Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 712. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1335 — 712. mál.
um stjórnmálasögusafn.
Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa nefnd valinkunnra manna sem undirbúi stofnun sérstakrar safndeildar um íslenska stjórnmálasögu innan Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
1. Almennt um varðveislu sögulegra heimilda.
Varðveisla samtímaheimilda hér á landi hefur batnað verulega á síðustu árum með því að löggjöf um hana hefur orðið skýrari og nákvæmari. Gögn sem varða starfsemi hins opinbera renna beint til Þjóðskjalasafns og skjalasafna héraða og bæja og eru varðveitt þar. Þessi þróun er gríðarleg framför, enda öllum í hag að gögn séu varðveitt bæði vegna sagnaritunar framtíðarinnar og hvers kyns málareksturs hins opinbera síðar. Segja má að með bættri skjalavarðveislu sé minni þjóðarinnar skerpt.
En söguritunin, rannsóknir og greining fræðimanna seinni tíma, þarf þó alltaf á meiru að halda en opinberum gögnum. Það er kunnara en frá þurfi að segja að bestu verk sagnfræðinga, hvort sem um er að ræða samtímasögu þar sem heimildamenn kunna enn að vera á lífi, eða sagnfræði fyrri alda, styðjast ævinlega við fjölbreyttara safn heimilda og lykillinn að sögulegum skilningi er oftar en ekki fólginn í heimildum sem liggja utan hins opinbera. Þegar stjórnmálasagan er annars vegar má því fullyrða að saga hvers samtíma verður æði fábreytt ef ekki koma til persónulegar heimildir þeirra sem hildina háðu til viðbótar við þau gögn sem hið opinbera hefur reglur um að skuli varðveitt.
Víða erlendis starfa skjalasöfn, oftast á vegum eða með fjármögnun opinberra aðila, sem hafa það sérstaka verkefni að safna, varðveita og rannsaka persónulegar heimildir stjórnmálamanna, diplómata, stjórnmálaleiðtoga og annarra sem á einn eða annan hátt hafa tengst stjórnmálaþróun samtíma síns á innlendum eða erlendum vettvangi. Slík söfn eru ekki aðeins geymslustaðir heldur í mörgum tilfellum miðstöðvar rannsókna á afmörkuðum sviðum og má nefna forsetasöfnin í Bandaríkjunum sem dæmi um slík söfn.
2. Um brýna þörf á sérstakri safndeild um stjórnmálasögu.
Enn þá vantar með öllu sérsafn um samtímastjórnmál og stjórnmálasögu hér á Íslandi og er það vaxandi áhyggjuefni. Stjórnmálaþróun hér eins og annars staðar í heiminum verður smám saman flóknari, fleiri þátttakendur og aðilar að ákvörðunum og stefnumörkun gera að verkum að opinber gögn geta aldrei orðið fullnægjandi heimildir. Því er bráðnauðsynlegt að þegar í stað verði gerðar ráðstafanir til að íslenskt stjórnmálasögusafn verði til sem hefði það að verkefni að varðveita persónulegar heimildir og yrði jafnframt miðstöð fyrir rannsóknir á sviði íslenskrar stjórnmálasögu. Besta leiðin til að gera þetta er að stofna deild innan handritadeildar Landsbókasafns sem hefði þetta hlutverk. Því má bæta við að uppistaðan í handritadeildinni er safn Jóns Sigurðssonar og því má segja að byggt sé að mjög gömlum grunni. Það er því mjög við hæfi að efla það starf sem Jón sinnti svo vel á sínum tíma.
3. Sérstök rök fyrir stofnun safndeildar um stjórnmálasögu innan Landsbóksafns.
Draga má fram fern rök sem mæla skýrt með stofnun sérstakrar deildar um íslenska stjórnmálasögu:
a. Persónulegar heimildir eru sjónarhorn á atburði sem getur breytt skilningi á þeim. Persónulegar heimildir stjórnmálamanna, svo sem dagbækur, bréf, minnisblöð og fleira sem varðar bakgrunn stjórnmálanna, gefa sjónarhorn á atburði sem er hvergi annars staðar að finna. Það er ekki aðeins svo að slíkar heimildir bæti eða skerpi þá mynd sem er fyrir heldur eru mörg dæmi um að þær breyti í grundvallaratriðum skilningi á einstökum atburðum eða atburðarás. Oft breyta slíkar heimildir líka skilningi manna á mikilvægi einstaklinga svo að hlutur þeirra sem höfðu áhrif í raun er metinn að verðleikum.
b. Skýr farvegur persónulegra gagna tryggir varðveislu þeirra. Safn af þessu tagi getur skapað persónulegum heimildum um stjórnmálasöguna skýran farveg. Vitað er að afkomendur látinna stjórnmálamanna eiga oft í mestu vandræðum með að ákveða hvað gera eigi við skjala- og bréfasöfn sem þeir skilja eftir sig. Fólk treystir ekki einstaklingum fyrir þessum söfnum og gerir sér jafnvel ekki fulla grein fyrir sögulegu mikilvægi þeirra. Einnig eru dæmi um að afkomendur hafi hreinlega ákveðið að farga slíkum gögnum vegna þess að engar skýrir kostir hafa staðið þeim opnir. Söfnun og varðveisla persónulegra heimilda stjórnmálamanna og annarra sem þeim tengjast gæti tryggt þeim og afkomendum þeirra hagfellda leið til að koma þessum viðkvæmu gögnum í öruggt skjól. Handritadeildin hefur á löngum starfsferli komið sér upp ákveðnum vinnureglum í sambandi við varðveislu og aðgang fræðimanna að persónulegum heimildum sem tryggja að með þau sé farið af fullri alúð og trúmennsku. Þar er meðal annars hægt að takmarka aðgang að sérstaklega viðkvæmum gögnum með margvíslegu móti. Aðalatriði er að um leið og persónulegar heimildir komast í hendur sérfræðinga á handritadeild er hægt að tryggja öryggi þeirra og varðveislu í samvinnu við þá sem afhenda heimildirnar.
c. Safndeild um stjórnmálasögu er þáttur í þróun rannsóknahluta Landsbóksafns. Sérsafn um stjórnmálasögu er þáttur í uppbyggingu Landsbókasafnsins sem rannsóknabókasafns. Rannsóknir eiga að vera snar þáttur í starfsemi safnsins en til þess að svo megi verða þarf að skapa þá aðstöðu að það geti gerst í raun og veru. Með því að búa yfir þaulskipulögðu og lifandi safni persónulegra heimilda stjórnmálamanna getur safnið í raun stofnað til rannsóknastarfs innan vébanda sinna. Augljóslega mun safn af þessu tagi einnig auka mjög notagildi þeirra prentuðu heimilda um samtíma og stjórnmál sem safnið varðveitir.
d. Verkefnið tengir Landsbókasafnið traustari böndum við háskólasamfélagið. Stjórnmálasögusafn sem er í senn persónulegt heimildasafn og rannsóknamiðstöð um stjórnmálasögu tengir Landsbókasafnið traustari böndum við háskólasamfélagið. Það má hugsa sér að safn af þessu tagi verði snar þáttur í kennslu og í rannsóknum framhaldsnema, einnig að rannsóknabókaverðir sem tengjast því gætu reynst háskólakennurum og nemendum mikilvæg aðstoð við rannsóknir og leit að heimildum.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1335 — 712. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um stjórnmálasögusafn.
Flm.: Ólafur Örn Haraldsson.
Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa nefnd valinkunnra manna sem undirbúi stofnun sérstakrar safndeildar um íslenska stjórnmálasögu innan Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
Greinargerð.