Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 569. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1332  —  569. mál.




Svar



forsætisráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um þróun og horfur í atvinnumálum.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvaða breytingar urðu á fjölda ársverka á tímabilinu 1995–2002, sundurliðað eftir atvinnugreinum og kjördæmum?
     2.      Hver er spá um vöxt í atvinnulífinu næstu tíu ár, sundurliðað eftir atvinnugreinum og kjördæmum:
              a.      með fyrirhuguðum stóriðjuframkvæmdum,
              b.      án fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda?
     3.      Hvað þarf að skapa mörg störf árlega næstu tíu ár með hliðsjón af mannfjöldaspá, sundurliðað eftir atvinnugreinum og kjördæmum?


    Ekki liggja fyrir gögn um þróun ársverka eftir 1997 er Þjóðhagsstofnun hætti að reikna út ársverk á grundvelli skattagagna. Tölur um ársverk eftir kjördæmum og atvinnugreinum liggja ekki heldur fyrir.
    Ef litið er til mannfjöldaþróunar á árunum 1995–2002 var fjöldi fólks á aldrinum 16 til 70 ára eins og sjá má í töflu 1.

    Tafla 1.
Ár Fjöldi 16–70 ára
1995 179.450
1996 181.440
1997 183.537
1998 186.305
1999 189.089
2000 192.135
2001 194.293
2002 195.532

    Þá eru tiltækar áætlanir Hagstofu Íslands um fjölda starfandi fólks frá 1995–2001 eins og sjá má í töflu 2.

     Tafla 2.
Ár Fjöldi starfandi
1995 141.800
1996 142.000
1997 142.000
1998 147.900
1999 153.300
2000 156.400
2001 159.000

    Í töflu 3 má sjá áætlun Hagstofunnar um fjölda starfandi fólks miðað við grófa atvinnugreinaflokkun fyrir árin 1995–2001. Rétt er að árétta að hér er um að ræða áætlun um fjölda starfandi en ekki ársverk.

         Tafla 3.
1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001
Allt landið, samtals 141.800 142.000 142.000 147.900 153.300 156.400 159.000
Landbúnaður og fiskveiðar 13.500 13.500 12.200 12.700 13.700 13.000 12.400
Iðngreinar 35.100 34.500 36.200 37.300 35.400 35.900 36.000
Þjónustugreinar 93.200 94.000 93.600 97.900 104.200 107.400 110.700
Höfuðborgarsvæði 84.500 84.600 85.500 89.900 94.400 95.700 99.500
Landbúnaður og fiskveiðar 1.700 2.200 1.800 1.800 1.900 1.500 1.900
Iðngreinar 17.000 16.700 17.800 19.400 19.000 19.300 20.000
Þjónustugreinar 65.800 65.700 65.900 68.700 73.500 74.900 77.600
Utan höfuðborgarsvæðis 57.300 57.400 56.500 58.000 58.900 60.700 59.600
Landbúnaður og fiskveiðar 11.800 11.300 10.400 10.900 11.900 11.400 10.400
Iðngreinar 18.100 17.800 18.300 17.800 16.400 16.600 16.000
Þjónustugreinar 27.400 28.300 27.700 29.200 30.700 32.600 33.100

    Ekki er fyrirliggjandi spá um þróun þessara talna.
    Í töflu 4 er mannfjöldaspá Hagstofu Íslands til ársins 2014.

     Tafla 4.
Ár Mannfjöldaspá
2002 285.805
2003 288.261
2004 290.723
2005 293.174
2006 295.631
2007 298.081
2008 300.513
2009 302.937
2010 305.354
2011 307.765
2012 310.163
2013 312.551
2014 314.928
    Spá um fjölda þeirra sem verða á aldrinum 16–70 ára til ársins 2014 má sjá í töflu 5.

    Tafla 5.

Ár Fjöldi 16–70 ára
2002 193.780
2003 195.314
2004 197.183
2005 199.596
2006 201.851
2007 204.427
2008 206.727
2009 209.101
2010 211.571
2011 213.837
2012 215.910
2013 217.939
2014 219.537

    Varhugavert er að draga of víðtækar ályktanir af þessum tölum um hve mörg störf muni skapast eða þurfi að skapast á næstu árum. Kemur þar margt til, t.d. skiptir miklu hver atvinnuþátttaka ungs fólks og eldra fólks verður. Breytingar á eftirlaunaaldri og fjölda námsmanna geta þar skipt sköpum. Uppi eru hugmyndir um að auka sveigjanleika hvað varðar starfslok. Nefnd sem fjallaði um sveigjanleg starfslok og skilaði áliti í október 2002 taldi það verðugt og setti fram tillögur um framkvæmd sveigjanlegra starfsloka. Slíkar breytingar gætu haft áhrif á eftirspurn eftir störfum á hverjum tíma.
    Loks má nefna að spár um þróun atvinnu eftir landsvæðum eða kjördæmum verða ætíð mikilli óvissu háðar.