[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 130. lþ.
Flm. (Lára Margrét Ragnarsdóttir):
Herra forseti. Ég ætlaði aðeins að fá að þakka þeim þingmönnum sem hafa verið hér í dag og undanfarið og stutt mig í þeirri viðleitni minni að koma þessari hugmynd um sædýrasafn á framfæri. Mér þykir leitt að hv. þm. Jón Gunnarsson skuli hafa misskilið það sem ég hef verið að segja og hafa verið svona hornóttur, ef segja má, út í skilgreiningu mína á höfuðborgarsvæðinu. Ég vinn þessa tillögu eftir vandlegar athuganir á því hvar möguleiki er á að reisa slíkt safn sem kostar þennan ekki litla pening og af þeim orsökum einum er vangaveltan um höfuðborgarsvæðið raunhæf. Ég hef ekki lagt í vana minn að koma í ræðustól með óraunhæfar röksemdir.
Að öðru leyti þakka ég þingmönnum og þingheimi fyrir þann stuðning sem ég hef fengið og ég vonast til þess að þetta verk verði unnið hratt og að niðurstöður um það sem ég nefndi í ræðu minni verði tilbúnar fyrir 1. september á næsta ári.