Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Mér varð það á áðan að mig minnti að þetta nál. hefði verið þverpólitískt, á því hefðu verið fulltrúar frá öllum flokkum. Hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir hefur leiðrétt mig um það, hún var á séráliti, og ég bið hana afsökunar á því að hafa farið rangt með.