[prenta uppsett í dálka] 42. fundur, 130. lþ.
Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vona að ég hafi skilið hv. þm. Einar Odd Kristjánsson rétt áðan en kem hér upp eiginlega til að skerpa á því.
Eins og ég sagði þegar ég gerði grein fyrir því að ekki væri til formlegur samningur milli félmrn. og Byrgisins um lausn á fortíðarvandanum bjóst ég auðvitað við að þegar hv. þm. áttaði sig á því að þannig væri í pottinn búið mundi hann taka undir að það mál þyrfti að skoðast betur. Ég skildi hann svo hér áðan að hann væri tilbúinn til þess að taka upp viðræður við félmrn. um að koma þá slíkum samningi á þannig að sá vandi sem við höfum verið að véla um hér á milli okkar yrði leystur.
Ég vil bara ítreka í þessu andsvari hvort þetta var ekki réttur skilningur hjá mér á máli hv. þingmanns áðan.