Eldisþorskur

Miðvikudaginn 31. mars 2004, kl. 18:28:14 (5935)

2004-03-31 18:28:14# 130. lþ. 92.11 fundur 675. mál: #A eldisþorskur# fsp. (til munnl.) frá sjútvrh., MÞH
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur, 130. lþ.

[18:28]

Magnús Þór Hafsteinsson:

Hæstv. forseti. Hér er talað um þorskeldi og erfðafræði. Hæstv. sjútvrh. kom inn á að það væri mikil erfðafjölbreytni hjá íslenska þorskinum. Það skyldi þó aldrei vera að vegna þess að það eru margir þorskstofnar við Íslands að þá sé ekkert verið að skoða einn einstakan stofn, heldur marga staðbundna litla stofna. Það skyldi þó aldrei vera. Gaman væri að heyra á hve miklum rannsóknum hæstv. sjútvrh. byggir þessa fullyrðingu sína eða hvort hann byggir hana hreinlega bara á kenningum, eins og hann sakaði hv. þm. Gunnar Örlygsson um að gera áðan.

Ég held að fullt tilefni sé til þess að tala um þetta með gagnrýnum hætti ef menn fara út í þorskeldi af öllum krafti sem ég reyndar þó efast um því fiskverð hefur verið að falla töluvert undanfarið og ekki útséð um að hægt sé að stunda slíkt eldi með hagkvæmum hætti. En ef svo fer er full ástæða til að fara vel yfir þessi mál því að við sáum það greinilega með laxeldið fyrir austan, og höfum kannski ekki enn þá bitið úr nálinni með það, að þar var undirbúningi á ýmsan hátt verulega ábótavant.