Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 28. maí 2004, kl. 19:46:57 (9454)

2004-05-28 19:46:57# 130. lþ. 131.2 fundur 996. mál: #A stjórn fiskveiða# (sóknardagar báta, krókaaflamark o.fl.) frv. 74/2004, KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 131. fundur, 130. lþ.

[19:46]

Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):

Herra forseti. Þetta voru ómakleg orð í lokin hjá hv. þm. Ég hygg að ég hafi ekki skipt oftar um flokk en hann. Ég vil minna á það að Alþýðubandalagið, sem ég var í áður, ákvað að hætta að starfa og þeir sem vildu halda áfram í pólitík urðu að finna sér vettvang til þess að starfa. Það gerði ég og hver einasti maður í Alþýðubandalaginu sem ákvað að halda áfram í pólitík, að skipta um flokk. Hver einasti maður. Það gerðu líka þeir sem voru í Alþýðuflokknum. Ég vil ekki, herra forseti, að viðhöfð séu slík ummæli án þess að ég fái að svara fyrir mig. Mér finnst þetta ómaklegt og ómálefnalegt. Hv. þm. er ekki vanur að tala svona og ég held að hann hafi misst þetta út úr sér. Við skulum bara gleyma þessu.