Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Þriðjudaginn 06. apríl 2004, kl. 17:06:22 (6173)

2004-04-06 17:06:22# 130. lþ. 95.4 fundur 460#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), ÁÓÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 95. fundur, 130. lþ.

[17:06]

Ágúst Ólafur Ágústsson (andsvar):

Frú forseti. Ég átta mig ekki alveg á málflutningi hv. þm. Sólveigar Pétursdóttur. Áminning mín til hæstv. utanrrh. í ræðu minni var sú að Íslendingar ættu að fylgjast vel með þróun varnarmála innan Evrópusambandsins. Svo kemur hv. formaður utanrmn. og sér því allt til foráttu að fylgjast vel með þróuninni í Evrópusambandinu. Við vitum að þetta er sá málaflokkur í Evrópusambandinu sem er að taka breytingum. Það eru ýmsir spennandi hlutir að gerast varðandi varnarsamstarf innan Evrópusambandsins og ég einfaldlega ítreka það sem ég sagði áðan að við þurfum að fylgjast vel með þessu vegna þess að hugsanlega höfum við ekki annan valkost. Ég trúi ekki að formaður utanrmn. sé svo hörð í andstöðu við allt sem tengist Brussel og Evrópusambandinu að hún vilji ekki fylgjast vel með þróuninni en það var það sem ég var fyrst og fremst að biðja um.

Hugsanlega gæti Evrópusambandið tryggt varnarhagsmuni okkar. Það er ekki útilokað. Það er stefna Evrópusambandsins að auka vægi varnarsamstarfsins. Af hverju megum við fylgjast vel með því? Af hverju sér hv. þm. því allt til foráttu? (SP: Ég tók undir með þingmanninum að við þyrftum að fylgjast vel með.) Já, þá erum við sammála.