128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1316 — 711. mál.
Skýrsla
dómsmálaráðherra um stöðu umferðaröryggismála fyrir árið 2002.
(Lögð fyrir Alþingi á 128. löggjafarþingi 2002–2003.)
1. Almennt
Skýrsla um stöðu umferðaröryggismála sem nú er lögð fyrir Alþingi er í samræmi við þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi 20. apríl 2002, um stefnumótun um aukið umferðaröryggi. Í ályktuninni segir m.a.: „Dómsmálaráðherra kynni Alþingi í byrjun hvers árs stöðu umferðaröryggismála og hvernig áætluninni miðar í átt að settu marki. Starfs- og framkvæmdaáætlun verði endurskoðuð árlega.“
Í skýrslunni er einkum fjallað um stöðu umferðaröryggismála eins og hún var í árslok 2002 og hvernig miðað hefur í átt að settu markmiði.
Með þingsályktun sem samþykkt var á Alþingi þann 20. apríl 2002 ályktaði Alþingi að stefnt skuli að fækkun banaslysa og annarra alvarlegra umferðarslysa um 40% fyrir árslok árið 2012 þannig að þau verði færri en 120 á ári í lok tímabilsins. Þessu takmarki verði náð með sameiginlegu átaki ríkis, sveitarfélaga, fyrirtækja, áhugahópa um umferðaröryggismál og alls almennings.
Með umferðaröryggisáætlun sem gekk í gildi árið 2002 var sett það markmið að fjöldi þeirra sem slasast alvarlega eða látast í umferðarslysum verði innan við 120 á ári í lok ársins 2012. Einnig er sett það metnaðarfulla langtímamarkmið að fjöldi þeirra sem slasast alvarlega eða látast í umferðarslysum verði innan við 52 á ári fyrir árið 2025. Framtíðarsýnin er sú að enginn látist eða slasist alvarlega í umferðarslysi á Íslandi. Til að þessu takmarki verði náð þarf ýmsar aðgerðir og markvisst fræðslustarf til að breyta hugsunarhætti og viðhorfum til umferðaröryggismála.
Umferðaröryggisáætlun 2002–2012 leggur áherslu á nokkra meginþætti. Þeir eru helstir:
Skipan umferðaröryggisstarfsins.
Öruggari hraði.
Bílbelti – öryggisbúnaður.
Öruggari ökumenn – ökunám, endurmenntun og ökupróf.
Áfengi, lyf – þreyta.
Öruggari vegir, götur og umhverfi vega.
Auknar forvarnir – löggæsla, fullnusta og upplýsingar.
2. Staða
Árið 2002 létust 29 manns í 22 umferðarslysum hér á landi, 14 karlar, 10 konur og 5 börn. Ekki liggja fyrir endanlegar tölur um fjölda alvarlega slasaðra árið 2001 en áætlað er að fjöldi þeirra sé 174. Skráningu alvarlega slasaðra árið 2002 er ekki lokið og því liggur ekki fyrir fjöldi þeirra.
Fjöldi og hlutfall látinna eftir kyni
| 2002 | Fjöldi látinna | Hlutfall |
| Karl | 15 | 51,72% |
| Kona | 14 | 48,28% |
Fjöldi og hlutfall látinna eftir aldri
| 2002 | Fjöldi látinna | Hlutfall |
| 0–14 | 5 | 17,24% |
| 15–24 | 4 | 13,79% |
| 25–34 | 3 | 10,34% |
| 35–44 | 1 | 3,45% |
| 45–54 | 6 | 20,69% |
| 55–64 | 4 | 13,79% |
| 65+ | 6 | 20,69% |
Fjöldi og hlutfall látinna eftir ársfjórðungum
| 2002 | Fjöldi | Hlutfall |
| janúar–mars | 9 | 40,91% |
| apríl–júní | 6 | 27,27% |
| júlí–september | 5 | 22,73% |
| október–desember | 2 | 9,09% |
Dreifbýli/þéttbýli
| 2002 | Fjöldi slysa | Hlutfall |
| Dreifbýli | 27 | 93,00% |
| Þéttbýli | 2 | 7,00% |
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 1. Þróun í fjölda látinna í umferðarslysum í dreifbýli sem hlutfall af heildarfjölda látinna árin 1971– 2001.
Flokkun látinna
| 2002 | Fjöldi slysa | Hlutfall |
| Ökumenn | 12 | 41,38% |
| Farþegar | 16 | 55,17% |
| Gangandi vegfarendur | 1 | 3,45% |
Tegund banaslysa
| 2002 | Fjöldi látinna |
| Árekstur | 12 |
| Útafakstur | 8 |
| Bifreið fýkur | 4 |
| Ekið á staur | 2 |
| Bílvelta | 2 |
| Ekið á gangandi | 1 |
Fjöldi banaslysa og látinna eftir landsvæðum
| 2002 | Fjöldi | Fjöldi látinna |
| Reykjavík | 1 | 1 |
| Reykjanes | 3 | 3 |
| Suðurland | 6 | 8 |
| Austurland | 3 | 3 |
| Norðurland | 2 | 2 |
| Norðurland | 2 | 5 |
| Vestfirðir | 2 | 4 |
Samanburður milli ára – markmið og þróun
| Látnir | Alvarlega slasaðir | |
| 1991 | 27 | 230 |
| 1992 | 21 | 228 |
| 1993 | 17 | 246 |
| 1994 | 12 | 242 |
| 1995 | 24 | 239 |
| 1996 | 10 | 229 |
| 1997 | 15 | 203 |
| 1998 | 27 | 229 |
| 1999 | 21 | 222 |
| 2000 | 32 | 169 |
| 2001 | 24 | 174* |
| 2002 | 29 | 174** |
| * Bráðabirgðatala. | ||
| ** Áætluð tala. Skráningu er ekki lokið. | ||
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 2.
3. Aðgerðir og verkefni á árinu 2002
3.1. Lög og reglur
3.1.1 Skipan umferðaröryggisstarfsins
Með lögum nr. 83/2002, um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987, voru gerðar breytingar á stjórnsýslu bifreiðamála og ökuréttinda, sem tóku gildi þann 1. október 2002. Með þeim var leitast við að koma á heildstæðu skipulagi á stjórnsýslu umferðarmála með því að sameina verkefni Skráningarstofunnar hf. og stofnunarinnar Umferðarráðs og ýmis verkefni dómsmálaráðuneytisins og fela þau einni stofnun, Umferðarstofu, undir yfirstjórn dómsmálaráðherra. Með þessum breytingum var að því stefnt fyrst og fremst að tryggja markvissa framkvæmd umferðaröryggismála í samræmi við yfirlýsta stefnu stjórnvalda, með því að sameina á einum stað málefni ökutækja, umferðarfræðslu og umferðaröryggis og fleiri verkefna sem tengjast ökutækjum og umferð. Einnig á að nást með þessu rekstrarleg hagkvæmni, m.a. vegna samnýtingar sérhæfðs húsnæðis, búnaðar og starfskrafta. Þannig starfa innan sömu stofnunar aðilar sem vinna að reglum um gerð og búnað ökutækja, skráningu bifreiða, umferðarfræðslu og umferðaröryggi. Sérþekking þessara aðila ætti að geta nýst heildstætt innan stofnunarinnar, og skilar vonandi auknu öryggi í umferðinni. Stofnun sem fjallar heildstætt um bifreiða- og umferðaröryggismál á einnig að vera mjög vel í stakk búin til að sinna því hlutverki að vera stjórnvöldum og öðrum til ráðuneytis um umferðarmál og taka þátt í að gera tillögur að reglum er varða ökutæki og umferð á innlendum vettvangi og vettvangi EES-samstarfsins. Breytingar þessar eru í samræmi við umferðaröryggisáætlun 2002–2012 um að stjórnsýsla umferðaröryggismála verði skýrari.
Þrátt fyrir þessa breytingu mun Umferðarráð, sem skipað er 22 fulltrúum hinna ýmsu aðila sem koma að umferðarmálum, starfa áfram en með breyttri tilhögun. Meginhlutverk þess verður áfram að beita sér fyrir auknu umferðaröryggi og bættum umferðarháttum með öllum tiltækum ráðum. Jafnframt er ráð fyrir því gert að Umferðarráð verði dómsmálaráðherra til ráðgjafar um gerð umferðaröryggisáætlunar og framkvæmd hennar.
Með vísan til ályktunar Alþingis skipaði dómsmálaráðherra sérstaka umferðaröryggisnefnd til þriggja ára, sem ætlað er að vinna að framgangi þingsályktunarinnar. Skal hún ásamt Umferðarráði leitast við að ná sem víðtækastri samstöðu í þjóðfélaginu um bætta umferðarmenningu og leita allra tiltækra leiða til þess að stemma stigu við alvarlegum umferðarslysum. Skal að því stefnt að sem flestir aðilar sem koma að umferðaröryggismálum með einhverjum hætti setji sér skýr markmið og vinni samkvæmt þeim.
Þá var skipuð úr hópi nefndarmanna fimm manna framkvæmdastjórn umferðaröryggisáætlunar. Hlutverk stjórnarinnar skal vera að gera starfs- og framkvæmdaáætlun um framgang umferðaröryggisáætlunar, samkvæmt þingsályktun Alþingis. Skal hún í umboði dómsmálaráðuneytis kalla eftir upplýsingum um aðgerðir frá helstu aðilum sem sinna umferðaröryggisstarfi og gera í framhaldi af því athugasemdir ef þörf krefur. Skal að því stefnt að aðilar setji sér skýr markmið um aðgerðir sem stuðla að auknu umferðaröryggi og vinni síðan samkvæmt þeim. Á þann hátt leggi hver og einn fram sinn skerf til öruggari umferðar svo ná megi þeim meginmarkmiðum sem þingsályktunin gerir ráð fyrir. Jafnframt er stjórninni ætlað að vinna að tillögugerð til ráðuneytisins um þær breytingar á umferðarlögum og reglugerðum sem hún telur að stuðli að öruggari umferð í landinu.
3.1.2 Akstursmat
Nýjar reglur um akstursmat í umferðarlögum hafa tekið gildi með lögum nr. 83/2002 og breytingum á reglugerð um ökuskírteini, nr. 4/2003. Samkvæmt reglunum þarf ökumaður, sem er með bráðabirgðaskírteini, að fara í akstursmat áður en hann fær bráðabirgðaskírteinið endurnýjað eða fær fullnaðarskírteini. Á undanförnum árum hefur oft verið rætt um að hækka aldursmörk til almennra ökuréttinda úr 17 í 18 ár. Tillaga starfshóps sem vann að endurskoðun umferðarlaga, og skilaði dómsmálaráðherra skýrslu þann 7. mars 2001, lagði til að í stað hækkunar á bílprófsaldri yrði farin sú leið að gefa ökumönnum kost á sérstöku akstursmati undir handleiðslu ökukennara. Mat starfshópsins var að sú leið væri vænlegri til árangurs og hefði þann höfuðkost að umbuna þeim ökumönnum sem sýndu þá ábyrgu hegðun í umferðinni fyrsta akstursárið að fá ekki refsipunkta vegna brota gegn umferðarlögum. Nánar er fjallað um þessa nýju leið í kafla 3.6 um unga ökumenn.
3.1.3 Sektir
Nýjar reglur um sektir tóku gildi í júlí 2001 þar sem sektir voru hækkaðar verulega, sbr. reglugerð nr. 75/2001, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim. Með reglugerð nr. 742/2002, um breytingu á reglugerð nr. 75/2001, kom nýtt ákvæði um sekt að fjárhæð kr. 5.000 við notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiðar, en samkvæmt 47. gr. a umferðarlaga, nr. 50/1987, sbr. lög nr. 91/2001, er notkun farsíma við akstur án handfrjáls búnaðar bönnuð. Ákvæðið öðlaðist gildi 1. nóvember 2001 en þó skildi eigi refsa fyrir brot gegn því fyrr en ár væri liðið frá gildistöku þess.
Töflurnar hér að aftan sýna annars vegar útsend sektarboð og hins vegar útsendar sektargerðir. Þegar litið er til sektarboða má sjá að þeim fjölgaði um tæplega 11%. Þrátt fyrir fjölgun útsendra sektarboða hefur hlutfall greiddra sektarboða haldist nokkuð stöðugt á tímabilinu og á það sama við um heildar hlutfall afgreiddra sektarboða af heildarfjölda. Þegar litið er til þróunar í fjölda útsendra sektargerða má sjá að öfugt við útsend sektarboð fækkaði sektargerðum á síðasta ári um rúmlega 9%.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla 1. Fjöldi útsendra sektarboða, hlutfall greiddra sektarboða og heildarhlutfall gjaldfallinna sektarboða
sem voru afgreidd frá 1999 til 2002, miðað við stöðu mála 1. janúar 2003.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla 2. Fjöldi útsendra sektargerða, hlutfall greiddra sektargerða og heildarhlutfall gjaldfallinna sektargerða sem voru afgreiddar frá 1999 til 2002, miðað við stöðu mála 1. janúar 2003.
3.1.4 Ýmsar reglugerðir
Á árinu 2002 setti dómsmálaráðherra reglugerð um sektir vegna brota á lögum um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi.
Þá voru gerðar breytingar á reglugerð um flutning á hættulegum farmi, reglugerð um gerð og búnað ökutækja og reglugerð um skoðun ökutækja, sem allar stuðla að auknu umferðaröryggi með einum eða öðrum hætti.
3.2. Ökuhraði
Umferðarhraði á þjóðvegum landsins er ennþá allt of mikill. Þrátt fyrir sérstök átaksverkefni lögreglunnar til að stemma stigu við hraðakstri hefur viðvarandi árangur ekki náðst. Skýringar á því geta verið af margvíslegum toga, m.a. að vikmörk frá leyfðum hraða eru rúm. Á myndum 3 og 4 sést annars vegar þróun á hraða á þjóðvegum frá 1988 til 2002 og hins vegar hraðadreifing tveggja ára á Reykjanesbraut og er sú mynd dæmigerð fyrir marga aðra vegi. Rúmlega 15% ökumanna aka löglega og 15% aka hraðar en 104 km/klst. Meðalhraði er um 97 km/klst. Á höfuðborgarsvæðinu hefur tekist að halda niðri hraða á safnvegum og tengivegum en síður á þjóðvegunum.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 3.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 4.
3.3 Ölvunarakstur
Lögreglan í Reykjavík setti sér þau markmið í upphafi ársins 2002 að beina kröftum sínum að alvarlegustu brotunum í umferðinni, þar með talið ölvunarakstri. Í lok ársins var lögreglan í Reykjavík með sérstakt átak með það að markmiði að fækka ölvunarakstursbrotum. Tölur um fjölda ökumanna sem grunaðir voru um ölvun við akstur benda til að átak lögreglu gegn ölvunarakstri hafi skilað sér í færri brotum.
Hjá Lögregluskóla ríkisins var haldið réttindanámskeið fyrir sýnatökumenn til öflunar öndunarsýna.
Hér að aftan má sjá fjölda grunaðra um ölvun við akstur og fjölda slasaðra í ölvunarakstursmálum. Sjá má að á síðustu þremur árum hefur orðið nokkur fækkun í fjölda grunaðra vegna ölvunar við akstur og er fjöldinn árið 2002 svipaður og árið 1999. Á sama tíma hafa verið sveiflur í fjölda slasaðra, sérstaklega árið 2001 er 51 slasaðist í óhöppum þar sem grunur var um ölvun en hin árin hefur sambærilegur fjöldi verið á bilinu 31 til 35.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 5. Fjöldi grunaðra, handtekinna og sakborninga vegna ölvunar við akstur og fjöldi slasaðra í þessum málum á árunum 1999 til 2002. 3.4. Bílbelti og öryggisbúnaður fyrir börn
Könnun Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Árvekni og Umferðarráðs á árinu 2002 um öryggi barna í bílum sýnir að enn vantar á að öll börn noti viðeigandi öryggisbúnað í bifreiðum. Könnunin leiddi í ljós að hlutfall barna án öryggisbúnaðar hefur hækkað frá árinu 2001. Í tímaritinu Björgun sem Slysavarnafélagið Landsbjörg gaf út vorið 2002 er að finna umfjöllun um öryggisbúnað barna í bílum.
Dómsmálaráðuneytið hefur falið Umferðarstofu, í samvinnu við Árvekni og Löggildingarstofu, að yfirfara núgildandi reglur um notkun öryggis- og verndarbúnaðar barna með tilliti til hugsanlegra breytinga á umferðarlögum og reglugerðum þannig að tryggt verði að börn noti sérstakan öryggis- og verndarbúnað þeim ætluðum og að notkun búnaðarins sé með réttum hætti.
Á árinu 2002 voru breytingar gerðar á tollalögum þar sem almennur tollur af barnabílstólum var felldur niður.
3.5. Umferðarmannvirki
Samkvæmt skýrslu um framkvæmdir í umferðaröryggi hjá Vegagerðinni fyrir árið 2002 þá voru 23 slysastaðir lagfærðir af fjárveitingu til umferðaröryggis og 2 staðir fyrir fjárveitingu til umferðaröryggis og nýbygginga. Þá voru einnig gerð ný mannvirki á 18 stöðum sem m.a. eiga að stuðla að bættu umferðaröryggi. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um endurbætur í þéttbýlisstöðum landsins en í tillögu til nýrrar samgönguáætlunar fram til ársins 2014 hefur verið reynt að meta hverju framkvæmda- og þjónustumarkmið hennar gætu skilað í auknu umferðaröryggi. Niðurstaðan er sú að alvarlegum slysum gæti fækkað um a.m.k. 20% í lok áætlunarinnar miðað við meðaltal áranna 1996–1999.
3.6. Ungir ökumenn
Ein meginorsök umferðarslysa ungra ökumanna er ofmat á eigin getu eða vanmat á umferðaraðstæðum. Nýjar reglur um akstursmat í umferðarlögum hafa tekið gildi með lögum nr. 83/2002 og breytingum á reglugerð um ökuskírteini, nr. 4/2003. Samkvæmt reglunum þarf ökumaður, sem er með bráðabirgðaskírteini, að fara í akstursmat áður en hann fær bráðabirgðaskírteinið endurnýjað eða fær fullnaðarskírteini. Þannig þurfa allir nýliðar að fara í akstursmat eftir minnst eins árs reynslu í umferðinni.
Ökumaður getur fengið fullnaðarskírteini hafi hann haft bráðabirgðaskírteini samfellt í 12 mánuði og ekki á þeim tíma fengið punkta í punktakerfi vegna umferðarlagabrota og farið í akstursmat. Vilji ökumaðurinn ekki nýta sér þessa heimild eða fullnægi hann ekki skilyrðunum, gildir bráðabirgðaskírteinið áfram þar til það rennur út eftir tvö ár frá útgáfudegi. Að þeim tíma liðnum fær ökumaðurinn fullnaðarskírteini, fullnægi hann áður nefndum skilyrðum. Fullnægi hann þeim hins vegar ekki, fær hann útgefið bráðabirgðaskírteini á ný til tveggja ára.
Með því að heimila ökumönnum að fá fullnaðarskírteini eftir eitt ár í staðinn fyrir tvö, eftir áfallalausan akstursferil og að undangengnu akstursmati, er verið að umbuna þeim sem hafa staðið sig vel í umferðinni. Það hefur jafnframt þau hvetjandi áhrif á unga ökumenn að vanda sig við akstur. Sá sem hagar sér vel í umferðinni og brýtur ekki af sér getur sem sagt fengið fullnaðarskírteini ári fyrr en ella. Hinir sem brjóta eitthvað af sér sem færir þeim punkta fá ákveðið aðhald með akstursmati og bráðabirgðaskírteini á ný. Þeir teljast þannig byrjendur í umferðinni þar til þeir hafa að baki eitt samfellt refsipunktalaust ár.
Í akstursmati felst að kannað er hvort mat ökumanns á eigin aksturshæfni, akstursháttum og öryggi í umferðinni er í samræmi við raunverulega getu hans. Markmið akstursmats er að ökumaðurinn geri sér grein fyrir hæfni sinni og getu í umferðinni með tilliti til umferðaröryggis. Ökukennarar annast akstursmat sem fer þannig fram að ökumaðurinn lýsir fyrir ökukennaranum eigin mati á aksturshæfni sinni og öryggi í umferðinni. Að því loknu skal ökumaðurinn aka bifreið sem hann sjálfur leggur til en ökukennarinn fylgist með akstrinum og skráir hjá sér athugasemdir um þau atriði sem hann telur jákvæð og neikvæð í akstrinum. Að akstursmati loknu ritar ökukennarinn umsögn um hæfni ökumannsins. Í umsögninni mælir ökukennarinn annaðhvort með því eða gegn að ökumaðurinn fái útgefið fullnaðarskírteini. Það er skilyrði fyrir útgáfu fullnaðarskírteinis að ökukennarinn mæli með útgáfunni í umsögn sinni.
4. Verkefni ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga, fyrirtækja og félagasamtaka
4.1. Ráðuneyti og stofnanir
4.1.1 Dómsmálaráðuneyti
Dómsmálaráðuneytið er aðili að „High-Level Group“ sem er æðsta stofnun Evrópusambandsins sem fer með umferðaröryggismál. Mikilvægt er að Íslendingar séu virkir þátttakendur í þessu starfi en hagur okkar er ótvíræður vegna þeirra rannsókna og upplýsinga sem við fáum aðgang að með aðild að þessari stofnun.
Dómsmálaráðuneytið tekur jafnframt þátt í nefnd framkvæmdastjórnar ESB um ökuskírteini. Nefndin fjallar um allt sem snertir laga- og reglusetningu varðandi ökupróf og ökukennslu, afturköllun og skilyrði til þess að mega öðlast ökuskírteini, heilbrigðisskilyrði ökumanna og ýmsa aðra tæknilega þætti viðvíkjandi ökuskírteinum sem og helstu umhverfisþáttum umferðar.
Í ársskýrslu rannsóknarnefndar umferðarslysa fyrir árið 2000 kemur fram að nefndin hafi orðið þess vör í allnokkrum tilfellum að viðbrögð við slysum hafi ekki verið eins og best verður á kosið. Lagði nefndin því til að unnið yrði að heildarskipulagi um viðbúnað allra hlutaðeigandi aðila vegna slysa (trauma system). Í samráði við heilbrigðisráðherra skipaði dómsmálaráðherra í mars 2002, starfshóp til þess að gera tillögur til úrbóta á þessu sviði. Hlutverk hópsins skal vera að fjalla um stjórn og samræmingu aðgerða bæði á vettvangi og fyrir landið í heild, um þjálfun heilbrigðisstarfsmanna í meðhöndlun slasaðra, einkum viðbrögðum á vettvangi, og aðra þætti í skipulögðum viðbrögðum þjóðfélagsins vegna slysa með það að markmiði að hér á landi verði komið á heildarskipulagi á þessu sviði. Starfshópurinn skal skila niðurstöðum sínum til ráðuneytisins í formi skýrslu eigi síðar en í nóvember 2003.
Um alllangt skeið hefur ráðuneytið unnið að því að koma upp æfingaaksturssvæði fyrir ökunema hér á höfuðborgarsvæðinu, þar sem ökumenn og ökunemar fái sérstaka þjálfun til að aka við fjölbreyttar aðstæður svo sem á malarvegum, í hálku og í bleytu. Að þessum undirbúningi hafa komið ökukennarar, Samband íslenskra tryggingafélaga, Vegagerðin, Umferðarráð, Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og haft hefur verið samband um málið við fleiri aðila. Málið hefur lítið þokast áfram síðan dómsmálaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra tryggingafélaga, Vegagerðin og Ökukennarafélag Íslands undirrituðu þann 30. nóvember 2000 samkomulag um stofnun félags er hafi það að markmiði að byggja upp og starfrækja æfingasvæði til ökukennslu á lóð sem Reykjavíkurborg muni úthluta félaginu við Gufunes í Reykjavík. Hefur Reykjavíkurborg samið við ökukennara um úthlutun á svæði í Gufunesi. Í nóvember 2002 fól dómsmálaráðherra Umferðarstofu að taka þetta mál til vandlegrar könnunar. Fengin var verkfræðistofan Fjölhönnun ehf. til að endurskoða fyrri athugun um æfingasvæði og skilaði hún skýrslu í lok janúar 2003. Hefur ráðuneytið í framhaldi þess óskað eftir viðræðum við viðkomandi aðila um þessi mál.
Starfshópur sem dómsmálaráðherra skipaði árið 2001 og falið var að fjalla um þingsályktun Alþingis sem samþykkt var 15. desember 2000 um flutning á hættulegum efnum um jarðgöng, og dómsmálaráðherra var falin framkvæmd á, skilaði skýrslu í lok árs 2002. Starfshópurinn telur að þrátt fyrir að áhætta í Hvalfjarðargöngunum sé lítil þegar litið er til sambærilegra mannvirkja í öðrum löndum sé unnt að auka öryggið enn frekar. Hefur starfshópurinn lagt fram ýmsar tillögur að aðgerðum og reglugerðarbreytingum sem fallist hefur verið á að hrinda í framkvæmd.
4.1.2 Umferðarráð
Þann 1. október 2002 tóku gildi breytingar um starfsemi Umferðarráðs, Umferðarstofu o.fl. Samkvæmt þeim tók Umferðarstofa við stjórnsýsluverkefnum á sviði umferðarmála sem áður heyrðu undir Umferðarráð, þ.e. umferðarfræðslu, slysaskráningu og umsjón og eftirliti með ökunámi og ökuprófum. Við þessi tímamót fluttust 6 starfsmenn Umferðarráðs yfir til Umferðarstofu en tveir létu af störfum. Framkvæmdastjóri Umferðarráðs, sem jafnframt gegnir formennsku í ráðinu, hefur starfsaðstöðu hjá Umferðarstofu, svo og framkvæmdastjóri rannsóknarnefndar umferðarslysa. Við þessa breytingu lauk starfsemi stofnunarinnar Umferðarráðs og var skrifstofuhúsnæði því sem hún hafði haft á leigu frá árinu 1992 í Borgartúni 33 sagt upp.
Verkefni sem Umferðarráð vann að á árinu voru m.a. eftirtalin:
Í ársbyrjun var gerður samningur til þriggja ára við Frumherja hf. um að fyrirtækið tæki að sér framkvæmd ökuprófa. Viðhorfskönnun um umferðarmálefni var kynnt í febrúar en hún var gerð af Gallup fyrir Umferðarráð, ríkislögreglustjórann og Vegagerðina. Umferðarfulltrúar Umferðarráðs og Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru 6 að störfum í þrjá mánuði sl. sumar og unnu að margvíslegum verkefnum á sviði umferðaröryggismála. Stuttir leiknir umferðarþættir fyrir útvarp voru gerðir í tengslum við þetta starf og þeim útvarpað á Rás 2. Árleg umferðarkönnun Umferðarráðs fór fram síðustu vikuna í júní 2002, og önnuðust lögreglumenn um allt land hana að venju. Umferðarblaði, „Horfum fram á veginn“, sérriti um umferðaröryggismál, var dreift með Morgunblaðinu í júlí 2002 að frumkvæði dómsmálaráðuneytisins, en það var gefið út í samstarfi ráðuneytisins, Umferðarráðs, ríkislögreglustjórans og Skráningarstofunnar hf. Útvarp Umferðarráðs hefur verið fastur liður í útvarpshlustun landsmanna, en frá því að starfsemi þess hófst 31. júlí 1992 til 30. september 2002 var samtals sent út 26.305 sinnum á öllum helstu útvarpsstöðvum landsins. Könnun á öryggi barna í bílum var gerð í aprílmánuði eins og mörg undanfarin ár á vegum Umferðarráðs, Árvekni, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og náði til 2203 barna. Umferðarráð og rannsóknarnefnd umferðarslysa unnu á árinu 2002 skýrslu fyrir Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglana, um bifhjólaslys á árunum 1991–2000. Fræðsluefni var dreift til erlendra ferðamanna á árinu, bæði til þeirra ökumanna sem komu með Norröna til Seyðisfjarðar og til þeirra sem tóku bíl á leigu á bílaleigum. Bæklingarnir voru unnir í samstarfi Samtaka ferðaþjónustunnar, Sjóvár-Almennra og Umferðarráðs. Bæklingarnir eru á 6 tungumálum, auk íslensku. Umferðarnámskeið fyrir 5 og 6 ára börn fóru að venju fram á vegum Umferðarráðs, lögreglu og sveitarfélaga sl. sumar og stóðu yfir í 13 daga. Námskeiðin voru samtals 85 á 55 stöðum í 10 sveitarfélögum og sóttu þau liðlega 3.700 börn og 1.400 fullorðnir. Um verslunarmannahelgina starfrækti Umferðarráð að venju upplýsingamiðstöð og var m.a. útvarpað frá henni á öllum helstu útvarpsstöðum. Árið 2000 samdi Umferðarráð við Spöl hf. um að ökukennarar ættu þess kost að aka með nemendur sína um Hvalfjarðargöngin án greiðslu. Á þennan hátt öðluðust ökunemar reynslu af akstri um jarðgöng, auk þess sem þessi tilhögun myndi hvetja til þess að kennarar af höfuðborgarsvæðinu færu í auknum mæli með nemendur út á vegi og kennarar frá Vesturlandi og víðar að kæmu með nemendur í borgarumferðina. Samtals hafa nú á fjórða þúsund ökunemar farið um Hvalfjarðargöngin. Í ágúst 2002 sendi Umferðarráð, í samstarfi við Námsgagnastofnun, fræðsluefni til allra barna sem voru að hefja skólagöngu í fyrsta sinn. Umferðarþing, hið fimmta í röðinni, var haldið í Reykjavík í nóvember 2002. Þingið var að miklu leyti helgað verkefnum á sviði rannsókna sem Rannum styrkti árin 2001 og 2002. Samtals voru 9 slík verkefni kynnt, auk þess sem greint var frá því starfi sem unnið hefur verið að á vegum Rannum frá stofnun þess árið 2000. Dagskrá Umferðarþings tók mið af umferðaröryggisáætlun til ársins 2012. Viðurkenning Umferðarráðs, „Umferðarljósið“ var veitt „viðbragðsaðilum á vettvangi umferðarslysa“ fyrir mikil og árangursrík störf við björgun mannslífa á liðnum árum.
4.1.3 Umferðarstofa
Umferðarstofu ber lögum samkvæmt að annast fræðslu og upplýsingamiðlun um umferðarmál og styðja aðgerðir sem stuðlað geta að bættu umferðaröryggi. Starfið á því sviði mótast meðal annars af þingsályktun Alþingis um stefnumótun og aukið umferðaröryggi og öðrum markmiðum sem sett eru á hverjum tíma. Þar sem Umferðarstofa tók til starfa síðari hluta árs 2002, eins og fram kom í kafla 3.1.1, verður hér fyrst og fremst fjallað um það sem er fram undan hjá Umferðarstofu.
Eitt mikilvægasta verkefnið 2003 er að stemma stigu við hröðum akstri með því að vekja athygli ökumanna á því hvaða afleiðingar hraðakstur getur haft og þannig að unnt verði að breyta viðhorfi ökumanna til ökuhraða.
Notkun bílbelta dregur verulega úr hættunni á því að ökumenn og farþegar verði fyrir alvarlegu líkamstjóni í umferðarslysi. Talsvert vantar á að bílbeltanotkun sé nógu mikil og gerir Umferðarstofa ráð fyrir að leggja mikla áherslu á öryggi ökumanna og farþega í bílum á árinu 2003. Einnig verður mikil áhersla áfram lögð á öryggi barna í bílum.
Ölvunarakstur er meðal stærstu orsakaþátta umferðarslysa á Íslandi eins og í flestum nágrannalöndunum. Mikilvægt er að efla enn frekar löggæslu og fræðslu í þeim efnum og auka vitund ökumanna um hættuna sem af því stafar að aka þreyttur og að aka undir áhrifum áfengis eða lyfja. Ekki er síst ástæða til að finna betri leiðir en nú er kunnugt um til að greina og mæla neyslu fíkniefna.
Umferðarstofa stefnir að áframhaldi samstarfi við lögreglu og veghaldara til að vinna að markmiðum umferðaröryggisáætlunar, sem og aðra þá sem starfa að umferðaröryggismálum. Hér er um að ræða opinbera aðila, fyrirtæki og frjáls félagasamtök. Verið er að koma á fót vinnuhópum þar sem unnið verður að undirbúningi og skipulagi umferðaröryggisaðgerða og línur lagðar fyrir mat á árangri þess sem gert verður. Framhald verður á könnunum á notkun bílbelta og annars öryggisbúnaðar í bílum, ökuhraði verður mældur bæði í þéttbýli og dreifbýli og fleiri þættir sem nauðsynlegt er að hafa yfirsýn yfir til að meta hvort hlutir stefna í rétta átt.
Gert er ráð fyrir a.m.k. þremur stórum umferðaröryggisaðgerðum á árinu 2003, ef hægt verður að afla til þess nægs fjármagns. Stefnt er að ráðningu umferðarfulltrúa um allt land í samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg eins og gert hefur verið á undanförnum árum
Slysaskráningar hafa verið efldar verulega og starfa nú þrír starfsmenn við skráningu á umferðarslysum samkvæmt lögregluskýrslum. Fyrirhugað er að skráningin, sem nú er 1–2 árum á eftir, nái til dagsins í dag í lok ársins 2003.
Ákveðið hefur verið að hefja endurskoðun á námsefni umferðarskólans Ungir vegfarendur og að efni fyrir einn árgang verði endurskoðað á ári, þannig að því verki ljúki árið 2007. Einnig verður námsefni námskeiða fyrir 5 og 6 ára börn endurskoðað. Stefnt er að eflingu umferðarfræðslu í skólum í samstarfi við fulltrúa grunnskóla, Námsgagnastofnun og aðra aðila sem starfa á opinberum vettvangi og tengjast lífsleikni í skólum landsins. Bæði er gert ráð fyrir að fara hefðbundnar leiðir í gerð námsefnis og einnig að nýta internetið og tölvutækni.
Unnið er að mati á starfsemi Umferðarútvarpsins og eflingu þess í samráði við forráðamenn útvarpsstöðva, lögreglu, veghaldara og almenning.
Huga þarf að málefnum aldraðra í umferðinni, meðal annars með hliðsjón af aukinni þátttöku þeirra í umferðinni og vegna breyttra aðstæðna.
4.1.4 Ríkislögreglustjórinn
Áhersla lögreglu á umferðarlöggæslu var mikil árið 2002. Umferðareftirliti var hagað með svipuðum hætti og árin á undan en aukin áhersla var á samstarf milli lögreglustjóranna og skipulagt samstarf þeirra í landshlutunum. Þá var stuðlað að auknu eftirliti með þátttöku umferðardeildar ríkislögreglustjórans sem samanstendur af sérhæfðum lögreglumönnum á sviði umferðarlöggæslu og tækjabúnaði svo sem hraðamyndavélum, öndunarsýnatækjum og myndbandsupptökubúnaði.
Markmið umferðarlöggæslunnar er fækkun umferðarslysa. Til að ná því var lögð áhersla á eftirlit með of hröðum akstri, ölvunarakstri og notkun öryggisbúnaðar í bifreiðum, bæði meðal barna og fullorðinna.
Aukin hefur verið fræðsla til lögreglumanna um umferðarmálefni m.a. með aðkomu lögregluskólans. Ratsjártæki í lögreglubifreiðum hafa verið endurnýjuð og þeim fjölgað. Á árinu var tekið í notkun nýr ratsjárbúnaður af gerðinni Golden Eagle með myndbandsupptökubúnaði. Þá var keypt laser-hraðamælingatæki sem verið er að prófa og unnið er að vinnureglum um notkun slíkra tækja.
Lögregluskýrslum vegna umferðarlagabrota hefur fjölgað á undanförnum árum. Árið 2002 voru rúmlega 73% af brotum skráðum í málaskrá lögreglu vegna umferðarlagabrota. Umferðareftirlit er því stór þáttur í daglegri vinnu lögreglunnar.
Umferðareftirlit var aukið yfir sumarið, m.a. með auknu samstarfi á milli lögregluembætta. Þá var eftirlit sérstaklega hert um Verslunarmannahelgina bæði af hálfu lögregluembættanna og umferðardeildar ríkislögreglustjórans og notkun hraðamyndavéla var aukin.
Á árinu gerðu ríkislögreglustjórinn, Vegagerðin og Umferðarráð árangursstjórnunarsamning til að koma í veg fyrir umferðarslys. Þá voru gerðir samstarfssamningar milli ríkislögreglustjórans, Vegagerðarinnar og viðkomandi lögreglustjóra vegna Reykjanesbrautar, Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar um aukið umferðareftirlit á þessum vegum. Hefur þannig verið unnið að því að gera umferðarlöggæslu markvissari með því að nýta aukna skráningu upplýsinga og tölulega úrvinnslu.
Áhersla hefur beinst að þeim þáttum sem leiða til fækkunar umferðarslysa svo sem að stemma stigu við hraðakstri og ölvunarakstri en einnig hefur verið aukið eftirlit með notkun öryggisbúnaðar í bifreiðum.
Einnig má nefna hert eftirlit með frágangi farms og innan skamms er að vænta nýrrar reglugerðar varðandi þann þátt. Eftirlit hefur verið aukið með hópbifreiðum, vöruflutningabifreiðum, kerrum og aðhald hefur verið aukið með því að dökkar filmur séu ekki í hliðarrúðum bifreiða að framan.
Lögreglan hefur staðið fyrir slysalausum degi í umferðinni. Hugmyndin þar að baki er að hafa uppi áróður um það hversu mörg óhöpp eru í umferðinni og hver kostnaður samfélagsins er af þeim. Skilaboð lögreglu eru að ökumenn taki sig saman og sýni að við getum haft einn slysalausan dag í umferðinni. Þetta hefur tekist bærilega, þótt dagurinn hafi reyndar ekki orðið alveg slysalaus. Lögreglan hefur þannig sent erindi til fjölmiðla og annarra aðila og fengið þá í samstarf og það gengið vel. Fjölgað hefur verið lögreglumönnum að starfi úti í umferðinni og ökutæki lögreglu verið staðsett með áberandi hætti. Lögreglan í Reykjavík hefur átt frumkvæðið að slysalausum degi en önnur embætti hafa einnig tekið þátt í átakinu.
4.1.5 Rannsóknarnefnd umferðarslysa
Árið 2002 gaf rannsóknarnefnd umferðarslysa út þrjár skýrslur sem fjalla um umferðaröryggismál. Nefndin skilaði skýrslu um útafakstur í dreifbýli til Rannsóknarráðs umferðaröryggismála árið 2002, skýrslu um bifhjólaslys árin 1991–2000 í samstarfi við Umferðarráð og skýrslu um banaslys í umferðinni 2001.
Í skýrslu um banaslys í umferðinni birtir nefndin ábendingar sínar, en þær eru sá lærdómur sem nefndin hefur dregið af rannsóknum sínum og telur mikilvægast að koma á framfæri. Á fundi með dómsmálaráðherra í júní 2002 fór rannsóknarnefndin yfir þessar ábendingar og síðar með sérfræðingum dómsmálaráðuneytisins á fundi þann 25. 11. 2002. Auk þess hefur nefndin sent ýmsum aðilum bréf með athugasemdum. Þá kom nefndin að ýmsum fundum og fyrirlestrum á árinu.
Rannsóknarnefndin er nú að hefja orsakagreiningu banaslysa í umferðinni fyrir árið 2002 og mun skila niðurstöðum til dómsmálaráðherra í maí 2003.
4.1.6 Lögregluskóli ríkisins
Hefðbundin kennsla í grunnnámi skólans var endurskoðuð á árinu og umferðaröryggismál gerð að sérstöku viðfangi. Framkvæmdastjóri rannsóknarnefndar umferðarslysa var ráðinn til að verkstýra þeim þætti grunnnámsins. Annað starf í grunnnámi var hefðbundið og þjálfun og kennsla í umferðarmálum um 100 kennslustundir til lögregluprófs. Á árinu var hafin endurskoðun akstursþjálfunar lögreglunema með það fyrir augum að minnka áhættu af henni og reyna að tryggja að lögreglunemar verði betri ökumenn.
Á reglulegum símenntunarnámskeiðum skólans var fjallað um umferðaröryggismál og nýmæli í málaflokknum. Starfandi lögreglumenn sækja slík námskeið. Meðal þess sem lögð var áhersla á að kynna var umferðaröryggisáætlun til ársins 2012.
Árið 2002 voru haldin nokkur sérmenntunarnámskeið á vegum skólans, námskeið fyrir bifhjólalögreglumenn, réttindanámskeið fyrir sýnatökumenn til öflunar öndunarsýna, réttindanámskeið á hraða- og rauðljósamyndavélar og leiðbeinendanámskeið fyrir leiðbeinendur lögregluliðanna á hraðamælingartæki lögreglunnar. Á sama tíma var skipulagt átak í endurmenntun starfandi lögreglumanna í hraðamælingum.
Á sérnámskeið fyrir rannsóknarlögreglumenn voru rannsóknir umferðarslysa teknar til sérstakrar skoðunar með það fyrir augum að koma á framfæri upplýsingum um aðferðir til að meta hraða ökutækja sem lenda í umferðaróhöppum og slysum.
Starfshópur um stefnumótun í rannsóknum umferðarslysa lögreglu var skipaður á árinu af ríkislögreglustjóranum að frumkvæði Lögregluskólans og undir forystu hans. Starfshópurinn á að vinna tillögur að kennsluefni um rannsóknir umferðarslysa og mun ljúka störfum á fyrri hluta ársins 2003.
4.1.7 Samgönguráðuneytið
Af hálfu samgönguráðuneytisins fer Vegagerðin með framkvæmd vega- og umferðarmála. Aðkoma samgönguráðuneytisins hefur helst falist í því að standa fyrir endurskipulagningu og samræmingu áætlanagerðar í samgöngum og er nú í fyrsta skiptið lögð fram á Alþingi samgönguáætlun 2003–2012 og fjögurra ára áætlun hennar 2003–2006 sem kemur í stað 6 annarra áætlana.
Samgönguáætlun hefur ýmsar nýjungar fram að færa og er ein þeirra sú að mótuð er stefna í samgöngumálum til næstu 12 ára, sem ekki var gert í fyrri áætlunum. Í stefnumótuninni eru tilgreind fjögur meginmarkmið og er eitt þeirra markmið um öryggi í samgöngum.
Sett er fram það áform að vinna að því að fækka dauðaslysum og öðrum alvarlegum slysum í umferðinni um 40% til ársins 2012 í samræmi við umferðaröryggisáætlun 2001– 2012 sem Alþingi hefur samþykkt.
Í þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2003–2014 eru tilgreindar nokkrar aðgerðir til þess að ná markmiði um öryggi í samgöngum. Þær eru m.a. að efla rannsóknir á sviði umferðaröryggismála, stuðla að ábyrgari hegðun með aukinni fræðslu og áróðri, gera umhverfi vega og gatna öruggara og að vinna að enn virkara samstarfi við lögreglu, Umferðastofu, Umferðarráð og sveitarfélaga til þess að auka umferðaröryggi.
Þá eru í tillögunni að finna tillögur um margar framkvæmdir, svo sem að fækka einbreiðum brúm, sem flestar stuðla að auknu umferðaröryggi.
Vísað er til þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2003–2014 og um fjögurra ára áætlun samgönguáætlunar 2003–2006 um nánari skýringar sem og til svars Vegagerðarinnar við sama erindi.
4.1.8 Vegagerðin
Vegagerðin gaf út stefnu sína í umferðaröryggismálum í október 2001. Hún vinnur eftir umferðaröryggisáætlun sem er samhljóða markmiðum stjórnvalda um fækkun alvarlega slasaðra og látinna.
Gerðar hafa verið aðgerðaráætlanir sem taka mið af því að hægt verði að ná þessum markmiðum. Vegagerðin vinnur eftir ákveðnum reglum um úttekt á slysastöðum og gerir kerfisbundnar úttektir á þjóðvegakerfinu.
Á árinu 2002 voru veittar 130 millj. kr. til lagfæringa á svartblettum og til eftirlits með þunga ökutækja og hvíldartíma ökumanna ásamt almennri löggæslu í samvinnu við ríkislögreglustjórann. Lagaðir voru 25 staðir á þjóðvegakerfinu og voru aðgerðir breytilegar frá því að bæta merkingar til endurgerðar á gatnamótum.
Vegagerðin lætur skoða öll hönnunargögn af sérstökum vinnuhópi í þeim tilgangi að koma eins og kostur er í veg fyrir að vegir séu byggðir með annmörkum sem gætu leitt til slysa.
Vegagerðin vinnur eftir gæðastöðlum í vetrar- og sumarþjónustu.
Sett voru upp skilti um leyfðan hámarkshraða þegar ekið er út úr þéttbýlisstöðum.
Vegagerðin hefur gert samning við ríkislögreglustjóra um umferðareftirlit og einnig við Samskip og Flytjanda um bætt umferðaröryggi í flutningum.
Sett hafa verið á vegakerfið fjöldi mælitækja sem eiga að bæta upplýsingar til vegfarenda m.a. um ástand vega og færð, umferð og hraða ökutækja. Einnig hafa verið settar upp myndavélar á helstu fjallvegi til að auðvelda vegfarendum ákvarðanatöku um ferðalög. Allar þessar upplýsingar eru birtar á heimasíðu Vegagerðarinnar.
Vegagerðin fjármagnar að mestu Rannsóknarráð umferðaröryggismála, en ráðið veitir fjármagni til einstakra rannsóknarverkefna.
4.1.9 Rannsóknarráð umferðaröryggismála
Rannum, sem er samstarfsvettvangur Vegagerðarinnar, Rauða kross Íslands, Umferðarráðs, Landspítala háskólasjúkrahúss og 13 annarra aðila, veitti á árinu 2001 18 umsækjendum styrk til rannsókna á sviði umferðaröryggismála. Nam styrkupphæðin samtals um 23 millj. kr.
Á árinu 2002 veitti Rannum styrk til 23 fjölbreyttra verkefna, sem varða meðal annars unga ökumenn frá ýmsum sjónarhornum, um slysatíðni þar sem breyttir jeppar koma við sögu, um ýmsa þætti sem tengjast slysum og umferðaröryggi á þjóðvegum og fleira. Styrkupphæðin árið 2002 nam samtals um 24 millj. kr.
Samstarf innan Rannum hófst árið 2000 og mun standa yfir í 5 ár. Að þeim tíma liðnum verður starfsemin metin og ákvörðun um framhald tekin.
4.1.10 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Í heilbrigðisáætlun til ársins 2010 sem samþykkt var á Alþingi 20. maí 2001 eru slysavarnir eitt af 7 forgangsmarkmiðum.
Í áætluninni eru þau markmið sett að slysum og dauðaslysum fækki um 25% til ársins 2010. Slysavarnaráð og aðrar stofnanir ráðuneytisins vinna nú skipulega að framgangi þessara markmiða.
4.1.11 Umhverfisráðuneytið
Á síðasta ári var unnin á vegum ríkisstjórnarinnar stefnumörkun um sjálfbæra þróun til 2020 (Velferð til framtíðar – sjálfbær þróun í íslensku samfélagi, ágúst 2002). Þó svo ekki sé þar sérstaklega fjallað um umferðaröryggi er líf og heilbrigði íbúa mikilvægur þáttur sjálfbærrar þróunar. Þegar til þess er litið að minnst er á vanda aukinnar bílaumferðar með tilliti til mengunar og loftgæða er ekki síður athyglisvert að benda á umferðaröryggisþætti sem ávinning af breyttum og umhverfisvænni samgöngukostum svo sem þegar lögð er aukin áhersla á almenningssamgöngur.
Bersýnilegust tengsl umhverfisráðuneytis við umferðaröryggismál eru fyrirmæli um gerð aðalskipulags og deiliskipulags. Veigamikill hluti öryggis í bílaumferð er hönnun vega, gatna og gatnamóta. Skipulagsstofnun hefur því hlutverki að gegna m.a. að vinna leiðbeiningar fyrir sveitarstjórnir og hönnuði um gerð skipulagsáætlana sem og að vera sveitarstjórnum til ráðuneytis um ýmis atriði skipulagsmála. Í því samhengi er eðlilegt að virkja ásetning umferðaröryggisáætlunar 2002–2012. Ætlar umhverfisráðuneytið að koma slíkri ábendingu á framfæri við Skipulagsstofnun.
4.1.12 Landbúnaðarráðuneytið
Ráðuneytið hefur lengi barist fyrir úrbótum á því er varðar lausagöngu búfjár. Því er nauðsynlegt til þess að fá yfirlit yfir störf ráðuneytisins á þessu sviði að líta til fleiri ára en ársins 2002.
Á árinu 2002 var sett reglugerð um girðingar, nr. 748/2002. Reglugerð þessi gildir um uppsetningu og frágang girðinga. Markmið reglugerðarinnar er að kveða á um ýmsa staðla og orðskýringar og hvaða lagaskilyrði girðing þarf að uppfylla til að teljast fullnægjandi varsla fyrir hverja búfjártegund. Jafnframt er mælt fyrir um hvernig háttað skuli undirbúningi, uppsetningu, gerð og tæknilegum frágangi girðinga. Þess er vænst að reglugerð þessi muni stuðla mjög að öryggi girðinga, ekki síst meðfram þjóðvegum.
Nefnd á vegum landbúnaðarráðuneytisins sem í áttu sæti auk fulltrúa landbúnaðarráðuneytisins fulltrúar frá dómsmálaráðuneytinu, samgönguráðuneytinu, Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Bændasamtökum Íslands og Sambandi íslenskra sveitarfélaga skilaði áliti sínu á árinu 2001, þar sem settar eru fram margar tillögur til úrbóta er varðar búfé á vegsvæðum.
Skýrsla nefndarinnar og tillögurnar voru sérstaklega kynntar dómsmálaráðherra og samgönguráðherra með ósk um samvinnu og viðbrögð af þeirra hálfu. Því miður hefur minna þokast áleiðis hvað tillögurnar varðar en vonast var eftir en þó má greina viðbrögð s.s. hvað varðar auknar merkingar með vegum og þátttöku Vegagerðarinnar í ákvörðunum og kostnaði við girðingar.
Ráðuneytið hefur verið ráðleggjandi og að hluta til þátttakandi í aðgerðum þar sem girt hafa verið beitarhólf, svo sem á Mosfellsheiði og við Berufjörð sem miða að því að draga úr ágangi búfjár á þjóðvegi.
4.2. Sveitarfélög
Beðið var um upplýsingar frá 10 fjölmennustu sveitarfélögunum. Eftirtalin sveitarfélög svöruðu erindinu og eru hér á eftir birtar helstu niðurstöður úr svörum þeirra.
4.2.1 Reykjavíkurborg
Borgarráð samþykkti á vormánuðum 2002 nýja umferðaröryggisáætlun fyrir Reykjavík 2002–2007. Leitast verður við að taka heildstætt á umferðaröryggismálum í borginni. Borgarstjórn samþykkti fjárhags- og framkvæmdaáætlun til ársins 2007. Áætlun var send til almennrar kynningar og bárust sjö athugasemdir og fer umfjöllun nú fram í samgöngunefnd borgarinnar. Í umferðaröryggisáætluninni eru skilgreind 26 meginverkefni og ábyrgðaraðilar ákveðnir. Helstu verkþættir á árinu 2002 voru endurbygging og lagfæring á svartblettum, gerð 30 km svæða, uppsetning umferðarljósa/gangbrautarljósa og ýmsar lagfæringar á aðalgatnakerfinu, þar á meðal gerð mislægra gatnamóta.
4.2.2 Seltjarnarnes
Á árinu 2002 var leyfður hámarkshraði endurskoðaður á Seltjarnarnesi og skiltum breytt í samræmi við það og ýmsar lagfæringar gerðar á merkingum. Ný gangbrautarljós voru tekin í notkun. Í samstarfi við Mýrarhúsaskóla og fleiri aðila var gert átak í því að auka öryggi barna í umferðinni með því að kenna börnunum á göngustígakerfi að skólanum ásamt því að umferðarskipulagi var breytt við Mýrarhúsa- og Valhúsaskóla.
4.2.3 Kópavogur
Umferðarnefnd samþykkti framkvæmdaáætlun um aðgerðir sem ætlað er að stuðla að bættu umferðaröryggi í bæjarfélaginu. Í aðalskipulagi Kópavogs fyrir árin 2000–2012 kemur fram að meginmarkmið sé að auka öryggi allra vegfarenda og draga úr óþægindum af bílaumferð. Á vegum bæjarins var unnið að framkvæmdum í 22 liðum vegna 30 km hverfa og samþykkt hefur verið framkvæmdaáætlun um hljóðvarnaraðgerðir í bænum. Stefnt er að því að ný umferðaröryggisáætlun fyrir Kópavog verði tilbúin á fyrri hluta árs 2004.
4.2.4 Garðabær
Markvisst er stefnt að flokkuðu gatnakerfi í bænum í því skyni að minnka umferð og bæta öryggi í íbúðargötum. Bærinn hefur starfrækt tvö hraðamælingatæki í þeim tilgangi minnka hraðakstur, komið fyrir hraðahindrunum þar sem þess er þörf og veitt lögreglunni upplýsingar um hraðakstur. Öll íbúðarsvæði í bænum hafa verið skilgreind sem 30 km svæði. Ákveðið hefur verið að gera úttekt á hægri forgangi í bænum og úttekt á umferðarslysum eftir 1995 til viðbótar sambærilegri úttekt fyrir árin 1992 til 1995.
4.2.5 Hafnarfjörður
Undanfarin ár hefur markvisst og samkvæmt áætlun verið unnið að uppbyggingu 30 km hverfa í bænum og hefur eitt hverfi verið tekið fyrir á hverju ári. Leitast er við að lagfæra verstu slysastaði samkvæmt svartblettaskoðun, sem er stöðugt unnið að, og í samstarfi við Vegagerðina hafa gatnamót og götukaflar á þeim götum sem tilheyra vegsvæðum Vegagerðarinnar verið lagfærðir í því skyni að koma í veg fyrir slys. Þá hefur árlega og með víðtæku samstarfi verið efnt til umferðarviku í bænum, allt frá árinu 1999.
4.2.6 Reykjanesbær
Árið 2001 var samþykkt nýtt umferðarskipulag í bænum og er markmið þess að auka umferðaröryggi á sem viðtækastan hátt og þá sérstaklega í íbúðarhverfum. Stefnt er að því að öll íbúðahverfi verði 30 km hverfi en aðalgötur og götur í iðnaðarhverfum verði með 50 km/klst. leyfðan hraða. Framkvæmdir eru þegar hafnar og verður dreift á nokkur ár. Árið 2002 var ýmislegt framkvæmt í þágu aukins umferðaröryggis, svo sem gerð nýrra gangbrauta, sérstakar aðgerðir við grunnskóla, unnið að umferðarmerkingum og gert nýtt hringtorg.
4.2.7 Akranes
Á Akranesi var að störfum vinnuhópur sem gerði tillögur um úrbætur og hefur verið unnið eftir þeim tillögum síðan. Helstur aðgerðir árið 2002 voru gegn óhóflegum umferðarhraða, en hraðahindrunum, sem jafnframt eru gangbrautir var komið fyrir á þremur stöðum, yfirborðsmerkingar voru bættar með aðaláherslu á gangbrautir, aðstæður við skóla voru bættar, m.a. með uppsetningu gangbrautarljósa, gönguleiðir voru lagfærðar, breyting var gerð á gatnamótum til þess að skilgreina umferðarforgang betur og ákveðnar voru takmarkanir á umferð vöru- og flutningabifreiða í bænum.
4.2.8 Árborg
Undirbúningur var gerður að 30 km svæðum en ekki hefur verið farið í framkvæmdir. Unnin hefur verið skrá um svartbletti og í framhaldi af því gerð tvö hringtorg á gatnamótum þar sem mörg slys höfðu orðið. Engar nýjar hraðahindranir voru teknar í notkun á árinu 2002.
4.2.9 Mosfellsbær
Nýlega var samið við verkfræðifyrirtæki um að gera tillögur um staðsetningu 30 km svæða/gatna, hraðahindrana og gangbrauta í bæjarfélaginu. Frá 1998 hefur verið unnið að því að bæta umgengni fyrir fatlaða í samræmi við úttekt sem þá var gerð. Í nýsamþykktu aðalskipulagi fyrir Mosfellsbæ 2002–2024 er gerð grein fyrir umferðarskipulagi í nýjum hverfum. Þar er tekið fram að við gatnaframkvæmdir og skipulagsgerð skuli við það miðað að hámarks umferðarhraði í húsagötum verði 30 km. Jafnframt að hugað skuli að umferðaröryggismálum í eldri hverfum og er sú úttekt sem nú er unnið að liður í þeirri áætlun.
4.3. Vátryggingafélög
4.3.1 Sjóvá-Almennar-tryggingar hf.
Félagið sinnir forvarnarstarfi á mjög mörgum sviðum, þ.e. í fyrirtækjum, á heimilum og sumarhúsum og hjá bæjarfélögum, en mest þó í umferðarmálum. Helstu verkefni á því sviði eru:
Árlega eru haldin milli 30 og 40 námskeið um land allt fyrir unga ökumenn. 6–800 manns koma árlega á námskeiðin og hafa athuganir félagsins sýnt að árangur er mjög góður eða allt að þrefalt lægri tjónatíðni hjá hópnum en hjá þeim sem ekki koma á námskeið. Þá hefur greinilega komið í ljós að tjón þeirra sem lenda í tjóni eftir námskeið eru ekki eins alvarleg og hinna sem ekki koma. Milli 30 og 40% námskeiðanna eru á landsbyggðinni.
Félagið býður þeim viðskiptavinum sem hafa marga bíla í tryggingu að halda námskeið fyrir ökumenn þeirra. Nokkur þessara fyrirtækja hafa þetta sem fastan lið og með góðum árangri.
Félagið hefur tekið upp þá nýbreytni að vara ökumenn ákveðinna fyrirtækja við vondu veðri, m.a. hjá Flytjanda. Þegar von er á stormi (yfir 20 m/sek) er send út viðvörun, misalvarleg eftir því hversu miklum vindi er spáð.
Félagið hefur sérstaklega unnið að því að auka öryggi erlendra vegfarenda með öflugu samstarfi við stærstu bílaleigurnar á landinu og Umferðarráð.
Ökuskólum hefur verið boðið upp á þá þjónustu að fjalla um tryggingar og tjón samkvæmt námskrá. Stór hluti ökunema á höfuðborgarsvæðinu nýtur þessarar þjónustu ásamt nokkrum á landsbyggðinni.
Starfsmenn heimsækja marga grunnskóla og framhaldsskóla og eru með kynningu sem tengist umferðinni. Í grunnskólum eru það aðallega valhópar í umferðarfræðslu sem nýta þessa kynningu.
Félagið vinnur að ýmsum öðrum verkefnum, ýmist í samstarfi við aðra eða á eigin vegum. Má nefna ÖKULEIKNINA í samstarfi við Bindindisfélag ökumanna (BFÖ), Umferðarráð, Landsbjörg og fleiri og verkefnið „Akstur krefst athygli“ í samstarfi við BFÖ, Flytjanda, Skeljung og Umferðarráð.
Veltibíllinn, sem er sameign félagsins, BFÖ og Umferðarráðs, hefur verið fastur þáttur í fræðslustarfi um bílbelti um margra ára skeið.
„Fyrirmyndarökumaðurinn“ hefur verið átaksverkefni undanfarin sumur þar sem ökumenn eru hvattir á jákvæðan hátt til að vera til fyrirmyndar í umferðinni.
Átak gegn ölvunarakstri í samstarfi við önnur tryggingafélög, BFÖ, lögreglu o.fl. hefur verið fastur liður undanfarin ár.
Áhersla er lögð á að vegfarendur noti allan öryggisbúnað, svo sem bílbelti, endurskinsmerki, barnabílstóla o.fl. Í því skyni hefur félagið boðið viðskiptavinum sínum sérkjör á barnabílstólum, bæði til leigu og kaups. Þá hefur félagið látið gera um 20.000 endurskinsmerki af ýmsum gerðum sem dreift er til vegfarenda.
Fulltrúar félagsins hafa heimsótt ýmis félög eldri borgara og haldið fundi með eldri ökumönnum. Heimsóknirnar hafa gefist vel og mun verða haldið áfram.
Félagið á aðild að Fararheill, sem er sameiginlegur vettvangur bifreiðatryggingafélaganna í umferðaröryggismálum.
4.3.2 Tryggingamiðstöðin hf.
Félagið kom á árinu 2002 sem og undanfarin ár að umferðaröryggismálum á margan hátt. Beinn útlagður kostnaður vegna stuðnings við átaksverkefni og auglýsingar með opinberum aðilum, s.s. Umferðarráði og lögreglu, klúbbum og félagssamtökum út um allt land nam um kr. 3.500.000 á árinu 2002.
Þess utan hefur félagið dreift á annan tug þúsunda endurskinsmerkja í samvinnu við lögreglu um allt land og Strætó bs. TM hefur boðið í Netverslun TM ýmsar öryggisvörur á lágmarksverði þar á meðal vegna umferðaröryggis og voru sendir út kynningarbæklingar á um það bil 20.000 heimili á síðasta ári.
Umferðaröryggisfundir hafa verið haldnir m.a. með Sniglum, 4x4 klúbbnum og fleirum auk þess sem TM og Strætó bs. eru með mjög virkan starfshóp með tveimur fulltrúum frá hvorum aðila sem greina öll óhöpp sem verða hjá Strætó bs. Fyrirlestrar hafa verið haldnir fyrir bílstjóra Strætó o.fl. sem liður í að lágmarka umferðaróhöpp hjá fyrirtækinu.
Starfsemi Fararheilla sem eru forvarnasamtök á vegum SÍT er sívirk og var á hennar vegum m.a. framkvæmd umfangsmikil könnun á umferð við fjölförnustu gatnamót landsins, Miklabraut/Kringlumýrarbraut á árinu 2002.
4.3.3 Vátryggingafélag Íslands
Félagið hélt 160 umferðarfundi, um afleiðingar umferðarslysa, um land allt þar sem tæplega 5000 ungmenni mættu. Gefið var út blaðið STANZ með viðtölum við fórnarlömb umferðarslysa og aðstandendur þeirra og var því blaði dreift á umferðarfundunum. Framleitt var nýtt forvarnamyndefni á fundunum. Árangur af umferðarfundum VÍS er sá að tjóns- og slysatíðni ungmenna, sem sótt hafa fundina, er að meðaltali 26% lægri en meðal þeirra sem ekki hafa mætt.
Haldin voru forvarnanámskeið fyrir eldri borgara og þungaflutningabílstjóra.
Efnt var til Þjóðarátaks gegn umferðarslysum yfir sumarmánuðina og límmiða dreift í bíla á bensínstöðvum ESSO. Um var að ræða tíu umferðarheit sem birtust vikulega í Morgunblaðinu til þess að hvetja vegfarendur til þjóðarátaks gegn slysum í umferð.
VÍS sá um vikulegan umferðarþátt á Stöð tvö í sex mánuði „VÍS í umferð“ þar sem fjallað var um umferðaröryggismál.
Leigðir voru út barnabílstólar VÍS, sem taldir eru í hæsta gæðaflokki.
VÍS rekur sérstaka póst- og netverslun með öryggisvörur, þar sem m.a. eru seld endurskinsvesti- og merki, reiðhjólabúnaður og handfrjáls búnaður fyrir farsíma.
VÍS átti samstarf við Popp-tíví og BMW þar sem þátttakendur af umferðarfundum VÍS tóku þátt í ökuskóla BMW.
VÍS tók á móti fjölda barna af leikjanámskeiðum, yngstu bekkjum grunnskóla og elstu deildum leikskóla og kynnti m.a. fyrir þeim notkun hjálma, bílbelta auk þess sem fjallað var um almennar umferðarreglur.
Fulltrúi VÍS mætti á fjölmarga „umferðardaga“ á landsbyggðinni og tók þátt í hliðstæðum verkefnum.
VÍS er aðili að Fararheill, samstarfsverkefni bifreiðatryggingafélaganna um umferðaröryggismál. Eitt stærsta verkefni Fararheilla á síðasta ári var að vekja athygli á nauðsyn mislægra gatnamóta á Kringlumýrarbraut og Miklubraut.
Forvarnastefna VÍS var kynnt víðs vegar á fundum og samkomum á síðasta ári.
4.4. Ýmis félagasamtök
4.4.1 Slysavarnafélagið Landsbjörg
Stærsta einstaka slysavarnaverkefni SL hefur undanfarin ár verið tengt umferðinni, þ.e. samstarf við Umferðarráð um störf umferðarfulltrúa yfir sumartímann. Sumarið 2002 voru þeir 6, á Norðurlandi, Vestfjörðum, Austurlandi, Suðurlandi, Vesturlandi/Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu.
Einnig hefur félagið unnið mörg önnur verkefni í tengslum við umferðina ýmist í samstarfi við fyrirtæki, félög, einingar sínar eða eitt og sér. Umferðarfulltrúar SL og Umferðarráðs gerðu samtals á landinu öllu yfir hundrað kannanir á hraða og komu niðurstöðum til lögreglu og á hina ýmsu fjölmiðla sem oftar en ekki eru staðbundnir við það svæði sem þeir eru að vinna á. Einnig gerðu þeir fjölmargar kannanir, svo sem á hjálmanotkun, beltanotkun, notkun á öryggisbúnaði barna í bílum, ökuljósanotkun og stefnuljósanotkun. Könnun var gerð á landsvísu um öryggisbúnað barna í bílum í samvinnu við Árvekni og Umferðarráð. Könnunin er gerð af einingum SL og nemum í leikskólakennaraskori í KHÍ.
Hjóladaga skipuleggja slysavarnadeildir oft á vorin áður en skóla lýkur, í samvinnu við lögreglu og oft fleiri aðila. Þar er farið yfir búnað hjóla, ástand hjálma o.fl. Sumar slysavarnadeildir gefa hjálma til mismunandi aldurshópa, jafnt elstu grunnskólabörnum sem þeim yngstu. Þá eru til bæklingar hjá félaginu um línuskauta, hlaupahjól og hjólabretti. Auk þess sem félagið er með bækling um reiðhjól sem gerður var með Umferðarráði og lögreglunni. Bæklingur er til hjá félaginu um öryggi ferðamanna þar sem komið er m.a. inn á akstur á vegum og á hálendinu, vélsleðaakstur, hjólreiðar og reiðmennsku. Félagið hefur haft endurskinsmerki sem félagseiningar og umferðarfulltrúar hafa dreift til almennings.
Umferðarfulltrúarnir hafa komið að umferðaröryggisstarfinu með því að vera áberandi á vegum úti, verið með áróður til ökumanna, farið inn í leikskóla, gert kannanir o.fl. Áróður hefur verið í gangi um áfengi og þreytu, sem m.a. umferðarfulltrúarnir hafa haldið á lofti. Félagið hefur þannig verið með áróður af ýmsu tagi tengt umferðinni eins og póstkort, „löggumiða“, límmiða, einblöðunga, uppfyllingarefni í sjónvarpi, auglýsingar í blöðum og lesnar og leiknar auglýsingar í útvarpi. Þá hafa umferðarfulltrúarnir sent hundruð ábendinga um það sem má bæta í vegakerfinu. Allt frá hinum smæstu atriðum eins og merkingum til þess að koma með tillögur að breytingum á vegum.
4.4.2 Ökukennarafélag Íslands
Ökukennarafélagið hefur á undanförnum árum kappkostað að hafa á boðstólum vandað kennsluefni fyrir öll stig ökunáms. Á síðastliðnu ári var unnið að endurskoðun og endurútgáfu kennslubóka. Þá hefur verið unnið ötullega að því að aksturskennslusvæði á höfuðborgarsvæðinu geti orðið að veruleika. Á síðastliðnu ári var unnið áfram að málinu í samvinnu við yfirvöld en erfiðlega hefur gengið að útvega nægilegt fjármagn til verksins eða finna fjárfesta sem væru tilbúnir að leggja til fé. Virðist skipta þar mestu að koma þarf á skyldunámi á æfingasvæði, sbr. kafla 5.4.2 í umferðaröryggisáætlun, til að hægt sé að tryggja rekstrargrundvöll slíks svæðis.
Haustið 2001 gerði Ökukennarafélagið samning við finnska aðila um að taka upp og bjóða kennslu í vistakstri undir merkinu „EcoDriving“. Norrænu samtökin (NTU) höfðu áður samþykkt að gera vistakstur að samnorrænu verkefni. Á árinu 2002 var síðan unnið að þýðingu efnis og þjálfun fyrstu kennarana og í þeim tilgangi komu hingað tveir finnskir sérfræðingar. Félagið hefur haldið námskeið fyrir félagsmenn sína, en kennari þarf að sitja slíkt námskeið til að mega kenna undir þessum merkjum. Vistakstur er akstur þar sem áhersla er lögð á að eldsneytiseyðsla verði sem minnst og þar með mengun, og sem minnst álag á ökutækið. Með þessu aksturslagi næst jafnframt verulegur árangur í umferðaröryggi.
4.4.3 Félag íslenskra bifreiðaeigenda
Félagið vinnur að eflingu umferðaröryggis og umferðarmenningar í samræmi við lög félagsins.
FÍB gefur út FÍB blaðið sem dreift er í um 20 þúsund eintökum fjórum sinnum á ári. FÍB leggur sérstaka áherslu á umferðaröryggismál í blaðinu og einnig er regluleg umfjöllun um málaflokkinn á heimasíðu félagsins, www.fib.is.
Í júní 2002 var haldið fjölskyldurall FÍB sem er blanda aksturs og þess að leysa ýmsar þrautir og umferðaröryggisverkefni á áfangastöðum.
Á vormánuðum 2002 voru fjölsótt FÍB námskeið um akstur erlendis í samvinnu við Umferðarráð o.fl. Á námskeiðunum er sérstaklega fjallað um umferðarreglur.
FÍB er í samstarfi við Bílgreinasambandið um aukin gæði og fagmennsku í tjónaviðgerðum m.a. til að tryggja umferðaröryggi með öruggari ökutækjum í umferð. Á árinu 2002 voru gæðaúttektir á verkstæðum og sérstaklega fylgst með afskráningu tjónabíla.
FÍB hefur á undanliðnum árum sent erlendum bifreiðaklúbbum og alþjóðasamtökum bifreiðaeigenda upplýsingar og bæklinga frá Umferðarráði um hættur við akstur á Íslandi. Alþjóðasamtökin vinna að framgangi og eflingu umferðaröryggis og hafa í tengslum við það unnið að samanburðarrannsóknum á stöðu umferðaröryggismála. FÍB tekur þátt í þessu starfi og í stefnumótun alþjóðasamtaka bifreiðaeigenda á sviði umferðaröryggismála.
Önnur mál sem FÍB hefur komið að á árinu eru m.a. samstarf við ökukennara um kynningu á vistakstri, við ND á Íslandi ehf. um SÖGU ökulagssíritann. FÍB stendur ásamt Landvernd, Orkuveitunni og fleirum að bæklingi og kynningarstarfi varðandi ágæti vélarhitara sem auka umferðaröryggi í vetrarumferðinni. Á undanliðnum árum hefur FÍB í samstarfi við Umferðarráð, BGS, lögregluna o.fl. staðið að ökuljósaátaki þegar skammdegið eykst.
4.4.4 Bindindisfélag ökumanna
Í öllum áróðri félagsins hefur meginmarkmið verið ökuhraði, bílbeltanotkun og ölvunarakstur. Félagið hefur verið í samstarfi við Umferðarráð og Sjóvá-Almennar um ÖKULEIKNINA, þar sem megináherslan sumurin 1998–2001 var fræðsla til unglinga í vinnuskólum, hópsins sem er að læra á bíl. Fræðslan var ýmist í formi kynninga eða leikrits og „go-kart“ bílar notaðir til að auka gildi hennar. Með notkun bílanna fengu krakkarnir innsýn í akstur og skynjuðu m.a. hversu ölvunarakstur er hættulegur með því að aka á milli keiluhliða með ölvunargleraugu. Verkefninu lauk svo með „Go-Kart leikni“, þar sem reynir á skilning og hæfni til að aka farartæki við þröngar aðstæður. Ökuleikninni fylgir einnig fræðsla og keppni fyrir hjólreiðakrakka ásamt Ökuleikni á bílum fyrir þá sem hafa ökuleyfi. Undanfarin ár hafa umferðarfulltrúar Umferðarráðs og Slysavarnafélagsins Landsbjargar tekið þátt í þessu verkefni.
Veltibíllinn sem er í eigu BFÖ, Umferðarráðs og Sjóvá-Almennra hefur mikið verið notaður við áróður fyrir aukinni notkun bílbelta. Félagar í BFÖ hafa séð um rekstur bílsins auk þess sem BFÖ hefur fjármagnað kaup á bifreið til að draga veltibílinn um landið. Veltibíllinn hefur mikið verið notaður og á árinu 2002 hafa um 17.000 manns farið veltu. Ýmsir aðilar hafa nýtt bílinn í fræðslu, svo sem skólar, björgunarsveitir og sjúkraflutningamenn. Meðal þess sem kennt er, er hvernig losa eigi belti á hvolfi og hvernig bjarga eigi fólki sem hangir í beltum í bíl á hvolfi.
BFÖ stóð fyrir verkefni árið 2002 sem nefnist „Akstur krefst athygli“ í samstarfi við Umferðarráð, Flytjanda, Skeljung og Sjóvá-Almennar. Það miðaðist fyrst og fremst við að auka öryggi flutningabílstjóra í akstri. Stórir límmiðar voru settir aftan á bíla Flytjanda og starfsmenn BFÖ, umferðarfulltrúar og starfsmenn Sjóvá-Almennra fylgdust með akstri bílstjóranna. Þeir fengu reglulega viðbrögð á akstur sinn, bæði jákvæð og neikvæð. Þetta verkefni fékk ökumenn til að hugsa enn betur um akstur og öryggi og hefur umferðartengdum tjónum hjá Flytjanda stórlega fækkað í kjölfarið. Eftir sumarið var fyrirmyndarökumaður Flytjanda valinn og fékk hann utanlandsferð að launum. Þetta verkefni er enn í gangi og mun halda áfram á árinu 2003.
BFÖ hefur beitt sér fyrir áróðri gegn ölvunarakstri og var það eitt af meginmarkmiðum Ökuleikninnar sl. sumar ásamt bílbeltanotkun. Í ljósi þess hve ölvunarakstur hefur aukist yfir sumartímann var ákveðið árið 2002 að tileinka Ökuleiknina því verkefni. Starfsmenn félagsins og Sjóvá-Almennra, ásamt umferðarfulltrúum, fóru út í umferðina með lögreglunni vítt og breitt um landið og stöðvuðu ökumenn. Spjallað var við þá um bílbeltanotkun og ölvunarakstur.
Fyrir jólin hefur félagið jafnan bent á mikilvægi þess að aka ekki undir áhrifum áfengis. Félagið hefur notað ýmsar leiðir til þess. Síðast voru ölvunargleraugun notuð. Heimsóttar voru helstu verslunarmiðstöðvar og fólki boðið að prófa þau, bæði með að ganga, á línu og að leysa af hendi þrautir á hlaupahjóli.
Á árinu 2003 mun félagið halda áfram starfi með óbreyttum hætti. Í tilefni 50 ára afmælis félagsins í haust verður efnt til norrænnar ráðstefnu um umferðarmál 12.–14. september.
Félagið hefur lagt mikla áherslu á lækkun prómillmarka og mun halda áfram baráttu sinni fyrir breytingu á umferðarlögum til lækkunar þeirra. Þá mun félagið leggja aukna áherslu á áróður gegn fíkniefnum í akstri og benda á mikilvægi lögreglu í því sambandi. BFÖ telur að ný tækni muni hjálpa mikið í baráttu gegn fíkniefnaakstri. Þá er horft til þeirrar aðferðar sem Bretar hafa verið að þróa með munnvatnssýnamæli, en sú tækni hefur einnig verið að þróast víðar. Fylgiskjal.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Mynd 6. Samanburður á fjölda látinna miðað við 100 þúsund íbúa í nokkrum viðmiðunarlöndum. Heimild: IRTAD-International Road Traffic and Accident Database (Alþjóðlegur grunnur með upplýsingum um umferð og slys á vegum). Gagnagrunnurinn er á vegum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD).