[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 130. lþ.
Kjartan Ólafsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. álasar mér fyrir að ég hafi ekki sagt A í þessari umræðu (ÖS: Ég sagði það ekki.) Að ég hafi sagt A en ekki B. Gott og vel. Ég mun auðvitað segja D úr þessum ræðustól og ekkert annað en D og hæstv. landbrh. Guðni Ágústsson segir B en sumir eru hættir að segja A í pólitík á Íslandi og segja eitthvað allt annað.