[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 130. lþ.
Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég ítreka það sem fram hefur komið, að um málið hafa tekist samningar á hinum almenna vinnumarkaði. Þeir hafa ekki tekist á opinbera markaðnum og það er ástæða þess að frv. er komið fram með þeim hætti sem það er. Því miður, eins og ég rakti áðan, hefur ekki tekist, þrátt fyrir mikinn vilja til þess og ríka viðleitni, að ná saman um málið með samtökum opinberra starfsmanna og viðsemjendum þeirra. Það er ástæða þess að við flytjum málið með þeim hætti sem hér er gert.