[prenta uppsett í dálka] 42. fundur, 130. lþ.
Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Einar Már Sigurðarson) (andsvar):
Frú forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. upplýsingarnar og vona auðvitað að þetta frv. nái til dreifingar í dag því að eins og ég sagði í ræðu minni er það lágmarkskrafa að við fáum a.m.k. að sjá þau frv. sem tengjast fjárlagafrv. áður en við ljúkum afgreiðslu þess. En mér þótti öllu óljósara hjá hæstv. ráðherra varðandi seinna frv. sem þarf einnig að koma í þingsali, hvenær vænta mætti að því yrði dreift. Það er því eðlilegt að spyrja hæstv. ráðherra: Hafa þingflokkar stjórnarflokkanna samþykkt frv. varðandi fiskvinnslufólkið? Er hitt frv. í einhverjum hægagangi hjá þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna eða kannski stopp í öðrum þeirra?