Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 653. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1337  —  653. mál.




Nefndarálit



um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 2003 vegna aðgerða í atvinnu- og byggðamálum.

Frá 2. minni hluta fjárlaganefndar.



    Annar minni hluti fagnar því að ríkisstjórnin leggi fram frumvarp til fjáraukalaga nú í þinglok. Ríkisstjórnin hefur tíðkað það á undanförnum árum að stofna til útgjalda fyrst og leita svo heimilda Alþingis eftir á. 2. minni hluti hefur gagnrýnt þau vinnubrögð á Alþingi enda eru þau ekki samkvæmt lögum um fjárreiður ríkisins, nr. 88/1997.
    Annar minni hluti lagði fram á síðasta þingi frumvarp til breytinga á lögum um fjárreiður ríkisins þess eðlis að fjármálaráðherra skuli leggja fram frumvarp til fjáraukalaga að vori og að hausti eftir því sem tilefni gefast til. Vonandi er þetta fyrirboði þess að hér eftir verði föst regla að leggja fram frumvarp til fjáraukalaga að vori í lok vorþings ef breytingar liggja fyrir á einstökum gjalda- eða teknaliðum.
    Með þessu frumvarpi er verið að ráðstafa auknu fjármagni til ,,aðgerða í atvinnu- og byggðamálum“ þar sem 3 milljarðar kr. renna til vegamála, 1 milljarður kr. til byggingar svokallaðra menningarhúsa og 700 m.kr. til Byggðastofnunar til atvinnuþróunar.
    Annar minni hluti fagnar því að aukið fjármagn sé veitt til samgöngumála og þeirra verkefna sem tíunduð eru í frumvarpinu. Þessar ákvarðanir hefði þó verið eðlilegra að taka við afgreiðslu fjárlaga í desember sl.
    Annar minni hluti telur að Alþingi hefði átt að gefa sér meiri tíma er varðar forgangsröðun verkefna með tilliti til þeirra markmiða sem sett voru varðandi aðgerðir í atvinnu- og byggðamálum. Enn fremur bendir 2. minni hluti á að ekki liggur fyrir sundurliðun á verkefni er varðar 1 milljarðs kr. framlag til byggingar menningarhúsa og 700 m.kr. framlag til Byggðastofnunar. Verði af þeim stórframkvæmdum sem fyrirhugaðar eru á Austurlandi og Grundartanga telur 2. minni hluti að horfa þurfi sérstaklega til verkefna í öðrum landshlutum.

Alþingi, 13. mars 2003.



Jón Bjarnason.