tekjuskatta eru álagningarár og er þar miðað við tekjur ársins á undan. Upphæðir barna- og vaxtabóta miðast hins vegar við þau ár sem bæturnar eru greiddar út.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     2.      Hver var tekjuskattsbyrði einstaklinga á árunum 1995–2002 í heild og eftir tekjum og fjölskyldugerð? Með tekjuskattsbyrði er hér átt við álagða tekjuskatta (almennan tekjuskatt, sérstakan tekjuskatt, útsvar og fjármagnstekjuskatt) alls, að frádregnum barnabótum og vaxtabótum, sem hlutfall af heildartekjum (launum, lífeyri, rekstrartekjum, fjármagnstekjum o.s.frv.) viðkomandi einstaklinga. Í svarinu verði greint á milli einhleypra annars vegar og hjóna og fólks í sambúð hins vegar. Flokkun eftir tekjum miðist við að í hvern flokk komi 10% framteljenda raðað eftir fjárhæð heildartekna þannig að í neðsta flokkinn komi þau 10% sem lægstar heildartekjur hafa á hverju ári, í þann næsta þau 10% sem næst koma o.s.frv. Efsti flokkurinn verði þó sundurgreindur í tvennt þannig að í hvorn hluta komi 5% tekjuhæstu framteljendanna.
    Rétt er að hafa í huga að samanburður af þessu tagi er engan veginn einhlítur og mikilvægt að hafa á honum nokkra fyrirvara. Þar vegur þyngst að í þessum útreikningum er ekki greint á milli áhrifa mismunandi og í mörgum tilvikum misvísandi atriða eins og áhrifa hagsveiflunnar, skattkerfisbreytinga o.fl.
    Á árinu 1995 var efnahagslífið að taka við sér á ný eftir langvarandi niðursveiflu. Vegna innbyggðrar sveiflujöfnunar í tekjuskattskerfinu hér á landi sem og annars staðar er almenn skattbyrði í lágmarki við slíkar aðstæður. Næstu ár á eftir rétti þjóðarbúskapurinn hins vegar rækilega úr kútnum og við tók einhver mesta efnahagsuppsveifla sem hér hefur orðið og náði hámarki árin 2000–2001. Til marks um þessa uppsveiflu má nefna að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna jókst um nálægt 30% á þessu tímabili. Við þessar aðstæður gengur sveiflujöfnun tekjuskattskerfisins í hina áttina og skattbyrðin þyngist því, að öðru óbreyttu.
    Á þessum árum var enn fremur gripið til umfangsmikilla skattkerfisbreytinga sem hafa áhrif á niðurstöður útreikninganna. Þar vega þyngst lækkun tekjuskattshlutfalls ríkissjóðs um 4% á árunum 1997–1999, skattfrelsi lögbundinna lífeyrisiðgjalda launafólks 1995–1996 og skattfrelsi viðbótarlífeyrissparnaðar 1999–2000 auk hækkunar barnabóta í áföngum árin 2001–2003. Auk þess má nefna upptöku samræmds fjármagnstekjuskatts 1996/1997.
    Samandregið má fullyrða að áhrif hagsveiflunnar yfir þetta tímabil hafi verið í átt til aukinnar skattbyrði vegna innbyggðrar sveiflujöfnunar skattkerfisins. Hins vegar er ljóst að áhrif skattkerfisbreytinga á þessum árum hafi verið í gagnstæða átt, þ.e. í átt til lækkunar skattbyrði. Enn fremur má benda á að þessi samanburður tekur ekki til tekjuáranna 2002 og 2003 en bæði þessi ár einkennast af nokkurri lægð í efnahagslífinu sem endurspeglast í minnkandi skattbyrði eins og áætlanir benda til. Auk þess gætir einungis áhrifa fyrsta áfanga af þremur í hækkun barnabóta í þessum samanburði. Mikilvægt er að hafa þetta í huga þegar niðurstöður þessara útreikninga eru skoðaðar og túlkaðar.
    Meðfylgjandi töflur sýna heildartekjur og greidda skatta að frádregnum greiðslum barnabóta og vaxtabóta, annars vegar fyrir hjón og sambýlisfólk og hins vegar einstaklinga fyrir tekjuárin 1995–2001, þ.e. álagningarárin 1996–2002.

1.     Hjón og sambýlisfólk.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



2.     Einhleypir.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     3.      Hver yrðu áhrifin á tekjuskattsbyrðina í sundurliðun 2. liðar ef tekjusköttum væri breytt um 1,5 milljarða kr. og breytingin gerð með:
                  a.      lækkun almenna tekjuskattshlutfallsins,
                  b.      hækkun persónuafsláttar,
                  c.      lækkun sérstaka tekjuskattsins,
                  d.      hækkun fjármagnstekjuskatts?
             Hver yrði niðurstaðan í a- og b-lið ef miðað væri við 5 milljarða kr. breytingu?
    Rétt er að benda á að allar fjárhæðir og hlutfallstölur sem hér fara á eftir miðast við tekjuárið 2001, þ.e. álagningarárið 2002.

1.     Miðað við 1,5 milljarða kr. breytingu:
    a. Almenna tekjuskattshlutfallið mundi lækka úr 26,08% í 25,72%, eða um 0,36%.
    Meðfylgjandi tafla sýnir heildartekjur og skattbyrði á tekjuárinu 2001 eftir breytinguna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    b. Persónuafsláttur mundi hækka úr 25.245 kr. á mánuði í 25.931 kr., eða um 686 kr. á mánuði. Meðfylgjandi tafla sýnir heildartekjur og skattbyrði á tekjuárinu 2001 eftir breytinguna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




    c. Sérstaki tekjuskatturinn mundi falla niður. Meðfylgjandi tafla sýnir heildartekjur og skattbyrði á tekjuárinu 2001 eftir breytinguna.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    d. Fjármagnstekjuskatturinn hækkar úr 10% í 13,5%. Meðfylgjandi tafla sýnir heildartekjur og skattbyrði á tekjuárinu 2001 eftir breytinguna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



2.     Ef miðað væri við 5 milljarða kr. breytingu:

    a. Almenna tekjuskattshlutfallið mundi lækka úr 26,08% í 24,9%, eða um 1,2%. Meðfylgjandi tafla sýnir heildartekjur og skattbyrði á tekjuárinu 2001 eftir breytinguna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    b. Persónuafsláttur mundi hækka úr 25.245 kr. á mánuði í 27.553 kr., eða um 2.308 kr. á mánuði. Meðfylgjandi tafla sýnir heildartekjur og skattbyrði á tekjuárinu 2001 eftir breytinguna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.