[prenta uppsett í dálka] 0. fundur, 129. lþ.
Frsm. meiri hluta kjörbn. (Einar K. Guðfinnsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það sem liggur núna fyrir og stendur upp úr í þessari umræðu er það að á grundvelli þeirrar kæru sem nú liggur fyrir hefur hv. þm. ekki treyst sér til þess að lýsa því yfir að eins og hún liggur fyrir gefi hún tilefni til að fara fram á endurtalningu og það finnst mér skipta gríðarlega miklu máli. Það sem hv. þm. sagði áðan þegar hann talaði um að það þyrftu að liggja fyrir alvarlegri hlutir sem skýrslan gæti hugsanlega leitt í ljós, þá finnst mér að málið sé að verða allt miklu skýrara og niðurstaða hv. þm., minni hlutans í kjörbréfanefnd, fer nú loksins að verða sæmilega rökrétt.