Ögmundur Jónasson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það var fróðlegt að heyra hverjir eru samflutningsmenn eða samsekir í þessu máli eftir því hvernig menn vilja líta á það. Þetta er ekki danska leiðin. Ég óska eftir að það verði þá gerð grein fyrir því að hvaða leyti þetta er samsvarandi því sem er að gerast í Danmörku. En ég spyr hv. þm. Hjálmar Árnason: Hvers vegna förum við ekki íslensku leiðina og þá leið sem nánast öll ríki í Evrópu fara, að veita fólki einfaldlega þessi réttindi? Eru menn að leita eftir því hvað þeir komist upp með að hafa þetta svona? Hvers vegna í ósköpunum hefja menn ekki þessa vegferð á hinum endanum og spyrja: Er eitthvað sem kemur í veg fyrir það að allir fái notið þessara réttinda? Hvers vegna byrjum við ekki á þeim endanum? Ég vona að hv. þm. svari mér beint frá hjartanu um þetta efni?