Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 590. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1331 — 590. mál.
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Páls Magnússonar um birtingu skoðanakannana rétt fyrir kosningar.
1. Telur ráðherra að eðlilegt sé að takmarka gerð eða banna opinbera birtingu skoðanakannana um fylgi stjórnmálaflokka og framboða í aðdraganda kosninga til Alþingis?
Takmarkanir á opinberri umfjöllun þurfa samkvæmt íslenskum rétti að styðjast við sterk rök og vera nauðsynlegar til þess að vernda ríka almanna- eða einkahagsmuni. Í íslenskri löggjöf eru fáein dæmi þess að opinberri umfjöllun séu settar skorður, svo sem vegna réttinda og mannorðs einstaklinga eða til þess að vernda börn og ungmenni. Eðlilegt er að taka afstöðu til spurningarinnar á grundvelli sömu sjónarmiða og búa að baki reglum um vernd tjáningarfrelsis að íslenskum rétti. Skoðanakannanir eru viðtekinn þáttur í umfjöllun fjölmiðla um stjórnmál sem gefa almenningi vísbendingar um hugsanlegar niðurstöður kosninga og verður ekki séð að birting þeirra skerði hagsmuni sem réttlæti frávik frá grundvallarsjónarmiðum um tjáningarfrelsi og prentfrelsi. Bann við opinberri birtingu skoðanakannana um fylgi stjórnmálaflokka og framboða í aðdraganda alþingiskosninga getur því varla talist eðlileg takmörkun á rétti fólks til upplýsinga sem það kann að vilja nýta, enda sé ekki um að ræða rangar upplýsingar sem ógni almannaheill.
2. Hvernig er þeim málum háttað í nágrannalöndum okkar, þ.e. annars staðar á Norðurlöndum og í Norður-Evrópu?
Samkvæmt þeim upplýsingum sem aflað hefur verið í ráðuneytinu er Frakkland eina landið í Norður-Evrópu sem hefur sett bann við birtingu skoðanakannana viku fyrir kosningar en óljóst er hvernig þeim hefur tekist að halda þessu banni til streitu. Það er m.a. vegna þess að skoðanakannanir hafa birst í fjölmiðlum nágrannaríkjanna meðan birting þeirra er óheimil í Frakklandi, en Frakkar hafa vitaskuld greiðan aðgang að fjölmiðlum á netinu. Því má í raun álykta að bann þeirra við birtingu skoðanakannana fyrir kosningar sé orðið úrelt.
3. Hvaða forsendur liggja að baki ákvörðun í löndum þar sem birting eða gerð skoðanakannana síðustu daga fyrir kosningar er bönnuð?
Þeir sem gagnrýnt hafa birtingu skoðanakannana stuttu fyrir kosningar hafa sagt þær hafa áhrif á hegðun kjósenda. Helstu kenningarnar sem settar hafa verið fram um slík áhrif eru annars vegar þær sem vísa til leiðtogaáhrifa og hins vegar til minnimáttaráhrifa, þ.e. að kjósendur muni fylkjast í lið með þeim sem hefur forustu í könnunum eða veita þeim sem illa gengur nokkurs konar samúðarstuðning. Rannsóknir hafa hins vegar bent á að áhrif skoðanakannana á kjósendur séu óveruleg.
4. Hvernig er framkvæmd háttað þar sem í gildi er slíkt bann við gerð eða birtingu skoðanakannana?
Þar sem Frakkland er eina landið í Norður-Evrópu sem viðheldur slíku banni eru mjög takmarkaðar upplýsingar til um hvernig framkvæmd banns er háttað. Eins og bent hefur verið á í 2. lið er hins vegar erfitt að framfylgja þessum takmörkunum þar sem hagsmunaaðilar virðast hafa leitast við að fara í kringum slík bönn.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1331 — 590. mál.
Svar