Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):
Herra forseti. Kostirnir í stöðunni voru ákaflega skýrir. Annars vegar var það að búa við óbreytt kerfi sem menn hafa ekki bolmagn til að breyta (Gripið fram í.) eða að reyna að ná annarri niðurstöðu og um það ræddu landssambandið og ráðuneytið og komust að sameiginlegri niðurstöðu. Það var niðurstaða og mat Landssamband smábátaeigenda að sá kostur væri betri en hinn valkosturinn. Mér finnst það ábyrgðarhluti, vegna þess að ég er sammála því mati að athuguðu máli, að beita mér fyrir því að lakari kosturinn fyrir útgerðarmenn verði valinn. Það setur útgerð þessara manna í uppnám og eins hagsmuni þess fólks sem á starf sitt undir útgerðinni, hvort sem það er í vinnslu eða öðrum umsvifum í kringum þessa útgerð. Það setur það í meira uppnám. Ég vil skora á hv. þm. að velta því fyrir sér hver staðan væri ef þá sá kostur hefði verið valinn. Ætlar hv. þm. að fara um byggðirnar og segja þeim að hann vilji að menn velji verri kostinn, þann kost sem er líklegri til þess (Gripið fram í.) að vega að atvinnu manna?