Atvinnuleysistryggingar

Laugardaginn 15. maí 2004, kl. 18:31:11 (8327)

2004-05-15 18:31:11# 130. lþ. 116.4 fundur 816. mál: #A atvinnuleysistryggingar# (hækkun bóta) frv. 34/2004, ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 116. fundur, 130. lþ.

[18:31]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Við höfum áður rætt efni þessa frv. í þingsal og ég hef gert ítarlega grein fyrir afstöðu okkar í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði til málsins. Við fögnum því að verkalýðshreyfingunni tókst að knýja fram árangur og kjarabætur fyrir atvinnulausa. Við vildum að sjálfsögðu að betur væri gert og þess vegna eru framkomnar tillögur þess efnis en að öðru leyti vísa ég til fyrri málflutnings okkar um málið.