[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 130. lþ.
Guðjón A. Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu):
Hæstv. forseti. Það var sérstaklega óskað eftir því við afgreiðslu þessa máls að fyrir lægju upplýsingar um það í nefndinni hver gjaldtakan yrði samkvæmt þeim gjaldtöku\-ákvæðum sem hér liggja fyrir. Því miður hafa þær upplýsingar ekki borist og þess vegna hef ég fyrirvara á varðandi þá afgreiðslu málsins.