Forseti (Sólveig Pétursdóttir):
Að gefnu tilefni vill forseti taka fram að hv. 2. þm. Norðaust., Halldór Blöndal, hv. málshefjandi umræðunnar og hæstv. umhvrh. höfðu beðið um orðið á undan hv. 5. þm. Norðaust., Steingrími J. Sigfússyni. Það er aðeins ákveðinn tími sem hægt er að hafa í þessa umræðu samkvæmt þingsköpum. Sá tími var liðinn og raunar var komið nokkuð fram yfir þann tíma. Forseti hyggur því að hv. þm. hafi haft nokkuð góðan tíma til að ræða þetta mál.