Sólveig Pétursdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég held að það sé rétt hjá hv. þm. að við getum engan veginn skilið hvaða hvatir liggja að baki þeim voðaverkum sem samtökin standa fyrir. Ég vil hins vegar halda því til haga að ég minntist á það í ræðu minni að ég hef áhyggjur af því að þessar hræðilegu hryðjuverkaárásir leiði til þess að það skapist eða myndist gjá milli Vesturlanda annars vegar og landa múslima hins vegar og ég tel að það sé mjög mikið áhyggjuefni. Ég benti líka á að menn yrðu að hafa það í huga að öfgamenn koma frá öllum menningarsvæðum í heiminum.