Menningarmál á Vesturlandi

Miðvikudaginn 19. nóvember 2003, kl. 18:17:03 (1972)

2003-11-19 18:17:03# 130. lþ. 31.7 fundur 149. mál: #A menningarmál á Vesturlandi# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 31. fundur, 130. lþ.

[18:17]

Menntamálaráðherra (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Það er að vísu misskilningur að þær hugmyndir sem uppi eru í ráðuneytinu séu að öllu leyti nýjar útfærslur á samningum og með öðrum hætti en í fyrri samningum, eins og kom fram hjá hv. þm. Jóhanni Ársælssyni. Það eru tveir samningar í gangi. Annar er við sveitarfélög á Austurlandi þar sem þau koma ekki með peningaframlög á móti þeim framlögum sem ríkið leggur fram. Síðan er sérstakur menningarsamningur við Akureyri þar sem framlög koma frá sveitarfélaginu til jafns við framlög ríkisins. Þetta er því ekki nýtt af nálinni, því fer víðs fjarri. Þetta er raunar elsti menningarsamningurinn sem gerður hefur verið við sveitarfélög úti á landi, þ.e. samningurinn við Akureyri.

Full ástæða er til að vega og meta hvernig eðlilegast er að standa að slíkum verkefnum í ljósi þess samnings sem gerður var á Austurlandi og þess sem gerst hefur á Akureyri. Rétt er að geta þess, af því að hv. fyrirspyrjandi vildi blanda inn í þessar umræður málefnum menningarhúsanna, að menningarhúsin áttu að þjóna þeim tilgangi beinlínis að efla menningarstarfsemi í þeim landshlutum sem lengst voru frá höfuðborgarsvæðinu og þar sem annaðhvort fjarlægðir eða samgöngur voru með þeim hætti að ástæða var til styrkja það sérstaklega. Þess vegna er ástæða til að skoða þessi mál, bæði út frá samningnum á Austurlandi en einnig út frá samningnum á Akureyri. Það er það sem er verið að gera og ráðuneytið mun ekki gera nýjan samning fyrr en þeirri athugun lýkur. (Gripið fram í: Hvenær verður það?)