[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 130. lþ.
Menntamálaráðherra (Þorgerður K. Gunnarsdóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég minni hv. þm. Mörð Árnason á að það er rektor sem að lokum ræður viðkomandi til starfa. Hér höfum við verið að fjalla um dómnefnd sem metur hæfi umsækjenda.
Ég vil líka geta þess að við hv. þm. hljótum að vera sammála um að ráðningar á síðustu árum hafa gengið þokkalega vel innan háskólans. Hvernig stendur á því? Það er meðal annars út af því að dómnefndir sem hafa starfað innan háskólans starfa samkvæmt núgildandi lögum. Ástæðan fyrir því að engin útskýring fylgir þeirri skipan að menntmrh. hafi þennan fulltrúa í dómnefnd er sú að það er ekki verið að breyta neinu, ekki nokkrum sköpuðum hlut.
Menntmrh. hefur samkvæmt núgildandi fyrirkomulagi, einmitt samkvæmt því fyrirkomulagi sem sátt náðist um og hv. þm. Mörður Árnason gat um, fulltrúa í þessum dómnefndum. Það er ekki verið að breyta nokkrum sköpuðum hlut. Við ættum að halda okkur við nútímann en ekki miðaldir.
Ég held að hv. þm. Mörður Árnason ætti að lesa sér betur til um núgildandi lög og hverju er nákvæmlega verið að breyta. Það er hefð fyrir því þegar frumvörp eru lögð fram að tiltekin séu þau atriði sem verið er að breyta. Þess vegna var ekki nokkur skapaður hlutur um fulltrúa menntmrh. í þessari nefnd. (Gripið fram í.)
En ég vil geta þess enn og aftur að í upphafi var frv. samið m.a. að ábendingu frá Háskóla Íslands.