[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 130. lþ.
Þuríður Backman:
Herra forseti. Ég fagna því að hæstv. landbrh. skuli hafa birt þessar auglýsingar og muni fylgja þeim eftir. Það er mikil hætta á faraldri sem getur geisað um heiminn rétt eins og Svarti dauði geisaði hér 1918, þ.e. að stökkbreytingar verði í veirum sem berast frá dýrum til manna eða taka stökkbreytingum sem við höfum ekki lyf við. Því er ástæða til að gera allt sem í okkar valdi stendur til að verja landið og búpening okkar. Það ætti ekki að fara fram hjá neinum að Vinstri hreyfingin -- grænt framboð hefur lagt á það ríka áherslu að við nýtum þá auðlind sem við höfum, að búa í eyríki lengst norður í hafi, og ættum þar af leiðandi að hafa meiri möguleika á að verjast ýmsum pestum og faröldrum en þeir sem búa á meginlandinu og búa við aðrar aðstæður.
Ég vil einnig minna á að þetta ætti að vera okkur áminning um að mikilvægt er að standa vörð um íslenska landbúnaðarframleiðslu og hreinleika því við getum aldrei verið örugg um að það geti ekki komið upp þær aðstæður þar sem við verðum hreinlega að geta treyst á okkar eigin framleiðsluvörur og okkar öryggi. Það er ekki allt fengið með ódýrum innflutningi. Ég tel að heilbrigði landbúnaðarvaranna skipti ekki síður máli.