Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 602. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1391 — 602. mál.
um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38 15. maí 1990, með síðari breytingum.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1391 — 602. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 38 15. maí 1990, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 14. mars.)
1. gr.
Í stað 1. málsl. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XXIX í lögunum, sbr. b-lið 7. gr. laga nr. 129 20. desember 2001, um breytingu á lögum nr. 38 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, kemur: Á fiskveiðiárunum 2002/2003, 2003/2004 og 2004/2005 er skipstjóra fiskiskips heimilt að ákveða að hluti af afla skipsins reiknist ekki til aflamarks þess. Sá hluti sem þannig reiknast ekki til aflamarks skipsins skal þó aldrei nema meiru en sem nemur 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla sem hlutaðeigandi skip veiðir á hverju fiskveiðiári. Heimild þessi er háð því að eftirfarandi skilyrðum sé fullnægt.2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.