[prenta uppsett í dálka] 131. fundur, 130. lþ.
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):
Herra forseti. Fyrstu spurningu hv. þm. er mjög auðvelt að svara. Þær aðstæður geta komið upp að þessir litlu handfærabátar geti ekki veitt þegar fiskur næst ekki á þeirri slóð sem þeir geta athafnað sig á. Hins vegar er mun líklegra að þeir geti veitt afla sinn ef þeir hafa fleiri úrræði eins og línuveiðar, sem þeir munu hafa í krókaaflamarkskerfinu. Það er augljóslega síður líklegt að upp komi þær aðstæður að mönnum séu nánast allar bjargir bannaðar vegna þess að þeir geti ekki veitt það sem þeir hafa ráðgert séu þeir í krókaaflamarkinu fremur en að vera einvörðungu á handfærum. Ég hygg að það sé augljóslega skýringin á því og svarið við þeirri spurningu.
Ég held að hv. þm. ætti að spyrja þá sem hafa m.a. hringt í hann. Margir útgerðarmenn hafa hringt í þingmenn, m.a. þingmenn stjórnarandstöðunnar, og sagt við þá: Þið skuluð ekki voga ykkur að stöðva þetta mál vegna þess að við viljum þetta frekar en hitt. Þannig er staðan í útgerðarmannahópnum, herra forseti.