Íslensk byggingarlist

Miðvikudaginn 31. mars 2004, kl. 14:26:50 (5872)

2004-03-31 14:26:50# 130. lþ. 92.2 fundur 559. mál: #A íslensk byggingarlist# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., menntmrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur, 130. lþ.

[14:26]

Menntamálaráðherra (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):

Herra forseti. Ég hef kannski ekki miklu við þetta svar mitt að bæta nema því að að sjálfsögðu tek ég keflið á lofti þar sem hv. fyrirspyrjandi henti því til mín og auðvitað mun menntmrn. eftir sem áður hafa frumkvæði í allri þeirri stefnu sem viðkemur list og listsköpun. Þá skiptir ekki máli hvort við erum að tala um byggingarlist, myndlist, tónlist eða kvikmyndalist, öll sú listsköpun sem ég hef nefnt hér og ekki nefnt fellur að sjálfsögðu undir ráðuneyti menningarmála og mun gera framvegis.