Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 495. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1382  —  495. mál.




Svar



menntamálaráðherra við fyrirspurn Svanfríðar Jónasdóttur um uppruna rannsókna- og þróunarfjár.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu mikið af því fé sem varið var til rannsókna og þróunar á Íslandi, samkvæmt áætlun hagtöludeildar Rannís fyrir árið 2001, kom frá opinberum aðilum, hversu mikið frá íslenskum fyrirtækjum og hversu mikið frá útlöndum? Hver var þróunin árin fimm þar á undan?

    Upplýsingar þær sem hér er óskað eftir eru teknar saman af hagdeild skrifstofu Rannsóknarráðs Íslands á tveggja ára fresti. Svo hefur verið frá 1971 en þá tóku Íslendingar að birta OECD-gögn um framlög til rannsókna og þróunar með reglulegum hætti. Raunar eru til í gagnagrunni Rannís tölur allt aftur til 1950, en það er fágætt. Ástæður þess að OECD gengst fyrir athugunum á framlögum til rannsókna og þróunar á tveggja ára fresti eru tvær. Annars vegar verða sjaldan svo stórar breytingar frá ári til árs að talinn sé verulegur ávinningur af því að vinna og birta heildartölur árlega. Hins vegar er upplýsinganna aflað úr gögnum sem leita þarf sérstaklega eftir. Kannanir þær sem Rannís gerir eru umfangsmiklar og það tekur fyrirtæki og stofnanir tíma að veita þau svör sem leitað er eftir. Tölurnar eru unnar út úr bókhaldi og ársreikningum og er mismunandi hvenær unnt er að leggja í þá vinnu.
    Tölurnar sem hér birtast eru frá árunum 1991, 1993, 1995, 1997, 1999 og áætlaðar tölur fyrir 2001. Úrvinnsla skrifstofu Rannís vegna 2001 er á lokastigi og tölurnar eru því birtar með fyrirvara. Gert er ráð fyrir að endanlegar tölur liggi fyrir í apríl. Þess má geta að gert er ráð fyrir verulegri hækkun á útgjöldum til rannsókna og þróunar frá 1999 til 2001. Þar sem um svo mikla breytingu er að ræða hefur skrifstofa Rannís lagt áherslu á varfærni þar til endanlegar tölur liggja fyrir á komandi vikum.
    Upplýsingar um framlög hins opinbera eru byggðar á ríkisreikningi og tölur ársins 2001 eru því, enn sem komið er, mun áreiðanlegri en áætlanir um erlend framlög og framlög frá fyrirtækjum það ár.

Heildarfjármagn til rannsókna og þróunar, skipt eftir fjármögnunaraðila, þús. kr.
Verðlag hvers árs. *2001 1999 1997 1995 1993 1991
Atvinnufyrirtæki 11.400 6.305 4.087 2.406 1.858 1.130
Sjálfseignarstofnanir 360 216 89 254 125 80
Hið opinbera 6.876 5.978 4.873 3.989 3.341 3.221
Erlendis frá 3.084 2.023 602 308 174 189
21.720 14.522 9.651 6.958 5.498 4.619
*Áætlun 2001.
Heildarfjármagn til rannsókna og þróunar, skipt eftir fjármögnunaraðila, þ ús. kr.
Á verðlagi 2001. *2001 1999 1997 1995 1993 1991
Atvinnufyrirtæki 11.400 6.974 4.682 2.877 2.292 1.522
Sjálfseignarstofnanir 360 239 103 304 154 108
Hið opinbera 6.876 6.612 5.584 4.770 4.121 4.339
Erlendis frá 3.084 2.238 689 368 214 255
21.720 16.064 11.058 8.320 6.781 6.224
* Áætlun 2001.