Yrkisréttur

Þriðjudaginn 02. mars 2004, kl. 14:52:22 (4754)

2004-03-02 14:52:22# 130. lþ. 74.5 fundur 613. mál: #A yrkisréttur# (EES-reglur, plöntuyrki o.fl.) frv., AKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 130. lþ.

[14:52]

Anna Kristín Gunnarsdóttir (andsvar):

Frú forseti. Ég get fullvissað hæstv. landbrh. um það að ég hlustaði á ræðu hans af athygli. Í henni komu fram ágætar skýringar á því hvers vegna frv. er lagt fram, enda kemur það líka mjög skýrt fram í skýringum við frv. En mín skoðun er sú að þingmönnum beri að skilja það sem þeir eru að samþykkja. Þess vegna legg ég fram þessar spurningar mínar fyrir ráðherrann.