Útvarpslög og samkeppnislög

Föstudaginn 14. maí 2004, kl. 11:41:15 (8159)

2004-05-14 11:41:15# 130. lþ. 115.1 fundur 974. mál: #A útvarpslög og samkeppnislög# (eignarhald á fjölmiðlum) frv. 48/2004, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 115. fundur, 130. lþ.

[11:41]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Við vorum komin þar sögu að hv. 5. þm. Norðaust., Steingrímur J. Sigfússon, var í miðri ræðu sinni og þess var freistað í fundarhléi að fá hæstv. forsrh. til fundarins samkvæmt beiðni hv. þm. Nú liggur það fyrir að hæstv. ráðherra er innilokaður á fundi og verður um óákveðinn tíma.