Dagskrá næsta þingfundar

Mánudaginn 10. maí 2004, kl. 23:03:44 (7779)

2004-05-10 23:03:44# 130. lþ. 111.94 fundur 544#B dagskrá næsta þingfundar# (um fundarstjórn), KLM
[prenta uppsett í dálka] 111. fundur, 130. lþ.

[23:03]

Kristján L. Möller:

Herra forseti. Ég kem til þess að lýsa því yfir og segja í heyranda hljóði, þar sem forseti greip fram í áðan og sagði að minnst hafi verið á þau lög sem við erum að tala um á fundi formanna þingflokkanna með forseta í dag, þ.e. breytingu á útvarpslögum og samkeppnislögum, að það var ekki minnst á það einu einasta orði á fundinum að ræða ætti um nál. eða brtt. í málinu. Ég vísa því til föðurhúsanna að það hafi verið gert.

Hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur lýst því ágætlega sem hér er að gerast og svo sem ekki miklu við það að bæta. En innkall og frammíkall hæstv. forseta um að þessi lög hafi verið nefnd á fundinum í dag eru ekkert annað en skröksögur og hæstv. forseti hlýtur að vera með svarta tungu eftir þetta.

(Forseti (HBl): Ég greip ekki fram í fyrir hv. þm., það er ósatt.)