[prenta uppsett í dálka] 134. fundur, 130. lþ.
Guðlaugur Þór Þórðarson (andsvar):
Virðulegi forseti. Það var athyglisvert að heyra þessa ræðu hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar. Hann var afskaplega stóryrtur eins og oft áður, talaði um lúalegt, sóðalegt og að skammast sín. Þetta er ekki í eina skiptið, virðulegi forseti, sem hv. þm. er stóryrtur. Reyndar held ég að það sé orðin alger regla.
Ég vek athygli á því að þann 19. nóvember síðastliðinn var hv. þm. afskaplega stóryrtur. Hvers vegna var það? Jú, hann var að lýsa ástandinu á fjölmiðlamarkaðnum áður en þessi mikla samþjöppun varð, áður en hún varð. Þá talaði hann um það, virðulegi forseti, og ég efast um að nokkur hafi tekið svo stórt upp í sig, að það væri stutt í hið rússneska ástand, hvorki meira né minna. Ég er með þetta útskrifað ef hv. þm. er búinn að gleyma þessu. Því væri ágætt að fá að vita af hverju hv. þm. hefur engan áhuga á að ræða það lengur eða grípa til einhverra ráða til að koma í veg fyrir slíkt.
Ég vil nota tækifærið, virðulegi forseti, og spyrja hv. þingmann sömu spurningar og ég spurði hv. þm. Össur Skarphéðinsson. Það var athyglisvert að sá ágæti þingmaður sem hefur hér talað um að ræða þurfi málið og vinna í sátt og annað slíkt sýndi þann hroka að svara ekki.
Ég spyr einfaldlega af því að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon talaði um aðalatriðið sé stjórnskipunin. Telur hv. þm. að það sé eðlilegt ástand og gott fyrir íslenska stjórnskipun að forsetinn neiti skrifa undir lögin ef mál er umdeilt eða óvinsælt? Þetta er grundvallaratriði. Ef þetta verður leiðin sem farin verður í framtíðinni þá erum við að horfa upp á allt aðra stjórnskipun en við höfum séð fram til þessa. Ég vil fá skýrt svar frá hv. þm. hvað þetta varðar.